Alþýðublaðið - 10.05.1967, Side 16
tnMEKD
Að stela pólitíum
EKKI er Brandsmálum lokið,
og er spurning hvort þeim lýkur
nokkurn tíma.
Nii hefur Stór-Bretinn borið
brigður á að rétt hafi verið farið
að við Brand. Telja þeir Brand
hafa mátt sigla úr höfn í leyfis-
leysi, og yfirleitt fara allra sinna
ferða með yfirmáluð einkennis-
merki og útbíað dekk af máln-
ingu af þeim ástæðum einum að
íslenzk pólití voru innan borðs.
Hlýtur þá um leið að vera olræt'
að stela pólitíum, því að það
gerðu þeir á Brandi svo sannar-
lega, lokuðu þau meira að segja
inni, tóku fram axir og létu dólgs-
lega. Pólití hljóta því að skoðast
í allt öðrum flokki en venjulegar
manneskjur, og sá verknaður að
stela pólitíum að heyra undir allt
aðra paragrafa en t. d. ef stolið
er kvenmanni. Skuli hafa allt ann-
an málatilbúnað út af þeirra brott-
námi.
l»að hefur löngum verið viður-
kennt að pólití eru sérstök mann
tegund (kannski þó homo sapi-
ens, en bara eitthvert afbrigði af
honum) og um þau gilda sérregl-
ur víða. Hitt er aftur á mót'i ekki
fullljóst enn á hverju Stór-Bret-
inn reisir þá skoðun sína, að póli-
tíum megi liver stela sem vill og
getur, og það geti jafnvel orðið
milliríkjamál, kannski þorskastríð,
ef farið er að amast við því sporti.
Gæti hugsazt að þett'a væri
bara sport í hans augum, enda
alls kyns skrýtið sport í hávegum
haft í ríki hans. Er vel til að það
eigi að setja í sama flokk og sjó-
stangaveiði (sem sennilega er í
því fólgin að veiða sjóstengur, sbr.
laxveiði, en hvaða skepna sjó-
stöng er og hvenær hún var sköp-
uð og af hverjum finnst ekki í
dýrafx-æðinni.).
Annars er til dæmi annars stað-
ar úr brezka heimsveldinu um af-
brigðilega meðferð á laganna
vörðum.
Þetta gei'ðist í Papúa á Nýju
Guineu, landssvæði sem heyrir
undir vernd Ástralíumanna.
Stjórnarvöld í Ástralíu höfðu sett
lögreglumann í heldur frumstætt
þorp lijá hinum dökku Pápúum.
Þorpsbúar voru góðlyndir menn
og frómir, en heldur skammt á
veg komnir í siðmenningu. Við
svo búið mátti ekki standa, því
að siðmenningin skal blífa. Fyrir
bragðið var lögregluþjónn settur
í þorpið til að hressa upp á menn-
inguna. Þetta er einmitt þjóðráð.
Skx-ýtið að það skuli ekki vera
notað meira í allri þessai'i menn-
ingarbaráttu um víða veröld. Þar
sem er pólití, þar eru afbrot, þar
sem eru afbrot, þar er siðgæði,
og þar sem er siðgæði, þar er
Reiðhjólaskoðunin
Illa fór ég út úr skoðuninni,
vantaði bæði bremsur og ljós
og bjallan er koiryðguð skósvertudós.
Reiðhjólið mitt er reyndar illa farið,
ég hef þó aldrei í ákeyrslu lent,
enda dytti það þá í tvennt.
En ekki geta þeir af því númerið tekið
með alvöruskrúfjárni embættis síns
eins og skrjóðnum hans pabba míns.
»
vitaskuld siðmenning. Ergo: Þar
sem er pólití, þar er siðmenning.
Einföld formúla fyrir siðmenn-
ingu! Bara að stasjónera pólití
þar sem eitthvað er bogið við
menninguna.
En svo hvarf þessi útsendari
menningarinnar.
Ábúðarmiklir eftirlitsmenn
komu og hleyptu brúnum. Þeir
vildu fá að vita hvað orðið hefði
af pólitíinu.
En þorpsbúar, sem eru ljúf-
mannlegastir allra manna, sem
eftii’ einhverjum krókaleiðum
heyra undir Hennar Hátign (með
stórum upphafsstöfum í báðum
orðunum), lögðu bara kollhúfur
og sögðu ekki neitt'. Hvað átti
það líka að þýða að fara að
grennslast um þetta eina
pólití, eins og það væri ekki nóg
af pólitíum í heiminum! En auð-
vitað gátu þeir vel sagt hvar póli-
tíið var niður komið. Þeir höfðu
étið það og bragðazt vel!
Og úr því að svonalagað gat
skeð þarna austur frá, hvað eru
þá íslendingar að ibba gogg út
af því að einn ágætur skippari
sigldi með íslenzk pólití út í hafs-
auga, hvað svo sem hann er að
gera með þau þangað.
Hirðbi’éf til páfa um
Fyrirsögn í Alþýðublaðinu.
Ég neita því ekki að örlítið
var mér skemmt í gær, þegar
ég heyrði blaðsölustrákana
hrópa: „Vísir, nýja alþýðu-
bandalagsblaðið‘“.
Nú er ég aldeilis búinn að
koma kenn: rablókunum í
klemmu. Þen vilja ekki fyr-
ir nokkra muni að ég falli,
svo að þeir þurfi ekki að
liafa mig aftur í bekknum,
svo að þeir hreyfa sig ekki
þó ég svindli í prófunuin
uppi i nefinu á þeim.
Það er undarlegt þetta með
loftið. Það getur enginn lifað
á loftinu, en það getur held
ur enginn lifað án þess að
hafa loft.