Alþýðublaðið - 27.05.1967, Side 16
IMSOQ)
UPPFRÆÐSLA FYRIR KOSNINGAR
Nú er tími kosningahandbók-
anna. Pésar með fallegum mynd-
um af frambjóðcndum og auðum
linum til að skrifa í tölur á kosn
inganóttu virðast vera mjög ör-
ugg söluvara, enda læðast þar oft
með ýmsar upplýsingar, sem betra
er að vita en ekki, þegar menn
setjast niður til að reikna út
úrslitin fyrirfram, a. m. k. er
betra að geta þótzt liafa ein-
hvern grundvöll til að standa á,
þegar maður fer að áætla út
f bláinn, ‘
Okkur hefur nýlega borizt í
hendur ný fjóla á akri kosninga
handbókanna, og við nánarl at
hugun sáum við að þar er um
evo merkilegt framlag að ræða,
að því yrði ekki gerð nein við
eigandi skil í venjulegri frétt,
heldur á það fullkomlega skilið
að fá umgetningu á þessari heið
urssíðu blaðsins. Þessi bók nefn
fst kosningasjá og er eftir hinn
kunna skákmann og ritliöfund
Freystein Þorbergsson.
Auk mynda af frambjóðendum
og upplýsingum um úrslit kosn-
inga í nokkur undanfarin skipti,
•ínniheldur bókin margvíslegt efni,
ritgjörðir og ljóðmæli. Höfundur-
inn tekur sér fyrir hendur að
uppfræða almúgann um gang
heimsmálanna og innlendra dægur
mála, og er ekkert ómyrkur í
máli um það. hvaða flokk menn
eigi að kjósa. Höfundurinn er
gallharður framsóknarmaður, og
er alveg sannfærður um að Fram
sókn vinni alveg geysilega mikið
a, þótt hann -reyndar telji að
„andvari lians í utanríkismálum
sé naumast eins vökull og æski-
legt væri.“ En það verður aldrei
neitt svo ágætt, að ekkert megi
að því finna, og þrátt fyrir þenn
an vankanta, hikar hann ekki við
að ráðleggja mönnum að kjósa
þann flokk. Er greinilegt að
þarna hefur Framsókn bætzt öt-
ull liðsmaður, það kynni jafnvel
að vera álitamál, hvort flokkur-
inn hefði nokkra þörf fyrir fleiri
liðsmenn eftir að þessi er kom
inn til.
Eins og sæmir skákmanni og
stærðfræðingi er persónureikning
ur mikið brúkaður í bókinni og
líkur reiknaðar á stærðfræðilegan
hátt; að vísu eru frumdrættir
dæmisins ekki gefnir upp, en nið
urstaðan er ákaflega stærðfræði-
leg að formi til, þannig að hér
er greinilega um yfirburði að
ræða yfir útkomur annarra reikni
meistara, þótt hvort tveggja sé
raunar gert út í bláinn. En það
skiptir ekki máli í þessu sam-
bandi, því að menn hafa gaman
af þessu, og ánægjan er fyrir
öllu.
Rétt mundi að Ijúka þessari
frásögn um hina nýju kosninga-
handbók með nokkrum glefsum
úr innihaldi hennar; Fyrir valinu
verður vísa ein, sem að vísu
stendur ekki rétt í stuðlum, en
livað gerir það til, þegar mein-
ingin er góð nokk. Þessi vísa
er birt í þremur versíónum, cn
henni var breytt eftir því sem
Uggvænlegt
Úti á Akabaflóa
er uggvænlegt um sinn,
fýsir fáan að róa
fram með netstubbinn sinn,
styrjaldarstormurinn hvass er,
sem stendur af karlinum Nasser,
og enginn siglir þar inn.
málum miðaði áfram.
1. version:
Alþýðubandalagið er
ógnar hrærigrautur,
Þjóðvörn orðin þykir mér
þýður rckkjunautur.
2. version:
Alþýðubandalagið er
ógnar hrærigrautur,
Þjóðvörn orðin þykir mér
þreyttur rekkjunautur.
3. version:
Alþýðubandalagið er
ógnar hrærigrautur.
Hannibalinn heyrist mér
hrakiun rekkjunautur.
Ég sagði við þig, að þú skyld-
ir ekki vera að rífast við skipstjór
ann.
Hver liefur gefið þcr þcnnan sldt.
sn
Sölumaður óskast til að ann
ast útbreiðslustarfscmi á
menntunarprófgrammi.
VÍSIR.
Það gekk maður til mín i
gær og spurði hvort ég hefði
séð frétt dagsins. Nei, ég
hafði ekki tekið eftir henni.
Jú, sjáðu til, sagði hann, hún
stóð í Vísi: Maður ferst í
bílslysi — í Addis Abeba.
Kallinn ætlar að fara að
koma bílnum á verkstæði
því að annars verður hann
skikkaður til að Iána hanu á
kjördag.
Aldrei skil ég hvers vegna
þeir kalla þessi herskip tund
urspilla. Þegar maður sér
hvernig sjóliðarnir láta þeg
ar þeir koma í land, fyndist
mér réttara að kalla þá
mcyjaspilla eða bara frið-
spilla....