Alþýðublaðið - 25.06.1967, Blaðsíða 14

Alþýðublaðið - 25.06.1967, Blaðsíða 14
u Jarðarför ... Frh. af 10. slöu. voru bæði mjög harmþrungin. Bóndi bar litinn setbekk, sem hann setti við hlið líkkistunnar. Þau settust bæði á’ hann. Kon- .an var með hvítan klút í hend- inni, sem hún bar upp að aug- unum. Svo drúptu þau bæði höfði. Það mátti greina hæga kippi í herðum konunnar, en hvíti klúturinn huldi andlit henn- ar. Kolbeins prestur var klædd- ur sinni silkifögru hempu, sem aldrei brást að var áferðar- hrein og táknaði ótakmarkað um- boð heilagrar þrenningar. Léttur roði í andliti hans, vitnaði um geðshræringu. Hann gerði öðr- um manninum sem sat á borð- stubbnum vísbendingu. Maður- inn tók sálmabók úr vasa sín- um, opnaði hana, fletti nokkr- um blöðum, svo byrjaði hann að syngja sálminn: „Kallið er kom- ið”. Báðar konurnar sungu með honum. Þegar sálmurinn var á enda, gekk prestur einu skrefi nær kistunni og las bæn án þess að hafa bók í höndum. Að henni endaðri hélt ég að þessari athöfn í heimahúsum væri lokið, nema ef stuttur sálmur væri að síð- ustu sunginn. Aðrir viðstaddir hugðu víst hið sama. Hin harm- þrungna móðir tók klútinn frá andlitinu, sem flaut í tárum, en þá gekk prestur fast að kistunni, lagði vinstri hendina á lokið framanvert, lét augun snöggvast reika frá einum til annars í stofunni og öllum var ljóst að hann ætlaði að flytja húskveðju, sem var þó óvenjulegt, þegar ungt barn átti að greftrast. Prestur þagði nokkur andar- tök; svo byrjaði hann mál sitt á því, að fyrir nokkru hefðu stórkostlegir atburðir gerzt suð- ur á Sikiley: Þar hefði verið borg með tvö hundruð þúsund í- búum. Hin fátæka og fámenna íslenzka þjóð ætti örðugt' að gera sér í hugarlund, að ein borg væri svo stór, að slíkur fólksfjöldi gæti átt heima á einum stað. En Messina, svo hét' borgin, hefði haft þá íbúatölu. í borginni hefði verið mikil velmegun und- ir hinni suðrænu sól, þar sem vín, ávextir og gróður hinnar óendanlegu frjósemi, hefði brauðfætt hið mikla fjölmenni. Fólkið hefði lifað áhyggjulitlu lífi svo sem forfeður vorir í ald- ingarðinum Eden. Þessi borg hefði verið margar aldir að vaxa og aukast að fólksfjölda og vel- megun. En svo hefði það borið til, einn morgun, fyrripart vetrar, raunar væri þar aldrei neinn vet- ur, þó árstíðunum væri skipt eins og í okkar köldu og hrjóstr- ugu löndum, að ægilegur jarð- skjálfti hefðj á stuttri stundu lagt mestan hluta þessarar stóru borgar í rúst. Húsin hefðu á fáum mínútum hrunið saman og grafið fólkið í tugþúsunda tali, lemstrað dautt og lifandi undir grjót- og múrdyngjum. Svo hefði himinhá flóðalda skollið á borg- inni og aukið eyðilegginguna, eins og öll máttarvöld himins og jarðar hefðu ásett sér að þurrka út allt líf á þessum stað. Þarna hefðu látið lífið 80—90 Sunnudags Alþýðublaðið — 25. júní 1963 þúsund manns á' skammri stundu. Þeir sem lífi héldu, ætluðu að hinn mikli dómsdagur væri kom- inn og að allur heimurinn væri að farast. Áttatíu þúsund manns, karlar, konur og böra á öllum aldri voru á nokkrum mínútum kölluð til annars lífs, sem var eflaust miklu þýðingarmeira en það, sem við lifum hér á jörð- unni. Sjálfsagt hefði drottni alls herjar bráðlegið á svona mörgu fólki til áríðandi starfa í ríki sínu annars heims. Sú staðreynd að við öll yrðum eitt sinn að deyja væri óumflýjanleg. Hinn mikli, alvitri og algóði guð, sem elskaði börnin sin þessa heims og annars, yrð að ráða því hve- nær hann kallaði þau til sín héðan af jörðunni í sinn óendan- lega náðarfaðm og fengi þeim svo áríðandi starf í öðrum heimi. En þar væri lífið, inntak kærleikans og alsættis hins full- komna