Alþýðublaðið - 27.05.1967, Qupperneq 7

Alþýðublaðið - 27.05.1967, Qupperneq 7
kvöld til að ræða áhuga og hagsmunamál allra félagsmanna sem félagið síðan sem einn mað ur stóð að og barðist fyrir; þau eru ófá málin sem félagið hef- ur happasællega komið fram til sigurs eingöngu af því að all ir voru samtaka og enginn klauf sig úr fylkingunni. Útiskemmtun í Árbæjarhverfi FRAMFARAFÉLAG Selás- og Árbæjarhverfis er fjórtán ára gamalt og hefur frá upphafi barizt fyrir áhuga- og hags- munamálum hverfisbúa, ágrein ingslaust og í góðri samvinnu við borgaryfirvöldin. Á sunnudaginn var hafði fé- lagið þá nýbreytni að halda úti skemmtun sem liófst kl. 1 með skrúðgöngu. Var þátttaka mikil og skemmtunin í alla staði vel heppnuð. Sjónvarpsmenn tóku mynd sem birt var í sjónvarp- inu um kvöldið. Skemmtiatriði voru fjölbreytt. Formaður framfarafélagsins, Sig urjón Ari Sigurjónsson flutti ávarp. Séra Bjarni Sigurðsson á Mosfelli ræddi við börnin, Jóhann Jakobsson flutti ávarp skáta, Laufey Guðjónsdóttir flutti leikþátt, síðan söng Alli Rúts gamanvísur og hermdi eft ir. Lúðrasveit verkalýðsins lék á milli atriða. Um hálffjögur leytið sleit formaður skemmtun inni. „Sú hugmynd að efna til úti skemmtunar fyrir börn og ung- linga hér í hverfinu er ekki ný, hún hefur skotið upp í kollin- um oft á meðan hverfið saman stóð af fáum íbúum Árbæjar- og Selásbletta, jafnvel komst hún svo langt á fyrsta starfs- ári Framfarafélagsins að á- kveðið var að efna til skemmt unar til þess að auka á fjöl- breytni í skemmtanalífi fólks- ins á svæðinu sem var þá ekki of fjölbreytt fyrir. Næstkomandi vetur verður Framfarafélagið 14 ára gamalt, það er ekki gamalt sem hags munafélag en þegar þess er gætt að ekkert slíkt félag er annað starfandi í Reykjavíkur borg, þá sjá menn það átak sem þarf til að félag sem þetta geti haldið uppi starfi sem er þó eins fjölþætt og raun ber vitni. Framfarafélag er starf- andi hér á svæðinu upp við Elliðavatn, við viljum hvetja það til starfa, og óskum því vel- farnaðar. Fyrsta skemmtun Framfara- fél. Seláss og Árbæjarhverfis eins og félagið hét iþá var aug- lýst þann 2. jan. 1955, var það jólatrésskemmtun barna, og fór vel fram. Þá var þetta hús fé- lagsins nýlega komið upp, mán- aðargamalt. Það var byggt fyrir samskot og með samstarfi fé- lagsmanna, allt í sjálfboðavinnu. 31. júlí 1955 varð að hætta við útiskemmtun vegna veðurs. En útiskemmtun var haldin 14. ágúst sama ár. | Þetta ár 1955 urðu mikil þáttaskil hjá íbúum þessara bletta beggja fyrir tilstilli Fram farafélagsins, þá var byggt við félagsheimilið, og bærinn tek- ur húsið síðan á leigu til skóla halds. Vatn fæst í húsin, en þau voru vatnslaus áður með öllu. Svo liðu árin, og nú þegar spjöldunúm með sögu Fram- farafélagsins Selás- og Árbæjar hverfis er flett kemur í ljós að sá félagsandi og samhugur sem ríkt hafði meðal félagsmanna, Sigurjón Ari Sigurjónsson. hafði borið ríkulegan ávöxt. Spilakvöld, dans, þorrablót, jóla trésskemmtanir, jafnvel úti- skemmtanir, árshátíðir með sam eiginlegu borðhaldi og síðast en ekki sízt sameiginleg umræðu- Þessum samhug og félagsanda sem ríkt hefur hér í hverf- inu þarf að hlúa að og auka hann. Nú, þegar stórir hópar af ungu fólki flytja í hverfið þarf að fá það til starfa og til að ræða vandamál sín á fundum félagsins. Ég vil hvetja fólk til að ganga í félagið, sem er öllum opið 16 ára og eldri. Áskriftar- spjöld eru hér frammi í húsinu fyrir þá sem í dag vilja ger- ast félagar í eina