Alþýðublaðið - 06.07.1967, Blaðsíða 14

Alþýðublaðið - 06.07.1967, Blaðsíða 14
HAPPDRÆTTI HASKOLA ISLANDS Á mánudag verður dregið í 7. flokki. 2.200 vinningar að fjárhæð 6.200.000 krónur. Á morgun er síðasti heili endurnýjunardagurinn. Bappdrætii Háskóla íslands 7. FLOKKUR 2 á 500.000 kr. 2 á 100.000 — 74 á 10.000 - 298 á 5.000 — 1.820 á 1.500 — Aukavinningar: 4 á 10.000 kr. 2.200 1.000.000 kr. 200.000 — 740.000 1.490.000 —. 2.730.000 — 40.000 kr. 6.200.000 kr Hraðbrautir 'W Frh. af 3. síðu. tir, en Krmglumýrarbraut, sem Iögð verður áfram yfir Bústaða- Iiæð og til Kópavogs, látin taka Iilutverki hans. Þaðan mun vegur- fnn liggja áfram til Hafnarfjarð- ar á svipuðum slóðum og hann ér nú. Áætlað er að brautinni gegnum Kópavog verði lokið á þremur til íjórum árum. Kostnaður við fram kvæmdina værður u.þ.b. 70 millj- ónir. og ver Kópavogskaupstaður til hennar öllum benzínskatti sín- um fram til 1970, en hluta hans eftir það Ríkið leggur til % hluta af 10% sjóði fram til 1970, en eftir það gengur hann allur til greiðslu á lánum til vegalagn- ingarinnar sem ríkið útvegar og ábyrgist. 10% sjóður er sá hlut' benzínskatts sem samgöngumála- i'áðherra hefur til umráða. Verkfræðistofa Stefáns Ólafs- sonar hefur annazt undirbúning að útboðslýsingu verksins og mun skila henni í þessum mán- •uði. Nokkrar stórbrýr eru í bygg- igu, þar á meðal yfir Jökulsá á Breiðamerkursandi, byrjað var á benni í fyrra og smíði hennar langt komið. Verið er að byggja brú vfir Brúará hjá Spóastöðum og leggja veg að henni. Smíði þessarar brúar var frestað á síð- asta ári vegna athugana á öðrum brúarstæðum, sem betur hen,t- uðu framtíðarskipulagi í Skál- liolti, en endurbygging brúar skammt fyrir ofan gömlu brúna. Horfið var frá því að færa þjóð- veginn hjá Skálholti suður og vest ur fyrir staðinn og því ekki talin ástæða til að færa brúna neðar. í júní var hafin smíði brúar á Fnjóská hjá Hrísagerði. Þar er yfir sumarmánuðina um 500 bíla umferð á dag og er því vegurinn þar kominn í tölu hraðbrauta og verður brúin því byggð með tveim ur akreinum. — Ráðgert er að byggja brúna að mestu í ár, en þó verður henni ekki að fullu lokið fyrr en á næsta ári. Byrjað var í júní á brú yfir Eldvatn á Ásum, en þar var byggð ný brú 1965. Var það 54 metra iöng brú og kom í stað 24 m. járngrindabrúar, sem byggð var 1910. í hlaupi, sem kom í Skaptá í lok nóvember 1966, sópaðist burtu klettur í miði’i ánni, sem gamla brúin hafði staðið á og einn af millistöplum nýju brúar- innar. Við þetta seig brúin mik- ið og varð ófær til umferðar. í flóðinu lækkaði farvegur árinn- ar um 5 m. og foss, sem vei'ið hafði nokkru neðan við brúna færðist upp fyrir hana. Við könnun hraunhellunnar, sem er austan við ána, kom í Ijós, að hún er 15 m. þykk, en undir RÓSAMUNDU GUÐMUNDSDÓTTÚR María Ástmarsdóttir, Magnús Ástmarsson, Ingólfur Ástinarsson, Elín Ástinarsdóttir, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn, PÓLSKU TJÖLDIN „rjúka út“ en fjúka ekki henni er 7 m. þykkt lag af jarð- vegi. Hefur sá jarðvegur verið fyrir, þegar hraunið rann með- fram Skaptártungu 1789. Engin leið var að sjá þetta fyrir, þar sem hvergi í gljúfrinu var ann- að að sjá en heila klöpp. í lok janúar hrundi annar milli stöpull brúarinnar, sem stóð á austurbakka árinnar og hrundi þá öll yfii’bygging brúarinnar. — Brúin er endurbyggð á sama stað, en verður lengd um 10 m. austur í hraunið, en stöplarnir að vestan notaðir. Kostnaður er áætlaður 3 millj kr. í maí var og byrjað á brú yfir Jökulsá á Sólheimasandi, en þar var byggð brú á árunum 1921 — 22 og höfð löng vegna jökul- hlaupa, sem í ána komu. Farvegur árinnar er mjög grýtt ur á brúarstæðinu og þegar brúin var byggð voru engin tök á að grafa svo djúpt sem þurft hefði fyrir stöplum, þar sem eingöngu var um að ræða handverkfæri. Af þessum sökum hefur áin grafið undan stöplum nokkrum sinnum. Árið 1945 lokaðist brúin á aðra viku af þessum sökum, og seig þá landstöpull brúarinnar um 1 m. Haustið 1965 hrundi vest urlandstöpull brúarinnar og var hún þá stytt um eitt haf eða um 20 m. í janúar s. 1. gróf enn und an einum millistöpli með þeim afleiðingum, að öll umferð teppt- ist á aðra viku. Þar sem brúin á Jökulsá er cina samgönguleiðin fyrir alla byggðina í V.