Alþýðublaðið - 15.04.1967, Side 11
| Ingi Gunnars-
- r
son, IKF
s Ingi er 35 ára og aldursfor-
| seti leikmanna í> fyrstu
| deild, en liann hefur æft og
I keppt með liði sínu ÍKF,
| þar til nýlega, að hann
| varð að hætta keppni vegna
| meiðsla. Hann kynntist fyrst
i körfuknattleik um 1950, en
| þá var hann við störf fyr-
| ir varnarliðið á Keflavíkur-
| flugvelli. og var einn af
I stofnendum ÍKF, sem m.a.
| varð íslandsmeistari á þeim
| árum. Ingi hefur lengst af
| verið þjálfari meistara-
i flokks, en hefur riú mikið
= til snúið sér að þjálfun og
| uppbyggingu yngri flokka
1 félagsins og hefur unnið þar
i mikið og gott starf. Hann
= var í fyrsta landsliðinu,
| sem lék við Bani í Kaup-
= mannahöfn 1959, og var þá,
i sem endranær, aðal drif-
= fjöður liðs síns.
I.R. úthlutað landi fyrir
íþróttasvæði í Fossvogsdal
Anægjulegt afmælishóf / til-
efni 60 ára afmælis félagsins
ÍR-ingar héldu hátíðlegt 60 ára
afmæli félagsins með hófi í Lídó
föstudaginn 7. apríl. Gunnar Sig-
urðsson, formaður ÍR bauð gesti
velkomna me'ð stuttu ávarpi, en
veizlustjóri var Reynir Sigurðs-
son.
Margar ræður voru fluttar, m.a.
talaði menntamálaráðherra dr.
Gylfi Þ. Gíslason. Hann árnaði fé-
laginu allra heilla og þakkaði því
gott starf í 60 ár. Borgarstjórinn
í Reykjavík, Geir Hallgrímsson
las upp samþykkt, sem gerð hafði
verið í borgarráði og hljóðar á
þessa leið: ,,í tilefni 60 ára af-
mælis ÍR hefur borgarráð ákveð-
ið samkvæmt tillögum skipu-
lagsnefndar og íþróttaráðs, að út-
Fram og FH leika til
úrslita annaö kvöld
íslandsmótinu lýkur. með hófi
í Lídó á sunnudagskvöld
'Á sunnudagskvöldið verða síðustu
leikir íslandsmótsins í 1. deild
karla háðir. Þá leika Ármann og
Haukar og síðan úrslitaleikurinn
milli FRAM og FH. Verð aðgöngu
miða er í stæði kr. 100,— og 25.—
og stólsæti kr. 150.— og 125.—.
Lið Fram og FH er leika til
úrslita á sunnudagskvöldið er sem
hér segir:
| Ritstjóraskipti |
| við íþróttablaðið |
= Ritstjóraskipti hafa orðið i
\ ' við íþróttablaðið, blað ÍSÍ, [
| þeir Hallur Símonarson og I
1 Örn Eiðsson, sem ritstýrt \
| ‘ hafa blaðinu í rúm 4 ár !
jj hafa látið af störfum, en f
f við hefur tekið Þórður B. |
= Sigurðsson.
Síðasta blaðið, sem þeir §
= Hallur og Örn sáu um var I
f 1. tbl. þessa árs, sem er I
L 'einskonar annálsblað og hef I
| ur komið í stað Árbókar |
f íþróttamanna. Blaðið er 92 f
| bls. og í því eru yfirlits- |
Frh. á 10. síðu. f
i iii lil iuiiii iii imuuNHi ii 111111111111111111 iii 1111111 iii
•k Lið Fram
Þorsteinn Björnss.
Arnþór Óskarsson.
Ingólfur Óskarsson.
Gunnlaugur Hjálmarsson.
Gylfi Jóhannsson.
Sigurður Einarsson.
Guðjón Jónsson.
Tómas Tómasson.
Hinrik Einarsson.
Sigurbergur Sigursteinsson.
Pétur Böðvarsson.
★ Lið FH
Kristófer Magnússon.
Birgir Finnbogason..
Birgir Björnsson.
Einar Sigurðsson.
Örn Hallsteinsson.
Geir Hallsteinsson.
Árni Guðjónsson.
Jón G. Viggósson.
Ragnar Jónsson.
Páll Eiríksson.
Auðunn Óskarsson.
Sunnudaginn 16. apríl verða
síðustu leikir í yngri flokkunum
Ieiknir. í meistaraflokki kvenná
leika:
Fram — KR.
