Alþýðublaðið - 25.06.1967, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 25.06.1967, Blaðsíða 6
6 Sunnudags Alþýðublaðið — 25. júní 1966 - j ■ \ ■ agýtt(,A,r, ■ " / ! / jp§jðpKB| Hll«1 ■:<Í : /Ji ' ... wtfjtfciiV,.; '■'• 4 (k&tðHkhtÍl. Dekk reynd hjá Ford með því að láta springa á 90 km. hraða •SPOítTBÍLL á ibeztu fáanleg- urn hjólbörðum getur nú stanz aö á rumlega 20 metrum á sléttum, votum vegi, þótt hon- um hafi verið ekið með rúm lega 50 kílómetra hraða á klst. Fyrir tíu árum hefði þetta ver ið ólíklegt, og fyrir tuttugu árum órnögulegt. Fjarlægðin, sem þurft hefði til að stöðva bílinn, hefði verið tvi-svar sinn um lengri og hættan á, ,að bíllinn hefði runnið hættulega út á hlið hefði verið miklu meiri, Enginn hluli bílsins hefur tekið jafnmiklum framförum og skjótum og hjólbarðamir á árunum eftir stríð. Mönnum gleymist oft að lofa að verð- leikum framleiðendur hjól- barða fyrir framfarirnar, sem gera bílinn stöðugri á vegin- um, þægilegri' og öruggari við hemlun. Framlag hjólbarða- hönnunar til öryggis á vegum hefur ekki verið minna um vert. Tuttugu tonna vörubíll á venjidegum börðum, segjum, að hann sé tveggja ára gamall og nokkuð tekinn að slitna, þarf að minnsta kosti 65 metra til að stöðva af rúmlega 50 km. (35 mílna) hraða á slétt- um, votum vegi. Á nýjustu vörubíladekkjum hefur ná- kvæm rannsókn á mynztri skoranna og notkun efnasam- banda, sem gripa vel í veginn, minnkað stöðvunarvegalengd- ina niður í 35-40 metra. Og rannsókn ^ gerð hjólbarða er stöðugt haldið áfram hjá stór fvrirtækjum En það er aug- ljóst, að enn er þörf fyrir end urbætur, þegar haft er í huga, nð rannsókn í Bretlandi sýnir, að í einu af hverjum þrem slysum hefur verið um eitt- hvert hliðarrennsli að ræða. Þó hjólbarðaframleiðendur séu ekki alltaf áfjáðir í að keppa hver við annan í verð- lngi, þá er enginn efi á því, að gífurleg samkeppni ríkir í rannsóknum og framleiðsluað- ferðum. Frumrannsóknir þær, sem Dunlop gerði á svokall- aðri ,,aquaplaning“ — því fyrir bæri, að hjólbarðj missir hald á míklum hraða í vætu — hafa leitt til gífurlegra endurbóta í skurðarmátum. Á sléttum vevj í hóflegri rigningu á 90 km. hraða þarf hver hjólbarði sð losa sig við um átta pela af vatni á sekúndu undan snertifleti, sem ekki er stærri en skór númer 36, ef hann á að ná nokkru umtalsverðu gripi eða haldi. Til að hemla gegn ,,aquaplaning“ eða vatns svifi eru allir nýtízku hjól- barðar gerðir með mörgum skorum til að dreifa þessu samansafnaða vatni. Annað atriði, sem menn gera sér nú miklu betur grein fyr ir en áður, er hraðakstur og áhrif hita á hjólbarða Frétta ritari eins af brezku blöðunum skýrir frá því, er hann ný- lega var viðstaddur tilraun með nýjan hjólbarða hjá Good year-verksmiðjunum í Lúxem- borg. Þessi barði var ætlaður fyrir kappakstursbíla. Barðinn var iátinn snúast á stóru hjóli, og þegar hraðinn var kominn upp í 195 km. hraða myndað ist dýnamísk bylgja og brátt tóku stykki að rifna út úr barð anum — og endaði með því að barðinn var gjörónýtur á 225 km. hraða. Hins vegar munu nýjustu nylon-dekkin, sem notuð eru á Aston Martin DB 6 og Jaguar E, örugg upp í 240 km. hraða. Samkeppni hjólbarðaverk- smiðjanna er hvergi meiri en á kappaksturbrautunum og stórfyrirtækin, Dunlop, Fire- stone og Good-Year, eyða bók staflega milljónum króna í að sjá fyrir hjólbörðum í alla helztu kappakstra í heimi Michelin-verksmiðjumar munu vera komnar einna lengst í gerð nýrrar tegundar hiólbarða, sem mjög vinna á, en þar liggja lögin í dekkinu þvert á sólann. 