Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1994, Side 27
LAUGARDAGUR 25. JÚNl 1994
35
Sjúkdómur í
blöðruhálskirtli
Blööruhálskirtill er undir þvag-
blöðru í karlmönnum. Þvagrásin
liggur gegnum kirtilinn og fram í
timinn. Blöðruhálskirtiltinn fram-
leiðir mjólkurtitan vökva sem
blandast sæðinu og gefur þvi sér-
kennilega lykt. Kirtiltinn er lítill í
ungum drengjum en stækkar á
kynþroskaskeiðinu. Næstu áratugi
stendur hann í stað en oft stækkar
kirtillinn enn frekar upp úr fimm-
tugu og þrengir þá að þvagrásinni
og veldur ýmsum vandamálum.
Tatið er að hkur á því að fertugur
heilbrigður maður fái einkenni frá
stækkuðum blöðruhálskirtti fyrir
áttrætt séu um 10-25 %.
Sextíu og tveggja
ára ekkill
Hólmsteinn B. var 62ja ára gam-
all ekkill sem stundum leitaði til
Nökkva læknis vegna þunglyndis
ogfélagslegravandkvæða. Hólm-
steinn hafði fengið örorku í nokkur
ár vegna bakverkja og stitgigtar í
mjöðmum. Hann átti 2 dætur sem
báðar höfðu farið til Ameríku í leit
að frægð og flármunum og ílenst
við afgreiðslustörf hjá McDonald’s
í New York. Eftir veikindi og dauða
eiginkonunnar fór Hólmsteinn aö
drekka mikið. Hann kom eitt sinn
til að ræða harmsögu ævi sinnar
við Nökkva lækni og bölva freist-
ingum Ameríku. „Þeir stálu frá
mér stelpunum, bölvaöir, sagði
hann, reiðilega." Gervitennumar
virtust einu númeri of stórar. Hann
var í ljósgráum jakkafótum og vín-
rauðri peysu með brunagati. Undir
peysunni var hann í skítugri, gul-
leitri skyrtu með trosnuðum flibba.
Það var gulur blettur framan á
buxnaklaufinni. „Skoðaðu aðeins á
mér mjöðmina," sagði Hólmsteinn
og Nökkvi bað hann að fara úr
buxunum og leggjast upp á bekk-
inn. Hann var í gráleitum, illa lykt-
andi, síðum nærbuxum. Framan á
þeim var stór, heiðgulur þvagblett-
ur. „Gengur þér illa að halda þvag-
inu?“ spurði Nökkvi. „Nei, nei,“
sagði Hólmsteinn, „ég er bara
klaufi með þvottavélina og þvæ
sjaldan nærfótin mín. Ég vissi ekki
að þú mundir biðja mig að fara úr
buxunum. Ef ég hefði vitað það
hefði ég nú farið í hreinar nærbux-
ur, það máttu bóka og fyrirgefðu.“
Hvernig gengur
að pissa?
„Segðu mér hvemig þér gengur
að pissa?“ sagði Nökkvi. Hann
nennti ekki að hlusta á söguna um
hamingjuleysi dætranna í Amer-
íku einu sinni enn. Hólmsteinn
sagði honum þá alla söguna um
þvaglátin sín. Síðustu 2-3 árin hefði
þvagbunan orðið slöpp þegar hann
kastaði af sér vatni. Hann átti erf-
itt með að byrja og hætta að pissa.
Það virtust endalaust koma smá-
dropar en auk þess fann hann fyrir
Á læknavaktiimi
þvagleka. Hann þurfti að pissa oft-
ar en áður og oftsinnis vaknaði
hann á nóttum til að fara fram á
klósett. „Þetta er eiginlega grábölv-
að ástand," sagði Hómsteinn. „Það
er enginn svefnfriður fyrir þessum
fjanda." „Blööruhálskirtiltinn er
sennilega orðinn of stór og þrengir
að þvagrásinni," sagði Nökkvi.
„Stik þrengsli gera það að verkum
að þú tæmir aldrei blöðrana al-
mennilega. Svona stækkun getur
líka valdið þvagteppu." „Já, það
gerðist eitt sinn úti í Ameríku,“
sagði Hólmsteinn. „Viö drukkum
hressilega eitt kvöldið og ég gat
ekki pissað. Þau urðu að fara með
mig á spítala og tappa af mér.“
Nökkvi þreifaði upp í endaþarminn
á Hólmsteini og fann að kirtiltinn
var greinilega stækkaður en mjúk-
ur og eðtilegur viðkomu. Hann
fann engin merki um illkynja vöxt.
Hólmsteinn fer
til þvagfæralæknis
Nökkvi vísaði Hólmsteini til
þvagfærasérfræðings sem rann-
sakaði hann nákvæmlega. Hann
uppgötvaði verulega stækkun á
kirtlinum og hindrun á þvagflæði.
Ákveðið var að gera aðgerð á
Hólmsteini. Læknirinn fór með
sérstakt skurðtæki gegnum þvag-
rásina og tálgaði út kirtitinn í
mænudeyfingu. Einkennin hurfu
að mestu við þessa aðgerð og Hólm-
steinn var hinn glaðasti. Honum
fannst tilveran verða allt önnur
þegar hann þurfti ekki að fara á
klósettið til að pissa oft á nóttu.