framhaldandi lífs. Að þessu háleita takmarki léti drottinn mannssálirnar vinna eft- ir kringumstæðum á hverjum tíma. Hann kallaði börnin sín til sín og fengi þeim mikilvæg störf þar sem hann vissi þörfina mesta. Drottinn gjörir vindana að sendiboðum sínum og bálandi eld að þjóni sínum. Hér í þessu húsi hefur skeð mikill atburður: Húsfreyjan fæddi dreng, hreinan af synd heimsins eins og öll börn eru. Enginn vissi hvaða örlög biðu reifabarnsins. Faðir og móðir fundu og glöddust við það, að tilkoma þess í þennan heim full- nægði tilganginum, sem öll mannkind þráir að auka við heiminn nýju lífi, sem ef vel fellur, stækkar heiminn og gjör- ir hann betri en áður. Lífshlaup hvers einstaklings er skamm- vinnt, því að þótt einn maður verði áttræður að aldri, er það eins og eitt augnablik af allri eilífðinni. Hinn mikli, alvitri og algóði guð, hefur allt ráð al- heimsins í hendi sinni. Þegar borgin Messina féll í rúst á skammri stundu og áttatíu þús und manns létu lífið, ætlaði hann þeim öllum mikilvægt hlut- verk í öðrum heimi. Eins mun því hafa verið farið, er hann kallaði sál litla drengsins t'il sín. Eitthvert þýðingarmikið verk- efni kallaði að, sem þessi eina óspillta barnssál gat leyst' og engin önnur. Ég vil segja ykkur það syrgjandi foreldrar: Þið skuluð ekki vera lirygg. Jesú sagði: Leyfið börnunum að koma til mín; þeim heyrir guðsríki til. Almennt hyggja menn ekki að mikilvægi þessara orða Krists; en í þeim er fólgin vissa fyrir því, að börn og ungt' fólk, sem er skammlíft, á í vændum bjarta og þýðingarmikla fram- tíð í dýrðarríki drottins allsherj- ar. Kæru sorgmæddu foreldrar og þið, sem eruð hér stödd: Við skulum öll vera glöð. Þessa barns sál hefur Gu'ð útvalið úr þús- undum, til þess að gera sitt dýrðarríki ennþá bjartara og fullkomnara. Hinn mikli spek- ingur Spinóza hefur sagt: — „Fingur drottins eru í öllum hlutum.” Kolbeins prestur flutti þessa ræðu með sterkum og skýrum rómi, sem var "hönum eiginleg- ur. Hann horfði ekki á líkkistuna, ekki heldur á foreldrana eða okkur hin, sem vorum þarna við- stödd. Augnaráð hans var fjar- rænt, eins og því væri beint út yfir venjulegt skynjunarsvið. Það var því líkast, að hann festi sjónir á stjórnarráði drottins alls herjar og greindi hvað þar var að gerast: að litla barnssálin væri orðin mikilvægur aðili að stórmálum himnaríkis. Foreldrarnir urðu sem aðrar manneskjur undir ræðunni. — Konan réttist í sæti sínu. Hún tók hvíta klútinn frá augunum og hætti að gráta. Hún lét höndurnar hvíla í skauti sínu og drakk hvert orð af vörum sálu- sorgarans, eins og þyrstur mað- ur svalandi drykk í eyðimerkur- auðnum mannlífsins. Við öll, sem vorum þarna inni, fundum að við vorum ekki í neinu sorgarhúsi. Við vorum að fylgja til grafar stórmenni, sem hafði verið kallað til þýð- ingarmikilla starfa af sjálfum guðdóminum. Að ræðunni lokinni, tók for- söngvarinn sálmabókina úr vasa sínum og byrjaði sálminn: „Á hendur fel þú honum.” Prestur hóf sönginn með honum og yf- irgnæfði tónfræðinginn og kon- urnar, sem fylgdust með í kven- legri hlédrægni. Ég tók líka undir, þó ég kynni ekkert lag og því síður sálminn. Ég sá, að foreldrarnir bærðu varirnar. Kannski sungu þau líka. Ég gat ekki greint það. Allur söngur hefur verið í eyr- um mínum frá því ég man eftir mér óskiljanlegur samhljómur, djúpra tilfinninga, sem ég 'hefi ekki getað sundurgreint. Þegar sálmurinn var á enda, var líkkistan tekin af forsöngv- aranum og manninum, sem hafði setið hjá honum á borðpartinum og borin út og lögð á lítinn krakkasleða, sem var fyrir utan liúsdyrnar. Prestur laut að mér og sagði mér, að nú skyldi