Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1994, Qupperneq 28

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1994, Qupperneq 28
36 LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 1994 Iþróttir Markaskorarinn Gabriel Batistuta: Gerði bara skyldu mína - skoraði fyrstu þrennuna á HM „Ég kom ekki hingað til að verða markakóngur, heldur til að hjálpa Argentínu til að verða heimsmeist- ari. Ég gerði bara skyldu mína.“ Þessi hógværu orð mælti Gabriel Batistuta, markahæsti leikmaður fyrstu umferðar riðlakeppninnar á heimsmeistaramótinu í knatt- spymu í Bandaríkjunum, sem skoraði þrennu í 4-0 sigri Argent- ínumanna á Grikkjum áþriðjudag- inn. En hann bætti við: „Það hefur dugað að gera sex mörk til að verða markakóngur heimsmeistara- keppninnar, svo ég er kannski kominn hálfa leið.“ í fjórum síð- ustu heimsmeistamótum hefur nefnilega markakóngurinn skorað 6 mörk. Mario Kempes gerði það 1978, Paolo Rossi 1982, Gary Line- ker 1986 og Salvatore SchiUaci 1990. Batistuta sýndi í fyrri hálfleikn- um að hann þarf ekki mikið pláss til að skora, en þá afgreiddi hann Grikkina með tveimur góðum mörkum. Á síðustu mínútunni fékk hann síðan tækifæri til að fuli- komna þrennuna þegar Argentína fékk vítaspymu og honum brást ekki bogalistin. Þar naut hann þess kannski að Diego Maradona var farinn af leikvelli. „Fyrirmælin um vítaspymurnar hjá okkur em á þá lelið að Mara- dona sé númer eitt, Batistuta núm- er tvö. En Diego sagði mér eftir leikinn að hann hefði látið mig taka spymuna þó hann hefði verið inni á, til að ég næði þrennunni," sagði Batistuta. Þessi 25 ára gamh markaskorari leikur nú í fyrsta skipti í úrslita- keppni HM, en hann hefur þegar sýnt að þar má búast við miklu af honum. Frami hans nú kemur þó ekki sérstaklega á óvart því fyrir keppnina hafði hann skorað 20 mörk í 32 landsleikjum með Arg- entínu. Batistuta hóf feril sinn með New- ell’s Old Boys í Argentínu og hætti viö að læra læknisfræði til að ge- rast atvinnumaður. Hann lék síðan með River Plate og Boca Juniors, og með síðastnefnda liðinu var hann kjörinn knattspymumaður ársins í Suður-Ameríku árð 1991. Batistuta hélt síðan til Ítalíu og leikur þar með Fiorentina. Tíma- bilið 1992-1993 skoraði hann 16 mörk í 1. deildinni, en þau dugöu þó ekki til að forða liöinu frá falli. Nýliðinn vetur skoraði hann líka 16 mörk, í 2. deildinni, og hjálpaði Fiorentina upp í 1. deildina á ný. Gabriel Batistuta, til vinstri, er fagnað af félaga sinum, Fernando Caceres, eftir að hann skoraði fyrsta mark sitt af þremur í leiknum við Grikki, eftir aðeins 83 sekúndna leik. Símamynd Reuter Uppreisn æru fyrir fallna stjömu: Diego Maradona er mættur til leiks -þetta hefur verið erfíð leið, segir Argentínumaðurinn Diego Maradona fagnaði marki sínu innilega. Simamynd Reuter Það leyndi sér ekki þegar Diego Maradona gekk af leikvelli skömmu áður en leik Argentínumanna og Grikkja lauk á þriðjudaginn að hann var ánægður með frammistöðu sína. Hann mátti líka vera það - Maradona sýndi gamalkunna takta á köflum og skoraði stórglæsilegt mark og fagn- aði því innilega með því að hlaupa beint að sjónvarpsvélunum. „Ég hljóp í áttina að stórri mynda- vél sem ég sá til að láta í ljós gleði mína og líka reiði. Fyrir leikinn efuð- ust margir og þetta hefur verið erfiö leið. Það voru margir sem héldu að þeir gætu ráðskast með líf mitt,“ sagði Maradona um þetta atvik. Frammistaða Maradona gegn Grikkjum er mikill sigur fyrir hann, eftir öll erfiðu árin sem hann á að baki. Hann náði hátindi ferils síns árið 1986 þegar hann leiddi Argent- ínu til heimsmeistaratignar en síðan fór smám saman að halla undan fæti. Að lokum var hann dæmdur í rúm- lega eins árs bann vegna kókaín- neyslu og snemma á þessu ári var útlit fyrir að hann ætti sér ekki við- reisnar von. Þá voru engin teikn á lofti um að hann kæmist til Banda- ríkjanna, hvað þá að honum tækist svona vel til. Um byrjun Argentínu í HM segir Maradona: „Þetta er frábær byijun en við verðum að halda okkur á jörð- inni. Næst leikum við gegn Nígeríu- mönnum (í kvöld) og þeir eru mjög ftjótir. En Búlgarir hefðu átt að ganga frá þeim á fyrstu 15 mínútunum, ef Cani (Caniggia) eða Bati (Batistuta) fengju svona færi á móti þeim, mynd- um við mala þá.