hverfisfélagi Reykjavíkurborgar, sem er ó- pólitískt, og berst fyrir hags- muna- og áhugamálum hverfis búa sjálfra. Eitt af áhugamálum Framfara félagsins er að fá gæzluvelli fyrir börn hér í hverfinu og er af hálfu borgaryfirvalda unn ið að því nauðsynjamáli fyrir mikla tilhvatningu frá Framfara félaginu. Knattspyrnufélagi vinnur fé- lagið að stofnun á og hefur íþróttaerindreki félagsins Theo- dór Óskarsson, unnið þar mik- ið og ósérhlífið starf í sam- vinnu við börn og unglinga f hverfinu, og er stofnfundur að Knattsp? f'nuféilagH'iu ákveðinn næsta sunnudag 28. maí kl. 19 árdegis. Velunnarar Knatt- spymuíþróttarinnar sem búsett ir eru hér í hverfinu eru hvatt ir til að styðja félagsstofnunina og mæta á þennan fund. Börn og unglingar eru beðin um að mæta stundvíslega og vel. Fund Frh. á 10. síðu. Eigið blóð er bezt MAÐUR nokkur slasast í bílsiysi. Hann er þegar í stað fluttur á sjúkrahús og honum er gefið blóð. — Það er geymt í blóðbankanum, — og það er hans eigið blóð! Nokkrum dögum áður hafði hann gefið hálfan lítra blóðs til blóðbankans. Dr. Israel Davidsohn, pró- fessor í læknisfræði í Cliica- go, nefndi þetta dæmi í fyrir- lestri, sem hann hélt, en hann hélt því fram, að þeir tímar mundu koma, að við ættum blóðinnstæðu í blóðbankanum rétt eins og péninga í spari- sjóði. Framfarir á því sviði, að geyma efni til langframa með frystingu, eru miklar og gefa tilefni til þess, að unnt er að hugsa sér, að hver og einn maður geti átt sinn eigin blóðreikning, segir prófessor- inn. Blóðgjöf til eigin þarfa get- ur hafizt strax eftir fæðing- una. Hreint blóð, sem rennur við fæðingu, og sem enn er bara „hent” mætti leggja inn á blóðbanka. Það er ekki ný bóla að leggja blóð inn á banka til eigin afnota. Sumir skurð- læknar nota þá aðferð að taka fólki blóð nokkrum dögum áð- ur en það á að skera það upp, en blóðið, sem það gefur, fær það síðan tii eigin afnota eftir uppskurðinn, ef þörf krefur, segir prófessorinn. „Það er ekkert blóð betra fyrir manneskjuna en hennar eigið,” segir læknirinn enn- fremur. Það blandast auðvitað blóðí líkamans þegar í stað og það er mjög lítil hætta á eftirköstum. Beinamergur,*' sem er upp- spretta blóðs líkamans, hefur líka verið settur í banka, sér- staklega ætlaður sjúklingum, sem á að hafa í geislum, til lækningar á krabbameini. — Langvarandi geislun getur stundum leitt til skemmda á mergnum. Á sama hátt og nú er unnt að geyma blóð sitt í blóðbanka í mörg ár til eigin afnota síð- armeir, er únnt að geyma merg langtímum saman. Og síðar er unnt að gefa meiri merg, án þess, að það hafi nokkur ill áhrif á gefandann. Það hefur einnig verið rætt um það, hvort ekki væri unnt að „rækta” merg á sérstakan hátt, — en ekki skal farið út í það lengra. Upp á síðkastið hefur verið unnið að því að minnka blóð- gjafir til sjúklinga. Þetta virð- ist munu borga sig, og blóðsér- fræðingur hefur komizt að þeirri niðurstöðu, að flestir sjúklingar þoli 25% blóðmissi. Ástæðan til þess, að þessi leið hefur verið rcynd, er sú, að blóðgjafir til sjúklinga hafa aukizt mikið á síðustu árum og dauðsföll í sambandi við þær aukizt' að sama skapi. Á síðustu 20 árum hafa um það bil 50 milljónir sjúklinga í Bandaríkjunum fengið blóð- gjöf, en sérfræðingar telja, að um það bil milljón blóðgjafa í Bandaríkjunum á hverju ávi séu ónauðsynlegar. Framhald á 10. síðu. 27. maí 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ ^

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.