Að öðm leyti varð engin breyting
á tilverunni. Hann hélt áfram að
drekka mikið og syrgja dæturnar í
Ameríku, dauöa konunnar og allan
einmanaleikann. Einu sinni sem
oftar kom hann og Nökkvi sá strax
að hann var með þvagblett framan
á buxunum sínum. „Er þetta byrjað
aftur?" sagði Nökkvi og benti á
blettinn. „Nei, nei,“ sagði Hólm-
steinn og hló. „Ég sofnaði heldur
fast á síöasta fylliríi og missti smá-
þvag í buxumar. Þetta næst úr í
góðri hreinsun." „Það er fjandalegt
að geta ekki tálgaö úr þér drykkju-
skapinn með tóti eins og þvagfæra-
læknirinn var með,“ sagði Nökkvi.
„Láttu nú ekki svona,“ sagði Hólm-
steinn, „manstu ekki eftir því sem
stendur í íslandsklukkunni. íslend-
ingar eiga sér aðeins einn sannleik
og það er brennivínið.“ Nökkvi
horfði spekingslega á þvagblettinn
gula og hugsaði um margbreyti-
leikasannleikans.
' VARAHLUTAÞJÓNUSTA '
Dráttarvélavarahlutir - Aukahlutir
Heyvinnuvélavarahlutir - Tindar - Hnífar
Góð þjónusta - Gott verð - Vanir menn.
Opið kl. 08:00-18:00, laugardaga til hádegis.
ÁRÆÐI HF.
Höföabakka 9 • Sími 91-67 00 00. * Fax 91-67 43 00
v_______________________________y
Skólavöröustigur 16, 2. hæö. Símar 27305 og 623134
KÍNVERSKA NUDDST0FAN
Ertu að farast í höfðinu eftir að hafa
unnið við tölvuna allan daginn?
Er hálsinn svo stifur að þú
getur varla horft til hliðar?
Eru axlirnar svo aumar að
þú spennist allur upp?
Eftir afleins 4-5 skipti gæti
líðan þin verið orðin allt onnur.
Opið alla daga, einnig um helgar.
Viku - hestaævintýri
í sveit
fyrir 12 til 15 ára hressa krakka
íslenskir góðhestar bjóða ungling-
um 12 til 15 ára upp á vikudvöl
að Núpi í Fljótshlíð. Fyrstu 4 dag-
ana verður byrjendanámskeið og
tilsögn fyrir þá sem lengra eru
komnir, auk styttri skoðunar- og
reiðtúra. Þrjá síðustu dagana er
farið í fjallaferö og komið heim að
Núpi seinni part 7. dags.
Þátttakendur fá hesta og reiðtygi á staðnum en einnig er
hægt að hafa með sér eigin hest og reiðtygi ef óskað er.
Leitið nánari upplýsinga í síma 98-78316. Takmarkaður
fjöldi í hverjum hóp.
ÍSLENSKIR GÓÐHESTAR
NÚPI, FLJÓTSHLÍÐ.
Menningar sj óður
útvarpsstöðva auglýsir
Samkvæmt útvarpslögum og reglugerð um Menn-
ingarsjóð útvarpsstöðva er hlutverk sjóðsins m.a.
að veita styrki til eflingar innlendri dagskrárgerð
fyrir hljóðvarp og sjónvarp, þeirri er verða má til
menningarauka og fræðslu.
Stjóm sjóðsins auglýsir hér með eftir umsóknum
um styrki úr sjóðnum. í umsóknum skulu eftirfar-
andi upplýsingar koma fram:
1. Nafn umsækjanda, kennitala og heimilisfang
ásamt upplýsingum um aðstandendur verkefnis
og samstarfsaðila og skriflegum staðfestingum
allra aðila um þátttöku í verkefninu.
2. Heiti verkefnis og megininntak.
3. ítarleg og sundurliðuð kostnaðaráætlun ásamt
greinargerð um fjármögnun, þ.m.t. um framlög
og styrki frá öðrum aðilum, sem fengist hafa
eða sótt hefur verið um, eða fyrirhugað er að
sækja um.
4. Fjárhæð styrks sem sótt er um.
5. Nákvæm áætlun um framvindu verkefnis og
greinargerð um það til hvaða verkþátta sótt er
um styrk til.
6. Handrit eða nákvæm lýsing verkefnis.
7. Yfirlýsing útvarpsstöðvar um að fyrirhugað sé
að taka dagskrárefni, sem sótt er um styrk til,
á dagskrá.
Umsóknum og öllum fylgigögnum ber að skila í
þríriti á skrifstofu ritara stjórnar, Bjarna Þórs
Óskarssonar hdl., Laugavegi 97, 101 Reykjavík,
fyrir 1. ágúst nk. Úthlutunarreglur sjóðsins og
umsóknareyðublöð fást afhent á sama stað.
Ekki verður tekið tillit til umsókna sem ekki upp-
fylla öll framangreind skilyrði. Eldri umsóknir ber
að endurnýja.