Alþýðublaðið - 06.07.1967, Page 7

Alþýðublaðið - 06.07.1967, Page 7
I Gestur Guðfinnsson; UNDIR BERU LOFTI SNÆFELLSJ ÖKULL er að flestra dómi tilkomumikið fjall og hefur sjálfsagt alltaf þótt það. Ekki get ég þó varizt þeirri hugsun, að viðhorf út- róðtoruanna í verstöð\4mum| undir Jökli fyrr á tímum hafi verið dálítið önnur í þessum efnum heldur en bæði mín og annarra, sem heiðrum Jökul- inn með nærveru okkar á hvítasunnunni ár hvert eða öðrum tyllidögum og lofum hann hátt og í hljóði. Allt fi’am um síðustu alda- mót fóru Breiðfirðingar, innan úr eyjum og víðar, til róðra út undir Jökul og sóttu sjó úr verstöðvunum þar, einkum úr Dritvík og frá Hellissandi. Frá þeim tímum er þessi ágæta vísa: ílengjast ég ætla mér undir Snæfellsjökli, kuldalegur karlinn er, klæddur snjóahökli. Okkur, sem nú erum þarna á flandri, er óneitanlega tam- ara að nota önnur lýsingarorð um Jökulinn en að hann sé kuldalegur, þótt víst eigi það við á' stundum. Svo hefur sjálf- sagt verið, þegar Ingjaldur bóndi á Ingjaldshóli reri til fiskjar forðum daga. Þá „drö upp flóka á Ennisfjalli og gekk skjótt yfir. Þar næst kom vindr ok fjúk með frosti.“ Og gerði veður svo sterkt og myrkt, að eigi sá stafna milli. Þann dag var komið upp á skjá heima á Ingjaldshóli og kveðið þetta með dimmri raust: ) Út' reri einn á báti Ingjaldr í skinnfeldi. Týndi átján önglum Ingjaldr í skinnfeldi ok fertugu færi Ingjaldr í skinnfeldi. Aftr komi aldri síðan Ingjaldr í skinnfeldi. Annars láta flestir Jökulsins að litlu getið á seinni öldum í skrifum sínum. Sá kunni for- maður og sjósóknari, Snæbjörn í Hergilsey, sem reri vertíð eftir vertíð frá Hellissandi og hafði hann daglega fyrir aug- unum á sjó og landi, nefnir hann varla á nafn í ævisögu sinni, en talar hiris vegar um ..blessaðan sjóinn”, sem var honum þó ekkí alltaf sérlega dæll. Þuríður Jónsdóttir, vinnu- kona séra Eggerts á Ballará, reri niargar vertíðir í Dritvík, þar sem Jökullinn blasir við í allri sinni dýrð. Þess er þó ekki getið, að hún minntist hans að neinu, aftur á móti er í frásögur fært, að hún talaði um „indælið að róa í Vík” og // KULDALEGUR KARLINN ER // raulaði jafnan þessa vísu fyrir munni sér: í Vík að róa víst er mak. Vík er nóg af dyggðum rik. í Vík á drottinn vænt stak. Vík er Paradísu lík. í Þetta má teljast djai-flega kveðið um þann stað á jarð- kringlunni, þar sem synd- samlegast líferni kvað hafa verið iðkað fyrr og siðar að Sódómu og Gómorru ekki und- anskilinni, enda eyddi drott- inn byggðina, ekki aðeins i Dritvík, heldur á allri strand- lengjunni frá Malarrifi út á Öndvei’ðárnestá, svo að þar sést ekki einu sinni saltstólpi í kvenmannsmynd, aukin held- Ég á' orðið nokkuð márgar ferðir á Snæfellsjökul og aliar góðar, enda er fjölbreytilegt landslag á Nesinu og margt að sjá og skoða. Því til viðbótar hafði mig lengi langað til að virða hann fyrir mér úr lofti, en aldrei átt þess kost. Fyrir tilviljun barst tækifærið upp í hendur mér. Það var hérna á árunum, þegar mest var í tízku að sjá eldgos alls stað- ar, bæði á sjó og landi. Þá bar svo við einn góðan veðurdag, að hringt var til Alþýðublaðs- ins vestan úr Rifi og tilkynnt, að ef til vill væri Snæfells- jökull að byrja að gjósa, hvítir gufubólstrar stigju til lofts sunnan við Geldingafellið og að öllum líkindum væri von meiri tíðinda. Alþýðublaðið brá skjótt við eins og góðu frétta- blaði sæmdi og sendi menn á vettvang til að kynna sér at- burði og taka myndir af eld- stöðvunum, en jarðfræðingur Snaefellsjökull, „Þúfurnar“_ var fenginn til að punta upp á ferðalagið. Ég var svo hepp- inn að komast í þessa ferð og þó að tíðindanna gætti lítið í blaðinu daginn eftir, þá varð þessi flugferð sannkölluð lysti- reisa fyrir mig. Þegar vestur kom fyrir- fannst auðvitað ekkert eldgos og sást ekki svo mikið sem skýhnoðri á lofti, jafnvel hin- ir dularfullu gufubólstrar Rifs- aranna voru allir á bak og burt. Flugvélin hnitaði nokkra hringi yfir jöklinum, hvítum og hreinum, og Þorleifur Einars- son, en sá' var jarðfræðingur- inn, fræddi okkur ósköpin öll um sköpun heimsins og þó Snæfellsnessins sérstaklega, enda er hann allra manna fróð- astur um þann veraldarinnar punkt. M. a. held ég hann hafi frætt okkur á því, að Snæfells- jökull hefði ekki gosið síðuslu tvöþúsund árin og þó að í því felist kannski ekki nein eilífð- artfygging, þá er slíkt samt nokkur huggun fyrir hinar blómlegu verstöðvar og þorp, sem eru að vaxa upp undir Jökli. En fallegur var Snæfellsjök- ull þennan dag og gaman að eiga þess kost að virða hann fyrir sér úr lofti, þó að ég taki raunar fjallgönguna franx yfir flugið. Það er kannski út í hött, að fara að barna þetta spjall með kosningasögu, en mér dettur hún stundum í hug, þegar ég á milli ferða að velja og Snæ- fellsjökull er í boði. Það var á kosningadaginn í alþingis- kosningunum árið 1963, að við efndum til ferðar á Skjaldbreið nokkur saman. Þegar upp var komið fór einhver að impra á því, hvort við myndum ná í bæinn áður en kjördeildurp yrði lokað klukkan ellefu og þótti okkur tvísýna á því. Ölí- um þótti hins vegar einsætt að neyta atkvæðisréttarins og þó að vísu væri ekki auglýstur kjörstaður uppi á' Skjaldbreið, þá varð niðurstaða umræðn- anna sú, að við útbjuggum eins konar kjörseðil, þar sem á var ritað: Við kjósum Skjald- breið. Þrátt fyrir mismunancíi skoðanir á landsmálum og flokkum greiddu allir viðstadd- ir fjallinu atkvæði og rituðu nafn sitt undir ti) staðfesting- ar. Skjaldbreiður átti sýnilega miklu fylgi að fagna. Því er ekki ólíkt farið með SnæfellS- jökul. Enginn þarf að fara í grafgötur með hvaða fjall er fylgismest á Snæfellsnesi og þótt stærra svæði væri nefnt. Jökullinn er þar í öruggu sæti. Þegar hann er í framboði er maður ekki í neinum vandræð- um með atkvæðið sitt. Dritvík, Tröllakirkja til hægri. 6- júlí 1967 ALÞÝÐUBLAÐIÐ J

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.