Alþýðublaðið - 28.05.1967, Side 3

Alþýðublaðið - 28.05.1967, Side 3
Sunnudags ALÞYÐUBLAÐIÐ 21. maí 1967 3 Eftir Jónas St. Lúðviksson Kafli úr bók sem koma mun út í haust ÁRIÐ 1911 var byltingarár í sögu Vestmannaeyja. Afli var mjög góður, svo að jafnvel ó- venjulegt var, og vertíðin í heild einhver sú besta, allt frá því að vélbátarnir komu til sögunnar og fram til þess árs. Að sama skapi var veður óvenjugott þessa vertíð. Eftir þessa vertí'ð urðu líka mikil umbrot og breytingar til framfara og aukningar útgerðar í Eyjum. Menn fylltust stórhug og töldu sig sjá fram á meiri og betri möguleika en áður hafði verið. Pantaðir voru til Eyja 14 vél- bátar, þar af 11 frá Danmörku, 2 frá Svíþjóð og einn var keypt- ur austan frá Seyðisfirði. Allir voru bátar þessir stærri en þeir, er fyrir voru, eða um 10 smálest- ir. Sumir þeirra útgerðarmanna, er fengu þessa báta, áttu aðra minni báta fyrir, og seldu þeir þá öðrum, svo að bátaflotinn óx mjög þetta ár. Vorið 1911 komu 12 bátanna til Eyja, en bátarnir tveir, sem smíðaðir voru í Svíþjóð, voru ekki væntanlegir til landsins fyrr en í mars árið eftir. Annan þeirra báta átti Friðrik Jónsson í Látrum, ásamt útgerðarfélög- um sínum, þeim Ólafi Jónssyni í Landamótum, Árna Jónssyni í Görðum, Magnúsi Guðmunds- syni í Hlíðarási, Kristjáni Ingi- mundarsyni í Klöpp og Ágústi Benediktssyni á Kiðjabergi. Var ákveðið að Friðrik skyldi vera formaður á bátnum. Hinn bát- inn áttu Guðjón Þórðarson í Heklu, sem vera átti formaður á honum, Bjarni Einarson í Hlað bæ, Helgi Jónsson í Steinum, Þorsteinn Ólafsson í Háagarði, Jón Eyjólfsson í Mið-Grund, Tómas Þórðarson í Vallnatúni, faðir Þórðar Tómassonar fræði- manns, sem báðir voru undan Eyjafjöllum og Friðrik Benónýs- son í Gröf, faðir hins þjóðkunna Benónýs Friðrikssonar, Binna í Gröf, skipstjóra á vélbátnum Gullborgu, hins mikla sjósókn- ara og aflakóngs Vestmannaeyja og landsins alls um áraraðir. Finribogi Björnsson, ■form. í Norðurgarði. Enda má fullyrða að enginn vél- bátaskipstjóri á hans aldri hafi flutt eins mikinn afla á land, sem hann, enda verið stundum um það bil helmingi hærri að aflabrögðum til, en meðalafli er talinn. Ofanleitishamar í Vestmannaeyjum. Jónas St. Liiðvíksson. Sumarið 1911 kom til Eyja einn hinna dönsku báta, sem þeir áttu hlut í, Bjarni í Hiað- bæ og Helgi í Steinum meðal annarra. Var það að nokkru sama útgerðarfélag, er pantað hafði annan Svíþjóðarbátinn. Á þenn an danska bát, sem hlaut nafn- ið ,,Sæfari“ VE 157, var ráðinn formaður Sveinn Jónsson í Landamótum. Var .Sæfari’ góður bátur og fengsæll vel. Aflaði Sveinn Jónsson með mestu á- gætum á hann hverja vertíð. Leið nú tíminn fram í mars mánuð 1912. Komu þá Svíþjóð- arbátarnir til Eskifjarðar með skipi. Varð því að sækja þá aust ur, og sigla þeim heim til Eyja. Til þessarar farar fengu þeir Friðrik Jónsson og félagar hans þá Finnboga Björnsson skip- stjóra í Norðurgerði, Gissur Fil- ippusson vélamann, sem þá var búsettur í Eyjum, og Árna Jóns- son í Görðum, sem var háseti. Hinn bátinn sóttu þeir Sigurjón Jónsson skipstjóri í Víðidal, Björn Bjarnason í Hlaðbæ véla- maður og háseti var Tómas Þórð- arson í Vallnatúni. ■ Hrepptu bátarnir hið versta veður til Eyja. Voru þeir óvenju lengi á leiðinni, en komust þó loks á áfangastað, án þess að nokkuð illt hefði borið að hönd- um. Bátur þeirra Friðriks Jóns- sonar og félaga hans hlaut nafn- ið „íslendingur", VE 161, en bát- ur Guðjóns og félaga hans nafn- ið „Happasæll”, VE 162. Bátar þessir þóttu mikil skip, enda voru þeir með þeim stærstu sem sézt höfðu í Eyjum. Þeir voru algjörlega kantsettir og höfðu 14 hestafla Skandiavél, hver, én það voru fyrstu Skandia vélarnar, sem komu til Eyja. Þeir voru og mjög glæsilegir fiski- Látar á þess tíma mælikvarða, enda tengdu eigendurnir miklar vonir við þá. Friðrik Jónsson var með „ís- lending“ í þrjár vertíðir, eða til vertíðarloka 1914. Hætti hann þá formennsku, þar eð hann var ekki ánægður með aflabrögð sín, enda orðinn nokkuð við aldur. Var þá ráðinn annar formaður á' bátinn. Var það Guðleifur El- ísson í Brúnum undir Eyjafjöll- um, en hann var góður og þaul- vanur formaður og aflasæll mjög. Tók hann við formennsku á „íslendingi” veturinn 1915 og varð þá með aflahæstu bátum í vertíðarlok. Þessa vertíð var vélamaður á „Enok I.“ sem Þórður Jónsson í Bergi var formaður á, Ólafur Ingileifsson, nú í Heiðabæ í Eyj- um. Það var einhverju sinni í marsmánuði, að „Enok I.” hafði róið suður fyrir Geirfuglasker og lagt línu sína þar út frá sker- inu. Urðu bátsverjar heldur síð- búnir að draga línuna, og loks er því var lokið munu flestir bátar hafa verið farnir til lands. Veður var mjög gott þennan dag og drógu bátsverjar á „Enok I.“ línuna inn með skerinu. Meðan þeir voru að draga línuna vakti Ólafur skyndilega máls á því er svo 111 alveg kominn hingað til okkar?“ „Nei,“ sagði Þórður. Ég sé engan bát.“ Ólafur varð enn meira undr- andi og sagði: „Nú er ég alveg hissa. Sérðu ekki bátinn?“ Síðan kallar Ólafur í háset- ana og spyr fyrst Valda Jónsson í Sandgerði: Friðrik Jónsson, Látrum. við Þórð formann, að snemma ætli bátarnir að fara að liggja úti, því þarna komi bátur að heiman og héldi stefnu á „Enok I.“ Leit Þórður þá í átt til lands, en kom hvergi auga á bátinn. Ólafur var undrandi og sagði: „Sérðu ekki bátinn maður. Hann „Sérðu bátinn, sem kemur þarna?“ „Nei,“ svarar Valdi. „Ég sé engan bát, hvergi nokkurs stað- ar.“ Ólafi fór nú ekki að verða um sel. Kallaði hann í Magnús Run- ólfsson í Sandgerði, og spyr Höfnin í Vestmannaeyjum á fyrstu árum vélbátatímabilsins,

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.