1948 gerðu þær verksmiðjur X-gerðina af geislabarða fyrir Citroen bíl með framhjóladrifi. í þeim barða var fíngert stálnet undir sólanum. Þó að endingin væri næstum þrisvar sinnum lengri, þá varð stýringin þyngri á litlum hraða og bíllinn varð hastari, en samt er almennt vi-ðurkennt, að Michelen hafi þarna náð athyglisverðum ár- angri. Annar barði, sem Michelin er nú með, nefnist XAS. Hann er ekki samloka. Venjulega er skurðurinn eða mynztrið á barðanum eins sitt hvoru meg in við miðju hans. En á þess um barða er smáskorin þykk Dekk reynt með því að aka yfir brotnar flöskur og beitta hluti. rönd en miklu opnari skurður að innan Halda þeir því fram, að með þessu fáist meiri styrk ur í ytri hliðina, sem mest reynir á í beygjum. Enn er of snemmt að spá um, hvort slíkir barðar eru það, sem koma skal, og það skal tekið fram, að ósamloka barðar eru enn 15% dýrari en flestir aðrir. Hins vegar er upphafsverð ekki það, sem mestu máli skiptir, eins og sést á því að geisla-baröar eru nú 25% dýrari en venju- legir kross-barðar. og þó vinna þeir á. Þess má að lokum geta, að í ýmsum bílum, eins og t. d. Hover 2000 og Citroen DS bef ur fjöðrunin verið könnuð sér staklega með tilliti til sér- stakra gerða af börðum, og má búast við, að framhald verði á þeirri þróun. Auk þess má búast við áframhaldandi fram- förum í gúmmísamblöndum, er hamla hliðarrennsli, í mynztri sólans og gerð búks hjólbarð ans sjálfs vanbróaðra landa EIGI efnahagsvöxtur vanþróuðu landanna að verða eins ör og æskilegt væri, verða þau að fá árlega fra 1070 15 milljarða dollara í erlendri fjárfestingu, en nú nemur þessi fjárfesting aðeins 7,5 milljörðum. — Þetta kann að virðast óvinnandi verk, þar sem hér er um að ræða tvö- falda upphæð. En í rauninni er ekki þörf á mörgum örvandi að- gerðum til að fá fjármagn til að streyma til þessara landa í ríkara mæli cn nú á sér stað, og það á fullkomlega eðlilegan Ihátt. Þessu var haldið fram ekki alls fyrir löngu í tímariti Sam- einuðu þjóðanna, „UN Monthly Chroniclc", af einum kunnasta sérfræðingi um þróunarhjálp, Paul G. Hoffman, sem var áður forstjóri Marshall-'hjálparinnar, en stjórnar nú Þróunariáætlun Sameinuðu þjóðanna (UNDP). Hoffman gerir ráð fyrir, að þeir 7,5 milljarðar, sem á vantar, mundu fást í mynd venjulegra bankalána og einkafjárfestingar, ef hægt væri að útvega vanþró- uðu löndunum árlega lán, sem næmu 1 milljarði á lágum vöxt- um auk 500 milljón dollara fjár- hagsaðstoðar áður en fjárfesting kcmur til framkvæmda. Á sama tíma og brúttó-þjóðar- framleiðsla iðnaðarlandanna nemur 1500 milljörðum dollara og eykst um nálega 50 milljarða 6 ári, ætti þetta ekki að vera neitt ofverk, segir Iioffman. Þrjár milljónir deyja. Andstæðurnar milli auðæfa og allsleysis í þessum heimi eru þverstæðukenndar, segir hann. Meðan við lifum við allsnægtir og óskiljanlega möguleika, láta á hverju ári þrjár milljónh- manna lífið af völdum hungurs og vannæringar. Framfarirnar á sjöunda ára- tuginum, hinum svonefnda þró- unaráratugi, hafa orðið hægari en menn Ihöfðu gert sér vonir um. Takmarkið er að árið 1970 verði hagvöxtur vanþróuðu land anna kominn upp í 5% árlega. í flestum þeirra nemur vöxtur- inn nú minna en 4%. Með hlið- sjón af fólksfjölguninni er þetta ekki nægilegt til að bæta lífs- kjörin að neinu marki. Fjár- festing og fjárhagsaðstoð hinna auðugu landa hefur aukizt mjög óverulega síðan 1960, og i þess- um löndum vaxa vonbrigðin yf- ir árangri hinnar „erlendu hjálp ar“, en þá nafngift telur Hoíf- man villandi. Ástæða til bjartsýni. Þrátt fyrir þessi neikvæðu at- riði eigum við, að dómi Hoff- mans, nánast að fagna þeim horfum sem eru á örari þróun- arvexti á næstu árum. 1. í fyrsta lagi hafa bæði ein- stök lönd og hinar alþjóðlegu hjálparstofnanir öðlazt reynslu, sem tryggir betri og skjótari ár- angur í framtíðinni. 2. í öðru lagi starfa bæði þau lönd, sem veita hjálp og þau, sem taka við hjálp, á raunsærri Framhald á bis. 14.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.