Ármann — Víkingur.
Valur - FH.
Leikurinn milli Vals og FH er
úrslitaleikur í m.fl. kvenna. Þá
fer fram úrslitaleikur í 2. flokki
karla og eigast við Valur — Fram.
Afhending verðlauna mun einnig
fara fram, en sigurvegarar í eft-
irtöldum flokkum eru þessir:
2. fl. kvenna KR.
3. fl. karla FRAM.
1. fl. karla FRAM.
í 2. deild kvenna urðu sigur-
vegarar BREIÐABLIK, er leikur
Frh. á 10. síðu.
hluta félaginu land undir íþrótta-
svæði í austurhluta Fossvogsdals
samkvæmt nánari skilmálum borg
arverkfræðings“. Þessum boðskap
var fagnað mjög af hátíðargestum.
Borgarstjóri flutti ÍR einnig þakk-
ir og árnaðaróskir í tilefni afmæl-
isins.
Gísli Halldórsson, forseti ÍSÍ
flutti þakkir íþróttasambandsins
og óskir um glæsilega framtíð.
Hann afhenti félaginu að gjöf fagr
an vasa. Einar Sæmundsson, for-
maður KR flutti ÍR kveðjur allra
íþróttafélaganna í höfuðborginni,
sem ÍR á samskipti við, og afhenti
gjöf. Þá steig í ræðustólinn Stef-
án Kristjánsson, formaður Skíða-
sambands íslands og þakkaði ÍR
gott samstarf í nafni sérsambands I
ÍSÍ, sem ÍR á aðild að. Hann af-
henti félalginu gjöf. Jón Kaldal
gaf fagran bikar, sem keppt verð-
ur um í 500 m. hlaupi og Davíð
Sigurðsson gaf einnig glæsilegan
bikar, sem skal veita til eflingar
fimleikum innan ÍR. Loks flutti
Sigurpáll Jónsson minni ÍR.
Forseti íslands, herra Ásgeir
Ásgeirsson, sem er gamall ÍR-ing-
ur sendi félaginu heillaskeyti, sem
lesið var upp í hófinu við mik-
inn fögnuð gesta.
Margir ÍR-ingar voru heiðraðir
í . afmælishófinu. Þeir Sigurpáll
Jónsson og Sigurður Steinsson
hlutu stórriddarakross ÍR fyrir
frábær störf í þágu félagsins í
meira en 26 ár. Eftirtaldir menn
hlutu riddarakross ÍR fyrir vel
unnin störf í þágu félagsins X
meira en 20 ár, Ragnar Þorsteins-
son, Atli Steinarsson, Reynir Sig-
urðsson og Örn Eiðsson.
Gullkross ÍR með olympíu-
hringjunum áfestum, sem veittur
er þeim ÍR-ingum, sem þátt taka
í Olympíuleikjum, hlutu þau
Hrafnhildur Guðmundsdóttir og
Jón Þ. Ólafsson, fyrir þátttöku í
Tokyoleikunum 1964. Guðmundur
Gíslason sem einnig tók þátt í
Olýmpíuleikjunum 1964 hafði
hlotið þennan heiður fyrir þátt-
töku i Rómarleikjunum 1960, e»
krossinn er aðeins veittur einu
sinni.
Gullkross ÍR, sem veittur eí
fyrir gott starf í þágu félagsins
í 15 ár hlutu: Gísli B. Kristjáns-
son, Rúnar Bjarnason, Þorleifur
Einarsson, Magnús E. Baldvins-
Framhald á 14. síðu
Víðavangshlaup
Hafnarfjaröar
Víðavangshlaup Hafnarfjarðar
1967 fer fram við barnaskólann við
Skólabraut á sumardaginn fyrsta,
og hefst keppnin kl. 4. Hlaupa-
leiðin verður svipuð og undanfar-
in ár. Keppt verður í þrem flokk-
um drengja 17 ára og eldri, 14—
16 ára og 13 ára og yngri. Þá
verður keppt í tveim flokkum
stúlkna, 12 og eldri og 11 ára og
yngri. Lúðravseit Hafnarfjarðar
leikur áður en hlaupið hefst.
Væntanlegir þátttakendur til-
kynni þátttöku í verzl. V. Long
fyrir n.k. þriðjudagskvöld.
Frá afmælishófi ÍR í Lídó. Gunnar Sigurðsson, formaður ÍR afhendir Sigurði Steinssyni og SigurpáH
Jónssyni stórriddarakross ÍR.
»1
15. apríl 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