Alþýðublaðið - 10.05.1967, Síða 11
KR átti ekki í erfið-
leikum með Þrótt, vann 3:1
F ^
A morgun heldur mótið áfram
með leik Fram og Vikings
Reykjavíkurmeistarar Þróttar geta
þakkað nýliða sínum í markinu
Gísla Valtýssyni, það að þeir fóru
þó ekki ver út úr leiknum við KR
en raun yarð á 3:1. Gísli sýndi sér
lega góð tilþrif við markvörzluna
og bjargaði oft á næsta undraverð
an hátt. Að vísu sýndi KR liðið
enga sérstaka snilli í leik sínum,
einkum var þó framlínan mistæk
að ná ekki betri árangri miðað við
aðstöðu. Fyrsta markið var ekki
skorað fyrr en um fimm mínútum
fyrir leikhlé. Kom markið upp úr
langskoti Gunnars Felixsonar, er
markvörðurinn mundi hafa varið
ef linötturinn hefði ekki breytt
stefnu, við að strjúkast utan i varn
armann. Enginn glæsibragur var
því yfir þessu tilviki. Skömmu síð
ar kom svo annað mark KR sem
Gunnar átti líka upptökin að með
góðri sendingu á Baldvin „frían“
og gott skot' frá honum. Stóð nú
Innanfélagsmót ÍR
ÍR efnir til innanfélagsmóts í
100 m. hlaupi sveina, drengja, full
orðinna og stúlkna á Melavellin
um á föstudag kl. 5 til 7. Keppni
fiessi gildir sem úrtökumót fyrir
boðhlaupskeppni Vormóts ÍR, sem
fer fram 18. maí.
2:0 fyrir KR um skeið eða í rúmar
fimm mínútur. En þá náði Þróttur
að skora sitt eina mark í leikn
um. Kom markið upp úr auka
spyrnu frá Hauki Þorvaldssyni,
markvörður KR náði til boltans
en ekki nægilega svo að nýr liðs
maður Þróttar Guðmundur Vigfús
son úth. sem fylgdi fast' fram náði
Ingi Árnason sigr
aði í Fjórðungs-
glímu Norðurlands
Nýlega fór fram á Akureyri
Fjórðungsglfma Norðlencfin.^a.
Var þetta í annað sinn, sem þessi
keppni var haldin og sá Ungmenna
samband Eyjafjarðar um fram-
kvæmdina að þessu sinni. Keppt
var um glímuhorn, sem Kaup
félag Eyfirðinga hefur gefið til
keppninnar en handmafi þess 19
66 var Þóroddur Jóhannsson.
í karlaflokki urðu úrslit þessi:
1. Ingi Árnason ÍBA 5,5 v.
2. Björn Ingváson HSÞ 5,5 v.
3. Pétur Þórisson HSÞ 5,0 v.
4. Valgeir Stefánsson UMSE 5,0 v.
Keppendur voru 8 frá þrem í-
þróttabandalögum.
að skora. Jón Sigurðsson skoraði
svo þriðja og síðasta mark KR á
35. mín.
Eftir öllum gangi leiksins og
tækifærum hefði KR-ingum átt að
vera í lófa lagið að skora að
minnsta kosti 2-3 mörk í viðbót.
Nokkurt skarð var fyrir skildi í
Þróttarliðinu þar vantaði ýmsa
kappa, sem gert hafa garðinn
frægan áður. Valur Benediktsson
dæmdi leikinn.
Manchester Utd. innsiglaði sig-
ur sinn í ensku I. deildarkeppn
inni á laugardag með 6:1 sigri yfir
West Ham. — Blachpool og Aston
Villa falla niður í II. deild. Wolv
es og Coventry flytjast upp í I.
deild.
Romuald Klim, Sovét kastaði
sleggju 69,43 m. á sunnudag, sem
er bezti árangur árjins ti-l þessa.
Háskólalið frá Los Angeles jafn
aði heimsmetið í 4x110 yds. boð-
hlaupi um helgina, hljóp á 39,6
sek.
Sænska gillliðið frá Olympíu-
lcikjunum í London 1948 og Dan
irnir, sem hlutu bronz verðlaun í
sömu keppni léku á Österbro úm
helgTna. Danirnir sigruðu með 6:2.
Frá leik KR
og Þróttar f
Þessi mynd er frá leik KR
og Þróttar í fyrradag. Hér
eru liðsmenn að berjast um
knöttinn og KR-ingar virðast
hafa betur, Baldvin nær bolt
anum.
Unga fólkið setti mjög svip sinn á íslandsmótið i badminton, sem fram fór um síðustu lielgi. Hér
birtum við mynd af nokkrum Akurnesingum, sem þátt tóku í mótinu.
SVEITIR ÁRMANNS
SEnU ISIANDSMET
TVÖ fslandsmet voru sett á sund-
móti Ármanns í Sundhöllinni í
gærkvöldi. Það voru boðssunds-
sveitir Ármanns, sem settu metin,
í 4X50 m. fjórsundi setti karla-
sveitin met, synti á 2:02,0 mín.
Gamla metið átt Ármann, en það
var 2:04,7 mín. í 3X100 m. þrí-
sundi setti kvennasveit Ármanns
met, synti á 3:58,1 mín. Gamla
metið átti Ármann, en það var
4:02,8 mín.
Fjölmörg met voru sett í ungl-
ingaflokkunum og yfirleitt var
árangur góður á mótinu, sem var
nokkuð langdregið.
Guðmundur Gíslason, Ármanni
vann bezta afrek mótsins, synti
200 m. bringusund á 2:40,8 mín.,
sem er mjög góður tími. Hantv
sigraði einnig í 100 m. skriðsundi
á 58,2 sek. og í 100 m. flugsundi
á 1:04,6 mín.
Ellen Ingvadóttir, Ármanni
setti telpnamet í 100 m. bringu-
sundi, synti á 1:25,2 m.
Nánar verður skýrt frá úrslituin
í blaðinu á morgun.
10. maí 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ X%