-Skapta- fellssýslu, var talið óhjákvæmi- iegt að endurbyggja brúna þcgar á þessu ári. því að í nýju flóði gæti hæglega svo farið, að brúin hryndi alveg og það gæti tekið marga mánuði að koma upp bráða birgðabrú- — Vei’ður brúin endurbyggð nokkru neðar við gömlu brúna, þar sem reka má staura undir stöpla. Kostnaður er áætlaður 12 millj. kr. Af smærri brúm í byggingu má nefna brýr yfir Flókadalsá hjá Brúsholti, Dýrastaðaá í Borg arfirði, Reykjafjarðará og Kjós- ará í Strandasýslu. Svartá hjá Stafnsrétt, Norðurdalsá hjá Tó- arseli, Holtsá undir Eyjafjöllum, Rauðalæk í Rangárvallasýslu, Gljúfurá og Bakkarholtsá í Ölf- usi. Ráðgert er að reisa brú yfir Hvítá í Borgarfirði á næsta ári og þá ekki hjá Kljáfossi eins og áður var ætlað heldur hjá' Bjarna stöðum. Eins og áður er sagt, hefur enn ekki verið aflað fjár til bygg ingar hraðbrauta, en unnið hefur verið fyrir lánsfé við Reykjanes- braut hjá Breiðliolti og lokið er við að tengja saman Keflavikui'- veginn hjá Setbergi. Búið er að ákveða legu Vest- urlandsvegar upp að Kollafirði og á hann að liggja í framhaldi af Miklubraut yfir Elliðaár, — litlu sunnar en gömlu bi’ýrnar eru fylg ir síðan gamla veginum upp að Grafarholti og að Korpu, þaðan niður fyrir undir Korpúlfsstaði og síðan yfir Leiruvoginn. Unnið er að vegaframkvæmdum í Hval- firði svo og samkvæmt Vestfjarða áætlun á Breiðadalsheiði, Þing- mannaheiði,' á veginum út í Bol- ungavík við veginn út á flugvöll- inn á ísafirði og verið er að fóðra Strákagöngin við Siglufjörð. Kísilgúr Framhald af 1. síðu. örari en áætlað 'hefði7 verið, og það sem er ekki síður athyglis- vert, byggingarkostnaður verður sennilega 10-12 prósent undir áætlun. Ástæðurnar kvað hann vera góðan undirbúning og skipu lag verkfræðifyrirtækisins Kais- er-Canada, 'hagkvæm innkaup, framúrskarandi gott starfsfólk og ekki hvað sízt það, að allt fjár- magn var fyrir hendi í upphafi verksins. Þegar full starfsemi er hafin verða ársafköstin 30 þúsund tonn, en samkvæmt markaðsverði í dag væru framleiðsluverðmæti verksmiðjunnar þannig um það bil 148 milljónir króna. Dr. Einar Tjörvi Elíasson, sem ráðinn hefur verið yfirverkfi'æð- ingur Kísilgúrverksmiðjunnnar sagði, að það svæði, sem nú er dælt úr botnleðju ætti að duga til næstu fimm ára, en síðan yrði hráefni tekið á svæði með eins kíiómeters radíus og þar væri forði til 25 ára. & SKIPAÚTGf.RB RlKi&INS M/S Heróubreiö fer vestur um land í hringferð 11. þ.m. Vörumóttaka á fimrntu- dag og föstudag til Patreksfjai’ð- ar, Tálknafjarðar, Bíldudals, Þjng eyi’ar, Flateyrar, Suðureyrar, Bol ungarvíkur, ísafjarðar, Ingólfs- fjarðar, Norðurfjarðar, Djúpu. víkur, Skagastrandai’, Blönduóss, Siglufjarðar, Ólafsfjarðai’, Gríms eyjar, Kópaskers, Bakkafjarðar og Borgarfjarðar Farseðlar seldir á mánudag. M/S ESJA fer austur um land í hringferð 12. þ.m. Vörumóttaka á fimmtu- dag og föstudag til Djúpavogs, Breiðdalsvíkur. Stöðvarfjarðar, Fáskrúðsfjarðar, Reyðai’fjarðar, Eskifjarðar, Norðfjai’ðar, Seyðis- fjarðar, Vopnafjarðar, Þórshafn. ar, Raufarhafnar, Akureyrar, og Siglufjai’ðar. Fai’seðlar seldir á föstudag. Ms Herjólfur fer til Vcstmannaeyja og Horna. fjarðar 12 þ.m. Vörumóttaka til Ilornafjarðar á þriðjudag. Blaðaútburður Drengur eða telpa óskast til ad bera Alþýðuhlaðið ti! kaupenda við Laufásveginn. [HKÍICÍP Sími 14900. 14 6- júlí 1967 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.