ég fara að búa út úttektarvöruna á stóra sleðann. Ég þyrfti ekki að fylgja sér í kirkjugarðinn, þar sem barnið yrði jarðsett. Þegar ég var kominn nokkurn spöl eftir götunni, sem var lítið meira en einsporabraut í snjó- inn eftir gangandi fólk á' síð- ustu klukkustundum, leit ég til baka. Litla barnskistan sat á sleðanum einmana og yfirgefin. Líkfylgdarfólkið var víst inni í húsinu að tygja sig til ferðar. Mér flaug í hug: Þarna er mik- ilmenni í litlum umbúðum, sem eru þó við hæfi. Kolbeins prest- ur veit betur en aðrir menn. Sýnir hans opna honum aðra heima. VangaveEtur ,. Frh. af 2. síðu. hversdagslega er kallaff ham- ingja og formáli aff því aff geta notið, því aff mannlíf er sam- skipti. En í dag er þaff ekki fínt. í dag er ekki fínt aff vera óeigingjarn. Effa réttara sagt: í dag krefst þaff, sem fínt þyk- ir, alls annars en óeigingirni. Þaff eignast enginn viliu í Arn arnesinu meff' eintómri óeigin- girni, effa bíl sem á götunni minnir á tundurspilli á fullri ferff, effa er settur í framboff xneff von um þingmennsku . . . Ég veit ekki nema mönnum finnist aff ég ætli hér aff smeygja mér inn um lieldur þröngar dyr, en þaff er mín skoffun, aff fórnfýsi manna viff flokka sína um kosningar stafi almennt ekki fyrst og fremst af von um persónulegan hagn- aff, og ekki heldur af áhuga á velferff almennings, heldur af efflilegri þörf mannsins fyrir aff eiga eitthvaff, sem maffur vinnur fyrir án endurgjalds. Aifkið fjármagn Frh. af 6. síðu. hátt. Menn hafa komizt að raun um, að fjármagnið eitt er ekki nægilegt. í stuttu máli veltur meira á því að lagfæra efnahags leg, félagsleg og pólitísk grunn form vanþróuðu landanna en að istuðla að tilfallandi innflutn- ingi fjármagns, tæknmenntun- ar eða tækja. 3. í þriðja lagi verður það æ Ijósara, að fátækt vanþróuðu landanna stafar ekki af skorti á efnislegum eða mannlegum úr- ræðum, heldur af því að þessi úrræði eru illa toagnýtt. — Á þessu ástandi má ráða bót. 4. Loks' má finna uppörvun í þeim framförum, sem þegar toafa orðið í nokkrum vanþróuð- um löndum. Hjá þeim nemur hagvöxturinn yfir 5% og í nokkr um tilvikum er hann 10% eða meira. Það sýnir hverju má til leiðar koma með öflugu og skyn samlegu starfi af hálfu yfirvalda og þegna og með viturlega hugs- aðri og skipulagðri aðstoð er- lendis frá. Tvöföld fjárfesting. Aðstoð erlendis frá er megin- inntakið í grein Hoffmans. Hann ekýrir frá, hvað Þróunaráætlun. Sameinuðu þjóðanna (UNDP) toefur gert á fyrsta starfsári sínu. UNDP hófst handa í janúar 196S eftir sambræðslu Tækníhjálpar Sameinuðu þjóðanna og Fra**- kvæmdasjóðsins. Viðleitni UNDP toefur fyrst og fremst beinzt að því að und- irbúa jarðveginn og ekapa skil- yrði í vanþróuðum löndum fyr- ir eðlilega fjárfestingu. Hoffman nefnir í grein sinni, að opinber- ar- og einka-fjárfestingar, sem séu bein afleiðing af starfi UN- DP, hafi tvöfaldazt á árinu 196S. Þær nema samtals 1642 milljón- um dollara. Af þeírri upptoæð koma 1029 milljónir erlendis frá, en 613 milljónir frá innlendum aðiljum. Jt SKIPAtlTGCRB RIKISlNSj M.S. Baldur fer til Snæfellsness og Breiffa- fjarðarhafna á þriffjudag. — Vörumóttaka á mánudag. BREYTT SIMANUMER NÚMER OKKAR ER NÚ 19345 Tékkneska bifreiðaumboðið ' VONARSTRÆTI 12. Hjartkær eiginmaður minn GUÐBJARTUR S. B. KRISTJÁNSSON, Ásgarði 127, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju. þriðjudaginn 27. júní kl 13,30. Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim, sem vildu minnast hins látna er vinsamlegast bent á Krabbameinsfélagið. Fyrir liönd vandamanna it Andrea Helgadóttir. ♦

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.