Alþýðublaðið - 10.05.1967, Side 2
Alþýðuflokkskonur halda
skemmtun fyrir aldrað fólk
Kvenfélag Alþýðuflokksins
stóð fyrir kaffikvöldi fyrir aldr
að fólk sl. mánudagskvöld í
Iðnó og vai’ húsið þéttskipað.
Þegar blaðamaður og ljósmynd
ari Alþ.bl. komu þangað í heim
sókn um tíuleyt'ið ríkti mikil
kátína í salnum, enda voru
þeir Klemenz Jónsson og Árni
Tryggvason að flytja gamanþátt
á sviðinu. Margt fleira var til
skemmtunar meðan setið var
að kaffidrykkju. Fyrst var sýnd
kvikmyndin Svipmyndir frá
Reykjavík, síðan flutti Aðal-
björg Sigurðardóttir fróðlegt-
erindi um mismun gamla og
nýja tímans og 3 stúlkur sungu
og spiluðu á gítar. Á eftir kom
svo danshijómsveit á sviðið og
dans var stiginn.
Það var auðséð að aldraða
fólkið naut vel skemmtunarinn
ar. Við tókum nokkra af gest
unum tali.
—Já ég hef undanfarið kom
ið árlega á skemmtun Alþýðu-
flokksins fyrir gamla fólkið,
Sigurður Guðmundsson 85 ára
að aldri. Og ég hef alltaf
skemmt mér vel, mér finnst
alltaf gaman að skemmta mér
ekki sízt' með ungu fólki. Mað
ur skemmti sér ekkert ungur
þá var eintóm vinna. Aðal-
skemmtunin okkar í gamla
daga var að jsigla skeljum
lagði hrdlu bgkj zðónleikmiiý
og fara í þönglastríð. Unga
fólkið í dag kannast' sjálfsagt
Sigurður Guðmundsson.
Sigurður Hreinsson.
ekkert við þann leik. Við rif
um upp þöngla af skerjunum
og tveir strákar fóru í þöngla
stríð. Annar lagði sinn þöng
ul í sandinn og hinn sló á
þöngulhausinn og sá vann, sem
sló af flesta hausana. Við söfn
uðum líka skeljum og fórum í
sjóorrustur. Við fleyttum skelj
unum undan vindi og annar
merkti sínar skeljar með kuð
ung eða skeljabroti og hinn
með steini. Sá, sem fékk fleiri
af sínum skeljum að landi,
vann. — Já, þetta voru nú
helztu skemmtanirnar okkar á
mínum unglingsárum.
Næst hittum við að máli Sig
urð Hreinsson.
— Ég hef komið á skemmtan
irnar hérna hjá kvenfélagskon
unum sl. 4 ár og alltaf líkað
stór vel, enda vildi ég alls ekki
missa af skemmtuninni í kvöld
Það leit' þó ekki út fyrir að ég
gæti komizt, þar sem ég vinn
vaktavinnu í Sundhöllinni og
átti að vera á vakt í kvöld ég
þurfli því að fá mann til að
vera fyrir mig og borga honum
fyrir það.
Lilja Björnsdóttir, skáldkona
var sú næsta, er við tókum tali
— Ég hef komið á hverja
gamalmennaskemmtun hér í
mörg ár, segir Lilja, og maður
hlakkar til þess lengi að koma
hingað.
— Hcfurðu ekki ort einhverj
ar vísur um skemmtanirnar,
Lilja?
— Það var í fyrra, að hann
Sveinn Víkingur kom hér og
talaði meðal annars um það
að fólk gæti alveg eins gift sig
um nírætt' eins og fyrr. Þá kast
aði ég fram þessari vísu:
Það er sárt að sofa ein
og sorgaróðinn skriía,
ef ég fengi séra Svein,
sæl ég mundi lifa.
Svo er hérna vísa til heiðurs
Aðalbjörgu Sigurðardóttur, en
ég met Aðalbjörgu mjög mikils
og hef oft hlustað á hana mér
til gagns og ánægju:
Bezt hún skilur málin mörg
máttug orðin hljóma.
