Alþýðublaðið - 10.05.1967, Síða 7

Alþýðublaðið - 10.05.1967, Síða 7
F undarsamþy kktir og ályktanir Blaðinu hefur að undanförnu borizt mikið af fundarsamþykktum, sem rúmsins vegna hefur ekki verið unnt að birta fyrr en nú. Fara þær helztu þeirra hér á eftir. myndinni sést frú SYNIR í BOGA- SALNUM Sl. laugardag opnaði frú Ragn- heiður Jónsdóttir Ream málverka sýningu í Bogasal Þjóðminjasafns ins. Ragnheiður sýnir þar 19 mál- verk og teikningar og eru allar myndirnar til sölu. i Ragnheiður er búsett í Was- hington, D. C. gift bandarískum manni, Donald F. Ream, eðlis- fræðingi hjá sjóhernum en áður en Ragnheiður giftist vann hún hjá íslenzka sendiráðinu í Was- hington. Hún er nú í heimsókn hjá foreldrum sínum, Jóni Hall- dórssyni, fyrrverandi skrifstofu- stjóra Landsbankans og Sigríði Bogadóttur. Ragnheiður nam málaralist í American Undiversity í Washing ton og hefur tekið þátt í sam- sýningum síðan 1957, einnig hald ið 5 einkasýningar í Bandaríkjun- um. Hún hefur hlotið verðlaun fyrir myndir sínar, m. a. Museum Price á sýningu í Baltimore Mus eum of Art og Franz Bader Award á sýningu Soeiety of Washington Artists, Sýning Ragnheiðar í Bogasaln um verður opin til 15. maí kl. 2-10 daglega. Barnaverndarnefnd Reykjavíkur hefur á fundi sínum 26. apríl 1967 gert svohljóðandi samþykkt; „Vegna tízkusýningar þeirrar f.vrir unglinga, sem haldin var hér í borg nýverið, vill Barna- verndarnefnd vekja athygli félags samtaka og fyrirtækja á þeim ó- hollu uppeldisáhrifum, sem staf að geta af því, að viðskiptalíf tízkuheimsins beini kynningar- starfssemi sihni að unglingum. Einnig skal á það bent, að sízt er á það bætandi hve tízkuhugs un og sundurgerð í klæðaburði meðal unglinga í skólum borgar innar leggur mörgu heimilinu ó- eðlilegar fjárhagsbyrðar á herð- ar.‘ o Á fundi Kvenréttindafélags ís- lands, 18. 4. 1967 í Hallveigarstöð um, flutti Margrét Margeirsdóttir félagsmáiaráðgjafi erindi um fé- lagsleg vandamál barna og ung- linga. Fundurinn samþykkti að ítreka og vekja athygli á eftirfarandi til lögum frá fulltrúaráðsfundi K. R. F. í. 1966: Að stuðia beri að því að fólk sérhæfi sig í æskulýðsleiðtoga- starfi og væri æskilegt að Kenn araskóli íslands eða Háskóli ís- lands komi á fót námsskeiðum í þessum tilgangi. Að skipulögð verði uppeldis- og sálfræðikennsla í skólum landsins við hæfi hvers aldursflokks. Að skora á foreldra og aðra uppalendur að gæta þess að hafa ekki um hönd eða neyta áfengis á þeim heimilum, sem börn eru og unglingar og að vanda fram- ferði sitt í hvívetna, svo að þeir verði börnunum sú fyrírmynd, sem þeim ber skylda til. Að skora á foreldra og aðra uppalendur að gera allt sem í Samvinnuskólanum sliti Samvinnuskólinn að Bifröst var slitið 1. maí sl. Nemendur skól- ans síðastliðið starfsár voru sam- tals 74, 35 í 1. bekk og 39 í öðr- um bekk. Tveir nemendur í 1. bekk hlutu ágætiseinkunn á árs prófi, Helga Karlsdóttir Narfa- stöðum Reykjadal, S-Þing. 9,09 og Pétur Rafnsson Svalborg, Bíldu- dal, 9,00. Á lokaprófi úr 2. bekk hlutu 4 nemendur ágætiseinkunn: Brynhildur Björk Kristjánsdóttir, Sólbrekku Bíldudal 9,28, Guð- mundur Jóelsson Sandgerði, 9,25, Sigurður Jónsson Keflavík 9 18 og Sigríður Árnadóttir ísafirði 9,01. Fimmti nemandinn, Eiríkur Hjart arson, Hvammstanga, var einnig með ágætiseinkunn í árseinkunn, 9,14, en hann lauk ekki prófi vegna veikinda. Við skólaslitin fóru einnig fram verðlaunaveitingar. Umsjónar- menn, Agnar Sveinbjörnsson í, 1. bekk og Eiríkur Ragnarsson í 2. bekk, hlutu viðurkenningu fyrir störf sín. Bókfærslubikarinn hlaut að þessu sinni Guðmundur Rúnar Óskarsson, Reykjavík. Verðlaun Verzlunarmannafélags Reykjavík- ur fyrir beztan árangur í vélritun hlaut Guðmundur Garðar Art- hursson, Akureyri. Viðurkenningu frá þýzka sendiráðinu fyrir yfir- burði í þýzku fengu þrír nem- endur annars bekkjar: Guðmund ur Jóelsson, Sandgerði, Sigríður Árnadóttiíf* ísafirði og Karólína Ingvarsdóttir, Egilsstöðum. Sam- v-innustyttuna fyrir kunnáttu í samvinnusögu hlaut Sigurður Jónsson Keflavík. Þá fékk skóla dúxinn, Brynhildur Björk Krist- jánsdóttir, Bíldudal, sérstök verð laun fyrir frábæi'an námsárangur. Allmargir eldri nemendur voru viðstaddir skólaslitin og tóku fulltrúar þriggja afmælisárganga til máls ög færðu skólanum góðar gjafir. þeirra valdi stendur til að búa börnum og unglingum