Alþýðublaðið - 26.04.1967, Blaðsíða 13

Alþýðublaðið - 26.04.1967, Blaðsíða 13
Siini £1888 Lögregian í St. Pauli. Hörkuspennandi og raunsæ ný þýzk mynd er lýsir störfum lög reglunnar í einu alræmdasta liafnarhverfi meginlandsins. Sýnd kl. 5, 7, og 9. Bönnuð börnum. Fræg japönsk kvikmynd. Leikstjóri, Kon Iohikawa. Sýnd kl. 9. Bönnuð börnum innan 16 ára. Hflassey Fergusosi ÐHÁTTARVÉLA og GRÖFUEIGENBUR Nú er rétti tíxnmn til a6 láta yfirfara og gers við vélamar fyrir vorið. Massey Ferguson-víð- gerðaþjónustu annast Vélsmiðja Eysteins Leifssonai hf. Síðumúla 17. sími 30662. Sigurieir Sigurjónsson Málflutningsskrifstofa Óðinsgötu 4 — Sími 11043. SMURSTÖÐIN gietúni 4 — Síml 16*2-27 Bniinn er smurðúr fljóít og vrf. 8í4jœu ailaf tcguufllr af tfmurollU' AUGLÝSID í Aiþýðublaðinu Framhaldssaga eftir Nicholas Johns FANGI ÓTTANS hún lagði höndina á öxl hans og toún skildi að iiann var meðvit- undarlaus. Hún flýtti sér að hreinsa sárið á enni hans ög búa um það meðan hún virti liann fyrir sér. Hann virtist hafa þjáðst mikið eða þá verið alvarlega sjúk ur. Hún hafði aldrei séð hann fyrr en hann leit ekki út fyrir að vera innhrotsþjófur. Hann var alltof vel búinn. Föt hans voru vel snið in og virtust vera úr góðu efni. Hún hugsaði hratt. Nú var rétta stundin til að liringja til lögregl- unnar. Síminn var í forstofunni. Eftir augnablik liafði hún náð sambandi við Jolinson lögreglu- þjón, sem bjó í þorpinu. — Gott og vel ungfrú Galton. Við komum strax. Reynið að Ihalda manninum á meðan! Hún gekk aftur inn í eldhúsið og virti meðvitundarlausan mann inn fyrir sér. Hún var enn lirædd við hann og þegar toann bærði á sér vætti toún þurrar varir sínar með tungubroddinum. Af hverju kom Jolinson ekki? Hún stökk á fætur þegar maður- inn opnaði augun. Haiin virti toana fyrir sér eins og hann væri að innprenta hverja svipbreyt- ingu hen-n.ar í huga sér. — Nú . . . nú mari ég, sagði hann. — Verið kyrrir! tovæsti hún. — Það voruð þér, sem flæktuzt toér! Hún greip skörunginn. — Ver- ið kyrrir. Ég hef hringt á lög- regluna. Þeir koma lá , hverri stundu. — Hvað hafið þér gert? spurði hann. — Hafið þér hririgt 'á lög- regluna? Hann hrópaði hátt og Hervey áleit að hann væri með óráð. Hann reis á fætur. — Ég vil ekki sjá lögregluna. Þér eruð asni. Hún hörfaði fáein spor en hún hafði enga ástæðu til að óttast. Hann hafði ekki krafta til að elta hana heldur settist aftur. Um leið ók bíll upp að húsinu og karlmannsrödd hrópaði: — Ungfrú Galton? — Ég er í eldhúsinu, lögreglu- þjónn. Johnson lögregluþjónn, sem Hervey hafði þekkt alla ævi, kom inn ásamt öðrum lögreglu- þjóni. — Er þetta innbrotsþjófur- inn? Maðurinn í stólnum stundi há- stöfum. — Innbrotsþjófur! Ég hef ekkert innbrot framið. Ég skil ekki hvers vegna þelta heimska stelpuflón var að hringja til ykkar. Hann reyndi aftur að rísa á fætur og nú leit út fyrir að hann væri styrkari. Hann leit af Hervey á lögreglu- þjóninn. — Hér er um misskiln- ing að ræða. Það var ekki svo auðvelt að sannfæra Johnson. — Ungfrú Galton segir að þér hafið brotizt hér inn. — Ég brauzt ekkert inn, sagði maðurinn hneykslaður. — Ég hef lykil að útidyrunum. Hann stakk hendinni í vasann. — Hér er hann. Ég fékk hann hjá fast- eignasalanum í London sem sér um að selja Dale búgarðinn. Hervey blóðroðnaði þegar hún skildi hve heimskulega hún hafði hagað sér. — En . . . en klukkan er að iganga tólf! Hvers vegna komið þér svo seint til að líta á búgarð- inn? .)■■■■■■■■■!)■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ 2 Hvöss augu mannsins litu aft- ur á hana. ' — Billinn minn bilaði tíu míl- ur héðan og ég varð að fara hing að með strætisvagninum. Hann leit aftur á lögregluþjóninn sem var að setja vasabók sína í buxna vasann. — Ég heiti Manning — Christopher Manning, og ef þér óskið eftir nafnskírteini og frek- ari upplýsingum, get ég lagt það fram ásamt bréfi frá fasteigna- salanum. Johnson brosti. — Það er ó- þarfi, herra. Þetta er auðsær misskilningur. Hervey var enn hlóðrjóð. Hún gekk til mannsins. — Fyrirgefið mér, sagði hún. — Ég hef hag- að mér afar heimskulega. — Það má nú segja, sagði Christopher Mannings stuttur í spuna og snéri í hana hakinu. — Má ég sitja í hjá yður í bæ- inn, lögregluþjónn? Ég tek her- bergi á leigu í nótt og sæki bíl- inn minn á morgun. Hervey var leið í skapi þegar hún gekk að litla húsinu. Að vísu hafði hún komið heimsku- lega fram en þess vegna þurfti maðurinn ekki að vera svona ó- kurteis. Hann