Alþýðublaðið - 03.06.1967, Qupperneq 10
Kirkjudagur í Bústaöasókn
HINN árlegi kirkjudagur Bú-
■ staðasóknar er á sunnudaginn
kemur. Messur og kvöldsam-
koma og kaffisala verða í Réttar
j holtsskóla og söfnuðurinn efnir
til ferðahappdrættis til tekjuöfl
unar.
Kirkja rís.
Bústaðakirkja er þegar farin
að setja svip sinn á borgina. í
fyrra var steypt fyrsta hæð
kirkju og safnaðarheimilis og nú
í vor var farið að slá upp fyrir
veggjum sjálfs kirkjuskipsins.
Er áformað að vinna við kirkju-
skip og forkirkju í sumar, og
snúa sér síðan að safnaðarheim-
ilinu, eftir því sem fé leyfir.
Kirkjan er staðsett í fallegri
brekku á horni Tunguvegar og
Bústaðavegar og mun snúa með
kór sinn að Fossvogsdalnum, en
inngangur verður frá Tungu-
vegi.
Kirkjudaffur.
Söfnuðurinn efnir til kirkju-
dags á sunnudaginn, bæði til
tekjuöflunar og eins til þess að
efla samstöðuna og gefa vinum
og velunnurum tækifæri til þess
að skoða kirkjuna og taka þátt
í öðru því, sem kirkjudeginum
viðkemur. Verður kaffisala í
Réttarholtsskólanum eftir síð-
degismessu og munu allir þeir,
sem i'yrr hafa lagt leið sína að
veizluborðunum, sem kvenfólkið
hefur af frábærum myndar og
rausnarskap hlaðið hinum góm-
sætustu tertum og öðru því, sem
bezt er að finna við kaffiboll-
í KJÖRKLEFANUM
ana á síðdegi, hlakka til þess að
koma enn á kirkjudag í Bústaða
sókn.
Samkoma.
Um kvöldið verður samkoma
í Réttarholtsskólanum og mun
þá Hákon Guðmundsson, yfir-
borgardómari flytja ræðu,
kirkjukórinn syngur undir stjórn
Guðnýjar Magnúsdóttur, tvöfald
ur karlakvartett syngur létt lög
og samkomunni lýkur með helgi
stund. Því næst verður enn geng
ið að kaffiborðum og þess neytt,
sem fram. er reitt.
Messur og kirkjuskoðun.
Barnasamkoma verður um
morguninn og almenn guðsþjón-
usta kl. 2. En milli kl. 10 og 12 og
að lokinni guðsþjónustu verður
hægt að skoða Bústaðakirkju,
og verða leiðsögumenn á staðn-
um til þess að útskýra teikning
ar og segja frá því, hvernig hag
nýta á kirkju og safnaðarheim-
ili fyrir ýmiss konar starf.
Ferðahappdrætti.
Þá efnir söfnuðurinn til ferða
happdrættis til fjáröflunar fyrir
kirkjubyggingarsjóð. Eru þar
margir glæsilegir vinningar og
þar á meðal 16 daga dvöl fyrir
tvo á hinum vinsæla sumarstað
Mallorca á Spáni á vegum Ferða
skrifstofunnar Sunnu. Þá má
nefna flugfar með Loftleiðum
til New York og Flugfélagi ís-
lands til Kaupmannahafnar, jóla
ferð með Gullfossi og siglingu
með Sameinaða til Kaupmanna-
hafnar. Þá er einnig ferð með
Guðmundi Jónassyni að fjalla-
baki, ferðaritvéi, ferðarakvél,
svefnpoki og síðast en ekki sízt
hestur. Er ekki að efa, að marg-
ir munu styðja byggingu Bú-
staðakirkju og freista gæfunnar
með því að kaupa happdrættis-
miða.
Velvild og framkvæmdir.
Söfnuðurinn hefur notið vel-
vildar margra, og slíkt ber að
þakka. Þær eru orðnar margar
krónurnar, sem safnaðarfólk og
aðrir hafa látið í byggingarsjóð-
inn. Ungir sem gamlir hafa kom
ið með söfnunarbaukana og lof-
að mánaðarlegiun framlögum í
byggingarsjóð. Enda sýnir kirkj
an það, að samtakamátturinn er
mikill. En þó þakklæti sé i huga
vegna þessa áfanga, sem nú er
niáð, má ekki láta það nægja,
heldur keppa ötullega að því,
að kirkjan rísi. Fjölbýl hverfi
eru að rísa á mörkum Bústaða-
sóknar, fólkið, sem þar reisir
'heimili, mun einnig þurfa á
kirkju að halda, ekki síður en
þeir, sem nú eru að koma upp
sínu kirkjuheimili. Bústaða-
kirkja er þannig hugsuð, að hún
geti orðið slíkt heimili og vett-
vangur mikils starfs fyrir bæði
unga sem gamla. Hennar er
þörf, og þeir munu margir, sem
spyrja sjálfa sig undrandi að
því, eftir að kirkjan er upp-
komin, hvernig allt hafi verið,
áður en hún reis.
Ólafur Skúlason.
KOSNINGASKRIFSTOFUR
A
LISTANS
REYKJAVÍK:
Suðurlandsbraut 12, opið daglega kl. 5-10, sunnudaga kl. 2-6.
SÍMAR: 812222 -— 81223 — 81224 — 81228 —
81230 — 81283.
Hverfisgötu 4 opið daglega kl. 10-10, sunnudaga kl. 2-6.
SÍMAR: 11260 — 10671.
Upplýsingar um kjörskrá og aðstoð vegna utankjörfundarat-
kvæðagreiðslu er veitt á skrifstofunni að Hverfisgötu 4.
REYKJANESKJÖRDÆMI:
Alþýðuhúsinu, Strandgötu 32, Hafnarfirði, opið daglega kl.
14-22. SÍMI; 50499.
Auðbrekku 50, Kópavogi. opið daglega kl. 16-19. SÍMI; 42419.
Smáraflöt 9, Garðahreppi, opið eftir kl. 7 síðdegis. SÍMAR:
42556 og 42557.
Hafnargötu 79, KeHavík. SÍMI: 1212.
VESTURLANDSKJÖRDÆMI:
Félagsheimilinu Röst, Akranesi, opið kl. 13-19 og 20-23.
SÍMI: 1716.
VESTFJARDAKJÖRDÆMI:
ísafjörður: Kosningaskrifstofan er 1 Alþýðuhúsinu. Opin kl.
10-10. SÍMI 702.
NORÐURLAND VESTRA;
Borgarkaitti, Siglufirði. SÍMI: 71402.
Knarrarstíg 1, Sauðárkróki. SÍMI: 61.
NORÐURLAND EYSTRA:
Strandgata 9, Akureyri, opið kl. 9-10 og 20-22. SÍMI: 21322.
AUSTURLANDSKJÖRDÆMI:
Nesgata 3, Neskaupstað, opið kl. 20-22. SÍMI: 274.
SUDURLANDSKJÖRDÆMI:
Heimagata 4, Vestmannaeyjum, opið daglega kl. 17-19.
SÍMI: 1060.
Austurvegi (gömlu símstöðinni), Selfossi. Opið daglega kl. 17-
22. SÍMI 1630.
Kosningaskrifstofurnar veita upplýsingar um kjörskrá og að
stoða við utankjörfundarkosningu. — Alþýðuflokksfólk er
hvatt til að hafa samband við skrifstofurnar og gefa allar
þær upplýsingar, sem að gagni mega verða.
10 júní 1967
ALÞYÐUBLABIÐ