“ Stóra prófið hjá Nígeríumönnum er í kvöld: Lið Nígeríu býr yfir mikilli reynslu Nígeríumenn komu mörgum skemmtilega á óvart aðfaranótt mið- vikudagsins þegar þeir unnu glæsi- legan sigur á Búlgörum, 3-0, í fyrsta leik sínum í úrslitakeppni HM frá upphafi. Af þeim leik má ráða að þeir séu til alls vísir í keppninni, en stóra prófið fyrir þá er leikurinn gegn Argentínu í kvöld. Allt bendir til þess að þaö sé úrslitaleikurinn í D-riðli og þar kemur í Ijós hvar Níg- ería stendur gagnvart bestu knatt- spymuþjóðum heims. Það þarf þó kannski ekki að koma svo mjög á óvart að Nígería standi sig vel. Láðið er nánast eingöngu skipað atvinnumönnum úr Evrópu og býr þvi yfir mikilli reynslu. Sókn- armennimir em engir nýgræðingar fyrir framan markið því Rachid Yek- ini varð markahæsti leikmaður port- úgölsku 1. deildarinnar í vetur með Vitoria Setubal, og Daniel Amokachi er helsti markskorari toppliðsins Club Bmgge í Belgíu. Nígería er fremsta knattspymu- þjóð Afríku í dag og sýndi það og sannaði síðla vetrar með öraggum sigri í Afríkukeppni landsliða. Þar varð einmitt Yekini markahæstur, og frammistaða hans gegn Búlgömm benti til þess að hann gæti orðið ein af stjömum keppninnar í Bandaríkj- unum ef Nígeríumönnum tekst að halda þessum dampi. Knattspyman í Afríku hefur tekið stórstígmn framfomm undanfarin ár. Það er ekki svo ýkja langt síðan Afríkuþjóðimar sem komust í úr- shtakeppni HM voru skotskífur fyrir önnur lið en það er liðin tíð. Nígería, Kamerún og Marokkó sýndu öli í fyrstu leikjum sínum að Afríka er komin upp að híið stóm álfanna tveggja, Evrópu og Suður-Ameríku, og það verður fróðlegt að fylgjast með því hvort einu eða fleimm þess- arra hða tekst að komast langt í keppninni. Rachid Yekini er maðurinn sem mótherjar Nígeríu þurfa aö gæta sérstaklega vel. Stormasam- urfundur Þjóðverja Berti Vogts, þjálfári þýsku heirasmeistaranna, varaði sína menn við þvi í fyrrakvöld að ef þeir héldu áfram að spfia „lif- lausa knattspyrnu" ættu þeir enga möguleika á aö verja heims- meistaratitihnn. Hann lét þessi orð faha á stormasömum hðsfundi þar sem reynt var að finna ástæðurnar fyrir því hve iha þýska hðið hefur leikið i tveimur fyrstu leikjum sínum á HM, 1-0 sigrinum gegn Bóhvíu og 1-1 jafnteflinu gegn Spáni. „Ég varð að brýna raustina. Það þarf hver einasti leikmaður í hópnum, frá númer l til 22, að leggja sig betur fram. Ég sagöi leikmönnunum að hætta að benda á mistök annarra og fara að hugleiða sín eigin. Við þurfum aö fá fram rétta hugarfarið," sagði Vogts viö fréttamenn eftir fundinn. Vogts hafði htið sagt viö sína menn fram að fúndinum en hins vegar haföi vamarmaöurinn Thomas Berthold hleypt öllu í bál og brand með þvi að segja aö lið- ið heíði spilað hörmulega gegn Spáni. Berthold gagnrýndi einnig hðsuppstihinguna og sagði að kröftum fyrirhðans, Lothars Mattháus, væri sóað í vöminni, hann ætti aö fara á miöjuna til að lífga hana við. Vogts studdi Berthold með því að segja: „Ef hann er óánægður er ekkert að þvi að hann láti það í Jjós. Þaö ógnar mér ekki, þvert á móti." Vogts hyggst hins vegar láta Mattháus leika áfram í vöm- inxú en segir að hann mætti bregða sér oftar í sóknina „Eg sagði þjálfaranum fyrir 2-3 vikum að ég væri til í aö ræða máhð ef upp kærni vandaraál á miðjunni. En á meðan miöju- mennirnir skila sínu hlutverki sé ég ekki ástæðu til breytinga," sagði Lothar Mattháus.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.