hafði ekki litið meira við henni heldur látið sem hún væri ekki til. Það hefði mátt álíta að það væri afbrot af henni að fara að aðgæta hvernig gengi á búgarðinum. Skyndilega kom henni til hug- ar að það hefði verið undarhs^t livernig Christopher Manning brást við þegar hún minntist á lögregluna. Viku síðar þegar Harvey kom heim í mat var fasteignasalinn frá London að tala við móður hennar. Eftir lát föður síns hafði hún unnið hjá Berring lækni í borginni Torsmoor skammt frá heimili þeirra. — Hr. Naylor var að segja okkur að búgarðurinn sé seld- ur, sagði móðir hennar um leið og hún kom inn um dyrn ar. Hervey brosti og lagði hug- hreystandi höndina á öxl móð ur sinnar. — Taktu það ekki svona nærri þér, mamma. Við viss- um alltaf að það hlaut að verða. Búgarðurinn hefur verið til sölu í fleiri mánuði. Fasteignasalinn, grannvaxinn, beinaber maður sem talaði hratt og hreyfði sig enn hraðar og virtist alltaf hafa mikið að gera tók í hönd Hervey. — Ég er feginn að vera bú- inn að selja Dale búgarðinn. Ég hélt mér myndi ei takast það. Kaupandinn heitir Christopher* Manning, mér skilst þér hafið hitt hann? Hann leit undur- furðulega á Hervey. — Já, svaraði hún stuttara- lega. — Hvenær flytur hann? — í vikulokin. — Er liann bóndi? spurði frú Galton. — Mér þætti leitt ef Dale búgarðurinn færi í nið urnízlu. Maðurinn minn . .. Hr. Naylor var að flýta sér og hann beið ekki eftir að frú Galton talaði út. — Það sem ég bezt veit hefur hr. Manning aldrei hugsað um búskap fyrr. Uann er endurskoðandi. Hervey hrukkaði ennið. — Því gerist hann þá bóndi skyndi iega? Fasteignasalinn yppti öxlum. — Það veit ég ekki. Kannske af heilbrigðisástæðum. En ég verð að hraða mér ef ég á að ná í lestina. Við dyrnar leit hann um öxl. — Hr. Manning er afar fámáll um sína hagi. Frú Galton fylgdi fasteigna- salanum til dyra og Hervey heyrði hana segja: — Hvað verður um húsið hérna, hr. Nay ior? Veit nýi eigandinn að við búum hér? — Já, ég minntist á það, en hann svaraði engu. Ég geri ráð fyrir að þér fáið að búa hér áfram frú Galton. Nema hann fái sér ráðsmann. Við verðum að bíða og sjá livað verður. Hervey fann til með móður sinni og hún tók um axlir henn ar. — Hafðu ekki áhyggjur, mamma. þetta fer allt vel, sagði hún hughreystandi. Eldri konan fékk tárin í aug- un. — Gráttu ekki, mamma, sagði Hervey. — Ef til vill væri bezt að við flyttum héðan. Það verður of erfitt fyrir þig að sjá eigandaskipti á búgarðin- um. Ég hef margsagt það við þig. Móðir hennar þerraði tárin úr augunum. — Ég veit það líka vina mín. En ég kom hing að sem nýgift og hér hefur lieimur minn verið. Ég hugga mig við að ég sé óðalið út um gluggann og ef til vill leyfir hr. Manning mér að koma þang að af og til. Hún reyndi að brosa. — Það gerir hann áreiðan- lega, sagði Hervey þótt hún ef aðist sterklega um það. Hún gat ekki ímyndað sér eftir þá viðkynningu, sem hún hafði af Christopher Manning, að hann yrði skemmtilegur nágranni. Og auk þess myndi það án efa taka tímann sinn fyrir hann að fyrir gefa henni þau hræðilegu mis tök sem hún hafði gert sig seka í við fyrstu fundi þeirra. Allan daginn hugsaði hún um Christopher Manning. Undar- legt svo oft sem hún hafði hugs að um hann undanfarna viku og allt.af fannst henni hann dular- fyllri og dularfyllri. Hann var endurskoðandi, van ur að sitja á skrifstofu og vinna með tölur og nú ætlaði hann að setjast að á afskekktum staS uppi í sveit. Og það gat ekki verið að hann vissi neitt um landbúnað — það var blátt á- fram óhugsandi. Hervey hafði einnig áhyggj ur af móður sinni og hún ósk- aði þess að þær hefðu verið löngu fluttar til annars lands- hluta. Það myndi aðeins ýfa upp sárið að annar flytti inn á búgarðinn. Hervey var afar niðurdreginn þegar hún fór úr vinnunni heim leiðis. Það vgr dimmt og hún gekk bak við húsið til að sækja hjólið sitt en fann það hvergi. Fyrst hélt hún, að því hefði verið stolið en svo kom maður til hennar. — Ertu að leita að hjólinu þinu? Hervey? Hún gretti sig þegar hún sá að þetta var Ned Stokes. Hann rétti henni hjólið og brosti breitt. Hann var í þykkri peysu sem gerði liann enn stórkost- legri en ella. — Hvað ert þú að gera með hjólið mitt? spurði hún. — Ekkert, hló hann. — Ég tók það bara til að tryggja mér a,ð þú hlyoist ekki á brott áður . en ég næði í þig. — Ned, ég hef margt sagt þér .... — Ég labba með þér heim og 26. apríl 1967 - ALÞÝÐUBLAÐK) 13

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.