Alþýðublaðið - 15.04.1967, Side 10
Bonnstjórnin
Frh. af 5. síöu.
Ungverjar muni fresta áformum
sínum um að taka upp stjórn-
málasamband við Bonnstjórnina
um langan tíma þrátt fyrir alla
vináttusamninga við Pólverja og
Austur-Þjóðverja, ef þeir hefðu
mikinn ávinning af því að koma
á tengslum við Vestur-Þjóðverja.
En aftur á móti mundu stóru
löndin í Varsjárbandalaginu
haldá áfram að reyna að þvinga
smærri löndin til að halda á-
fram að fjandskapast við Vestur-
Þjóðverja meðan þeir breyta
ekki afstöðu sinni í grundvallar-
atriðum.
Næsti mikilvægi stjórnmálaat-
burðurinn í Austur-Evrópu
verður þing austur-þýzka komm-
únistaflokksins, sem hefst á
mánudaginn í Austur-Berlín. Þar
mun Leonid Bresjnev, aðalritari
sovézka kommúnistaflokksins
mæta ásamt öðrum austantjalds-
leiðtogum, en óvíst er hvort Rú-
menar láti sjá sig, svo stirð hef-
ur sambúð Rúmena og Austur-
Þjóðverja verið síðan Rúmenar
komu á stjórnmálasambandi við
Bonnstjórnina. Enn.á ný verður
lögð áherzla á samstöðu Austur-
Þjóðverja og annarra kommún-
istalanda og ráðizt á Vestur-
Þjóðverja. Austur-Þjóðverjum
verður sennilega einnig heitið
efnahagsaðstoð, en nú er reynt
að gera Austur-Þýzkaland að
„efnahagsundri” Austur-Evrópu
þrátt fyrir misfellurnar í stjórn-
arfarinu.
★ RÁÐSTEFNA í KARLS-
BAD.
• Frá Austur-Berlín halda leið-
togar Varsjárbandalagsins, aðrir
en Rúmenar, til Karlovry Vary
(Karlsbad) í Tékkóslóvakíu að
sitja fund æðstu manna komm-
únistaflokka Evrópu. Á fundin-
um, sem hefst 25. apríl, verður
rætt um öryggismál Evrópu og
Þýzkalandsmálið og ekki hvað
sízt um „einingu” kommúnista-
hreyfingarinnar og andstöðuna
til annarra vinstri flokka í V,-
Evrópu.
ítalir, sem eru lítt hrifnir af
ráðstefnum kommúnistaleiðtoga,
sendu nýlega leiðtoga sinn, Lu-
igi Longo, til Moskvu og telja
áð tekizt hafi að koma í veg fyr-
ir að ákveðnar verði víðtækar
aðgerðir á fundinum í Karlov-
fy Vary, sérstaklega gagnvart
Kínverjum.
’ Aftur á móti leikur enginn
ýafi á því, að á ráðstefnunni verð
úr lögð áherzla á samstöðu
kommúnista gegn Vestur-Þjóð-
yerjum, enda hafa hvorki ítalir
né Frakkar neitt á móti því.
Þau tvö lönd, sem hafa farið
eigin götur, Rúmenía og Júgó-
álavía, virðast ekki hafa látið
telja sig á að senda fulltrúa til
Karlovry Vary. Með þessari ráð-
sjtefnu lýkur vetri mikilla stjórn-
málastarfsemi í Austur-Evrópu.
Starfsskilyrði listamanna
EFTIR GYLFA Þ. GÍSLASON
Úthlutun listamannalauna
hefur löngum verið mikið
deiluefni. Ótal greinar hafa
verið skrifaðar um málið í
blöð og timarit, og það hefur
árum saman verið rætt á Al-
þingi. En aldrei hefur náðst
nægilega víðtækt Samkomulag,
hvorki meðal listamanna
sjálfra né stjórnmálamanna,
um fastari skipan þessara mála
hvað þá lagasetningu um þau.
Ýmsir hafa því með réttu
undrast, að frumvarp um laga
setningu um þessi efni skuli
vera að ná samþykki á Al-
þingi, án nokkurra teljandi
deilna, og virðast listamenn yf
irleitt vera þeirra skoðana,
að lagasetningin sé til mikilla
bóta þótt enn sýnist mönnum
auðvitað sitthvað um ýmislegt,
eins og við er að búast.
Efni málsins hefur verið rak
ið í blöðum, svo að ég ætla
ekki að víkja að því hér. Á
hitt vildi ég minnast, að í við
ræðum, sem ég átti við stjórn
Bandalags íslenzkra listamanna
í sambandi við undirbúning
málsins, var af hálfu Bandalags
ins sett fram sú hugmynd, að
komið yrði á kerfi starfsstyrkja
handa listamönnum, þ. e. að
listamenn gætu átt kost á laun
um eða styrk í tiltekinn tíma
meðan þeir væru að vinna að
tilteknu verkefni. Ríkisstjórnin
tók þessari hugmynd vel og
samþykkti. að ég skyldi skipa
nefnd til þess að athuga þetta
mál. Mun ég gera það, strax
og Alþingi lýkur.