heimili sem er þeim þægileg vistarvera. Bandalagi háskólamanna barst nýlega eftirfarandi áiyktun frá stjórn Verkfræðingafélags Is- lands: „Stjórn Verkfræðingafélags Is- lands og fulltrúar félagsins í Bandalagi háskólamanna teija nú- verandi ástand i samningsréttar- málum háskólamenntaðra manna með öllu óviðunandi og lýsa ein- dregnum stuðningi við óskir Banda lags háskólamanna um samnings- rétt því til handa fyrir háskóla- menn í opinberri þjónustu. Við ákvörðun kjara opinberra starfsmanna á undanförnum árum hefur Bandalagi starfsmanna rík- is og bæja ekki tekizt að halda á málstað háskólamanna á viðun- andi hátt. Stjórn Verkfræðingafélags ís- lands beinir þeim ákveðnu tilmæl- um til stjórnar Bandalags háskóla manna, að hún beiti sér af alefli fyrir nauðsynlegum breytingum á lögum nr. 55/1962 um kjarasamn- inga opinberra starfsmanna." (Fréttatilkynning frá Bandalagi háskólamanna.) A almennum félagsfundi í Iðn aðarmannafélagi Suðurnesja h. 7. apríl sl., urðu miklar umræður um atvinnumál iðnaðarmanna á Suð- urnesjum. Kom þar m.a. fram að á und- anförnum árum hefur stórum fiski skipum fjölgað verulega en ekki eru ennþá möguleikar til að taka slik skip upp í slipp á Suðurnesj- um til viðgerða. og viðlialds. Af þessum orsökum hafa útgerðar- menn orðið að láta skipin sigla utan til viðgerða en um leið hef- ur atvinna dregizt mjög mikið saman vegna verkefnaskorts hjá þjónustufyrirtækjum sjávarút- vegsins. Fundurinn samþykkti að beina þeirri ósk til iðnaðarmála- ráðherra að hann beiti sér fyrir því að uppbygging hinnar nýju dráttarbrautar við Skipasmíða- stöð Njarðvíkur verði hraðað, til þess að aðstaða skapist til þess að leysa þau verkefni sem fyrir hendi eru. Ýmis önnur mál voru rædd á fundinum og var stjórn félagsins falið að hefja viðræður við Iðn- aðarmannafélagið í Hafnarfirði og Meistarasamband byggingamanna í Reykjavík, um samstarf um fé- lagssvæði til þess að tryggt verði að meistarar á Suðurnesjum geti tekið að sér verk sem boðin eru út á Reykjavíkursvæðinu, þar sem félagið telur, að takmörkun vinnu svæða við átthaga samræmist ekki því viðskiptafrelsi, sem þjóðin býr við og skaði viðhorf neytenda til iðnaðarmanna. o Aðalfundur Starfsmannafélags ríkisstofnana 1967, var haldinn í sámkomuhúsinu Lídó, þriðjudag- inn 25. apríl sl. Oll stjórnin var sjálfkjörin, en þær breytingar urðu á að Sverr ir Júlíusson, Raforkumálaskrif- stofu, sem verið hefur formaður félagsins undanfarin 4 ár baðsfc undan endurkjöri sem formaður, en tekur nú sæti í varastjórn. Sömuleiðis baðst Hermann Jóns- son, Skrifstofu Verðlagsstíjóra und an endurkjöri í stjórn. Við formannsstarfi tekur nú, Tryggvi Sigurbjarnarson, verk- fræðingur hjá Rafmagnsveitum ríkisins, Aðrir í stjórn voru kjörnir: Einar Ólafsson, Á.T.V.R., Gunnar Bjarnason, Þjóðleikhúsinu, Helgl Eiríksson, Skipaútgerð ríkisins, Páll Berþórsson, Veðurstofu fs lands, Sigurður Ó. Helgason, Toil stjóraskrifstofu Þórhallur Bjarna son, Kleppsspítala. Varastjórn: Hulda Einarsdóttir, Landsspítala, Sverrir Júlíusson, R af orkumálaskrifstofu, Þorvaldur Steinason, Kópavogshæli. Á fundinum voru rædd helztu baráttumál ríkisstarfsmanna, og tillögur þær og ályktanir sem hér fara á eftir einróma samþykkt ar: 1. Aðalfundur SFR 1967 ítrekar fvrri kröfur sínar um fullan samn ingsrétt og verkfallsrétt og þar með verði afnumin ákvæði um Kjaradóm. Fundurinn skorar á nefnd þá sem vinnur að endur- skoðun um samningsrétt opin- berra starfsmanna að ljúka störf um áður en næsta reglulegt Al- þingi kemur saman. 2. Aðalfundur SFR sko'rar á nefnd þá sem hefur verið skipuð til að endurskoða lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins að hraða störfum. Við þá endurskoð un verði m. a. eftirfarandi atriði skýrt ákveðin: a) Föst yfirvinna verði greidd í veikindum. b i Vaktaálag verði greitt í orlofi. c) Orlofsfé verði greitt fyrir alla yfirvinnu. d) Tekin verði upp ótvíræð á- kvæði um rétt ráðinna starfs- manna til skipunar í starf og gildi skipunarbréfs. 3. Aðalfundur SFR skorar á Kjara- ráð og stiórn BSRB að halda á málum ríkisstarfsmanna i þeim snmningum við ríkisvaldið sem framundan eru. Fundurinn gerir þá lágmárkskröfu um launakjör að föst laun i lægstu launaflokkum nægi til lífs Frh. á bls. 15. 10. maí 1967 ALÞYÐUBLAÐIÐ J

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.