Alltaf verður Aðalbjörg
okkur bezt til sóma.
Svo er hérna ein vísa enn.
Það gekk maður fram hjá mér,
sem mér leizt vel á og leit hann
til mín. Þá varð mér að orði.
Það er svona þar og hér,
þýðir glampar loga,
enn þá sendir Amor mér,
ör af sínum boga.
Lilja Björnsdóttir
—Hefurðu ekki ort eitthvað
hérna í kvöld?
— Jú, hún Soffía Ingvarsdótt
ir sat' hérna hjá okkur gömlu
konunum og mér fannst hún
ekki eiga þar heima. Þá orti
ég:
Soffía, heiðursfrú, hugljúf og
þekk,
í hug mínum vegleg þú gnæf
ir
Ég kann ekki við þig á kerl
ingabekk
konu, sém öndvegið hæfir
Og svo Ijúkum við þessu
spjalli með vísu Lilju Björns
dóttur, þar sem hún ber fram
þakklæti til skemmtinefndar
Kvenfélagg Alþýðuflokksins.
Þýðar fram ég þakkir ber,
þannig stefið hljóðar,
yndislegt er alltaf hér,
elsku frúrnar góðar.
Sigurbjörn Guðjónsson og Olafía Magnúsdóttir hafa alltaf sótt'
skemmtanirnar undanfarin ár.
2 10. maí 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Stefna
Rússa
harðari
Moskvu 9. maí (NTB).
Erlendir fréttaritarar í Moskvu
telja að breyting hafi orðið á af
stöðu sovétstjórnarinnar í utan-
ríkismálum, meðal annars í af
stöðu hennar til Kína og Vestur-
Þýzkalands, ef dæma eigi eftir
greinum er birtar voru í blöðum
í Moskvu í morgun.
í greinum sovézkra marskálka
Framhald á 15. síðu.
’ STEFNU-
BREYTING
INAIO
París 9. 5. (NTB-Reuer).
Landvarnaráðherrar NATO-ríkj
anna urðu ásáttir upi það á fundi
í dag að endurskoða bæri skipu-
lagningu varnarmála bandalagsins
í samræmi við breytt viðhorf í al
þjóðamálum vegna hinnar minnk-
andi spennu í sambúð austurs og
vestur.s.. Frakkar áttu ekki full-
trúa á fundinum.
Ráðherrarnir’ urðu ásáttir um,
að stefna bæri að því að hafa 20
herfylki í Evrópu, áður hefði ver-
ið að því stefnt að hafa 30 herfylki
Framhald á 15. síðu.
Nýr forseti
í Indlandi
Nýju Delhi 9. 5. (NTB-Reuter).
Zakir Husain fyrrum varafor-
seti var í dag kjörinn forseti Ind-
lands. Husain sem var frambjóð
andi Kongressflokksins og verður
fyrsti Múhameðstrúarmaðurinn er
gegnir forsetaembættinu, vanra
mikinn persónulegan sigur og sigr
aði andstæðing sinn, Koka Subba
Rao fyrrum hæstaréttardómara
með 471.244 atkvæðum gegn 107.
273.
Það voru meðlimir þjóðþingsins
og fylkisþinga er kusu forsetann.
Atkvæði þeirra giltu í hlutfalli við
:fylgi það sem þeir hlutu í síðustu
kosningum. Frú Indira Gandhi
beitti sér eindregið fyrir kosningu
Husains.
Dr. Hösain var á sínum tíma
einn aðalhvatamaðurinn að stofn
un háskóla. Múhameðstrúarmanna
á Indlandi og var vararektor há-
skólans í 22 ár eða til ársins 19
48. Hann var fylkisstjóri í Bihar
fylki um fimm ára skeið og var síð
an kjörinn varaforseti. Hann verð
ur settur inn í embættið á laugar-
daginn. !