í þessu sambandi er einnig
rétt að minnast, að í frum-
varpi um nýskipan greiðslu
skólakostnaðar af hálfu rikis-
og sveitarfélaga er ráð fyrir því
gert, að menntamálaráðuneytið
geti ákveðið listskreytingu
skóla, að fenginni umsögn
bæjar- eða sveitarstjómar og
megi verja i þessu skyni allt
að 2% byggingarkostnaðar. þó
ekki hærri upphæð en
500.000 kr. fyrir hverja bygg-
ingu. Er þetta í fyrsta sinn,
sem gert er ráð fyrir lögfest-
ingu heimildar til listakreyt-
inga opinberra bygginga. En
jafnframt er hér einmitt um
að ræða þess konar starfs
styrki, sem Bandalag íslenzkra
listamanna hefur óskað eftir.
Málarar og myndhöggvarar
munu fá verkefni við sér-
hverja skólabyggingu og
greiðslu fyrir starf sitt. En í
slíku er fólginn hinn æskileg
asti stuðningur við list og lista-
menn í landinu.
Leiktu aldrei ..
íramhald úr opnu.
fíæstu ár lék hann í mörlgum
evrópskum kvikmyndum, en mest
lék hann þó á leiksviði. Árið 1960
fár hann til Parísar og hitti þar
franska leikstjórann Francois
|*0 15. apríl 1967 - ALÞÝÐUBLAÐID
Truffaut og lék í mynd hans Jules >
and Jim, sem varð mjög vinsæl. j
Árið 1961 lék hann aðalhlutverk j
ið í Henry V. í Burgtheater. 1963
fór hann með sinn eigin leikflokk
til Parísar til að leika Torquato
Tasso.
í París hitti hann Stanley Kram-
er, sem þá var einmitt að leita að
leikara í The ship og Fools, og
Werner varð fyrir valinu. Fyrir
leik sinn í þeirri mynd varð hann
heimsfrægur.
Síðan kom hlutverkið í Njósn-
arinn, sem kom inn úr kuldan-
um, en þar lék hann austur-þýzk-
an njósnara. í fyrra kom svo Wern
er til Englands til að leika í mynd
inni „Brennipunkt Fahrenheit
451“. í þeirri mynd leikur Julie
Christie bæði konu hans og ást-
mey.
Þó að Werner hafi unnið marga
sigra á hvíta tjaldinu, virðist skoð
un hans á Hollywood ekkert hafa
breytzt.
Og Werner segir: Leikstjórinn
Max Reinhardt sagði einu sinni:
„Ef þú vilt vera sannur leikari,
leiktu' aldrei. Hvorki í lífinu né á
svið-inu.“ Þessi orð trúi ég á.
Iþróttablaðið
Frh. af 11. síðu.
greinar um starfsemi ÍSÍ,
frjálsar íþróttir, knatt-
spyrnu, handknattleik, körfu
knattleik, skíðaíþróttir,
glímu, sund, badminton,
golf, skautaíþróttir og skot-
fimi.
Þá er einnig komið út
fyrsta blaðið, sem hinn nýi
ritstjóri sér um, marzhefti.
í því er grein um ÍSÍ 55
ára, viðtal við austurríska
skiðaþjálfarann Herber
Mark, grein um Magnús
Guðmundsson, skíðakappa,
grein um skíðastökkvarann
Bjorn Wirkola, íþróttaann-
áll er í blaðinu o.fl. efni.
Handknattleikur
Frh. af 11. siðu.
í 1. deild á næsta keppnistíma-
bili.
Einnig mun fara fram 1 leikur
í 2. deild karla milli ÍR og KR,
en sá leikur hefur enga þýðingu
þar eð KR hefur sigrað.
Afhending verðlauna til sigur-
vegara í mfl. karla og kvenna og
til þess lið er verður nr. 2 í mfl.
karla fer fram í Lídó en um loka
hóf íslandsmótsins sér Knatt-
spyrnuíélagið Valur.
LesiÖ AlþýðublaðiS
Augiýsið í Aiþýðublaðinu
Frá Búrfellsvirkjun
Á næstunni þarf að ráða vegna verktaka:
1. 4 pípulagningamenn.
2. 3 rafsuðumenn.
3. 5 rafsuðumenn með sérrafsuðupróf
(Certificate).
4. 4 verkamenn.
FOSSKRAFT
Suðurlandsbraut 32 — Sími 38830.
Tvöfalt gler - Tvöfalt gler
Þið fáið tvöfalda einangrunarglerið með ótrúlega stuttum
fyrirvara.
GLUGGAÞJÓNUSTAN
Hátúni 27 — Sími 12880.
/ Gluggaþjónustunni Hátúni 27:
Allar þykktir af rúóugleri, litað gler, falleg munstur
Sjáum um ísetningu á öllu gleri.
Sími 12880.
»L-