Alþýðublaðið - 12.04.1967, Qupperneq 15

Alþýðublaðið - 12.04.1967, Qupperneq 15
Ráðstefna SÞ um geimrannsóknir HVAÐA hagnýtan árangur færa g^imrannsuiknir líffra(5i, lækni'sfræði, fjarskiptum, veður- fræði eða siglingafræði? Og livað kost eiga lönd, sem ekki stunda geimrannsóknir, á að njóta á- vaxtanna af þeim? Þetta eru tvær meginspurningar sem íjall að verður um á fyrstu meirihátt ar alþjóðaráðstefnu um geim rannsóknir, sem boðað er til í Vínarborg í september næstkom- andi. Eáðstefnan er lialdin að frum kvæði Allisherjarþingsins, og er búist við að hana sæki fulitrú ar rúmlega 130 landa. Undirbún ingur er þegar hafinn. og nefnd valinna sérfræðinga er önnum kafin við tæknilega skipulagn ingu ráðstefnunnar. Geimferðaöldin er nú orðin tíu ára gömul, og þær uppgötv anir, sem gerðar hafa verið, fá þýðingu á sífellt fleiri sviðum. j í Neue Hofburg-höilinni í Vín I verður fyrst og fremst fjallað um eftirtalin atriði: Fjarskipti: Vísindaleg, tækni- leg og efnahaigsleg viðhorf við útvarps- sjónvarps og símasam böndum um gervi'hnetti, og hugs anlega notkun slíkrar tækni til að mennta íbúa vanþróuðu land anan. Veiííurfræðá: ve'ðurathuganir með gervihnöttum, og efnahags legur og félagslegur ávinningur af því að koma nupp alheims- kerfi og svæðisbundnum kerfum til veðurþjónustu og rannsókna. Siglingafræði: horfurnar á að 'aju'ðvelda siglinga'fræðihn með iaðsttíð gervihnaftta. Víbindaleg og tæknileg vandamál í sam- bandi við isiglingar um geim inn. Líffræði og læknisfræði: Hag nýting líffræðilegrar og læknis fræðilegrar reynslu utan úr geimnum og horfurnar á að færa sér hana í nyt niðri á jörð ! inni, bæði í læknisfræði, iðnaði og landbúnaði. Menntun og þjálfun: hvernig niðurstöðum geimrannsókna er miðlað í almennri og sérhæfðri kennslu. Hlutverk alþjóðastofn ana á þessu sviði. Ýmislegt annað varðandi al- þjóðlegt samstarf um geimrann sóknir verður tekið fyrir, eins og t.d. lögfræðileg, félagsleg og efnahagsleg vandamál. Til grund vallar umræðunum á ráðstefn unni munu liggja ritgerðir og iskýrslur, sem þátttökuríkin senda. Á Allsherjarþinginu í haust leið lét U T'hant framkvæmda stjórn Sameinuðu þjóðanna þá von í ljós að samtökin bæru gæfu til að gera geimrannsókn ir að vettvangi samstarfs, ög að 'þær yrðu ekki nýtt tilefni deilna. GJSFABRÉF PRÍ SUNDLAUGARSJÓÐl SKÍLfiTÚNSHEIMILISIKB ÞETTA BP.SÍF ER KYITTUN, EN l»Ó MIKLU FREMUR VIÐURKENNING FYRIR STUÐN- ING VIÐ GOTT MÁLEFNI. IITKMVX. ►. »• f.K tvnii/avgan/Ml Ská»atÍBili«/«ttÉP KSt. _ BORN munið regluna Bj.-« ‘s&rtfrjti úessar japönsku yngismeyjar frá Balletskóla Sigríðar Armann, sýna Japnaskan dans á nemendasýningum Danskennarasambands íslands í Austurbæjarbíói um þessar mundir. Þar sýna 110 nemendur úr sjö ians- og balletskólum borgarinnar. Síðasta sýn ing verður á morgun, fimmtudag kl. 17. 126 ára karl og heimtar skilnað Amerískur negri, sem var seld ur á þrælamarkaði árið 1860, hefur nýlega krafizt skilnaðar frá konu sinni - negrinn er nú 126 ára. Hann heitir Sylvester Magee og býr í Hattiesburg í Mississippi. Hann saigði, að hann hefði ætlað að sækja um skilnað löngu áður, þó að hann elski konu sína. - Kona hans hljópst á brott frá honum og neitar að koma 'heim. Magee var 109 ára, þegar yngsta dóttir hans fæddist. Þeg ar hann varð 124 ára heiðraði borgarstjóri í Mississippi hanr með því iað sérstakur Sylvester Magee-dagur skyldi ái'lega hald inn hátíðlegur í borginni. Magee man vel eftir því, þeg ar hann særðist í orustinni við Vicksburg, þá barðist hann í bandarísku borgarastyrjöldinni. Þegar hann var 19 ára 1860 var liann seldur á þrælamarkaði. Kaupandinn var plantekrueig- andi í Mississippi. Vörusýning Frh. af 2. síðu. Pólska sýningardeildin, sem er um 500 fermetrar, er á vegum Verzlunaráðs Póllands og verða þar sýningarmunir frá 8 útflutn ingsmiðstöðvum. Sýningarsvæði Ungverjalands SERVIETTU- PRENTUN SÍMI 32-101. er 150 fermetrar og sýna þar 4 útflutningsfyrirtæki, en verzlunar ráð Ungverjalands sér um svning una fyrir þær. 6 útflutningsmiðstöðvar í þýzka Alþýðulýðveldinu sýna á 320 fer metra svæði og íslenzkir umboðs menn þessara miðstöðva sjá um sýninguna í samstarfi við umbjóð endur sína. Meðan sýningin stendur verða daglega kvikmyndasýningar á smá myndum frá þátttökuríkjunum — Veitingasalur verður starfræktur í sýningarskálanum og verður í honum komið fyrir sýningu á pólskum auglýsingaspjöldum (pla kötþ en í þessari listgrein standa Pólverjar mjög framax-lega. í sambandi við sýninguna kem ur hingað fjöldi fulltrúa frá hin um erlendu fyrirtækjum, sem gefa upplýsingar um verð og afgreiðslu á framleiðsluvörunum. Forseti ísiands heið ursgestur sýsiingar ifiinar. Vörusýningin vei'ður opnuð laug ardaginn 20. maí fyrir boðsgesti sem munxi verða um 600 talsins. Dr. Gylfi Þ. Gíslason viðskipta málaráðherra, sem er verndari sýn ingarítmar, mun opna sýninguna með ræðu, en auk þess munu borgarstjórinn í Reykjavík og for maður Verzlunarráðs íslands flytja stutt ávörp. Sýningin verð ur síðan opin almenningi frá kl. 16. sama dag, en síðan daglega kl. 14—22 e.h. Forseti íslands, herra Ásgeir Ásgeirsson, verður heiðursgestur sýningarinnar. Framkvæmdastjóri sýningarinn ar vei’ður Óskar S. Óskarsson, auk forstöðumanna Kaupstefnunn ar ísleifs Högnasonar og Hauks Björnssonar. Tilboð óskast í sölu á vatnsmælum fyrir Vatns veitú Vestmannaeyja. TJtboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri. Kópavogur Vantar blaðburðarbörn í Vesturbæ. Upplýsingar í síma 40753. 12. apríl 1967 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 15

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.