Alþýðublaðið - 06.07.1967, Blaðsíða 11
voru
sterkastir sigr-
uöu Islendinga í gær 2:0
- ..
ijplðsl
Islendingar eru í sókn, en boltinn hafnaði í höndu m markmannsins.
NÝLEGA er lokið fjói’um nám-
skeiðum fyrir börn og unglinga,
sem fram fóru á vegum fræðslu-
slsrifstofu Reykjavíkur. Námskeið
þessi sóttu um 2500 börn og ungl-
ingar. Námskeiðin voru:
íþrótta- og leikjanámskeið fyrir
börn á aldrinum 7 — 12 ára.
Námskeiðið var haldið sameig-
inlega af bai'naheimila- og leik-
vallanefnd, iþróttaráði Reykja-
víkur, ÍBR og Æskulýðsráði
Reykjavíkur.
Námskeiðið stóð yfir frá 26.
maí til 26. júní.
Þátttakendur voru í upphafi
námskeiðs 1180, en allmargir bætt
ust við síðar, svo að gera má
ráð fyrir að þátttakendur hafi ver-
ið 14—15 hundruð, þegar flest
var.
Námskeiðsstaðir voru 8, viðs
vegar í borginni. Kennarar voru
12. — Námskeiðinu lauk með í-
þróttamóti á Melavelli.
Sundnámskeið.
Sundnámskeið fóru fram í júní
mánuði á sundstöðum borgarinn-
ar. Þátttakendur voru 950. Kenn-
arar 8. — Ný sundnámskeið eru
nú hafin í sundlaug Breiðagerðis-
skóla. Einnig er sundnámskeiðum
haldið áfram í Sundhöll Reykja-
víkur.
Sigurður Jónsson fagnar en boltinn fór hárfínt fram hjá sænska markinu.
í gærkvöldi fór fram úrslitaleik
ur í þriggja landa keppninni á
Laugardalsvellinum. Leikurinn
fór fram i slæmu veðri, þar rigndi
mikið og var völlurinn mjög háll
og áttu leikmenn erfitt með að
fóta sig. Þetta ástand vallarins
var Svíunum áreiðanlega í vil,
því þar er um að ræða miklu
leikreyndari menn. Samt sem
óður stóðu íslenzku drengirnir sig
mjög vel og vora óheppnir að fá
þessi tvö mörk, sem bæði voru
hálf klaufaleg. Fyrra markið var
skorað á 43 mín. fyrri hálfleiks
og var þar h. útherjinn að verki,
en áður en knötturinn komst í
markið snerti Ihann varnarmann
og breytti þannig um stefnu svo
að Sigurður Dagsson átti engin
tök iá að verja. Bezta tækifæri ís
lands í þessum hálfleik var
þrumuskot Eyleifs sem lenti í
annarri stönginni og þaðan út á
völl aftur. Um miðjan hálfleikinn
urðu þeir Magnús Torfason og
Ársæll Kjartansson að yfirgefa
völlinn vegna meiðsla, en inn á
komu í staðinn þeir Sigurður Jóns
son ög Ævar Jónsson.
í seinni hálfleik var leikurinn
jafn til að byrja með en undir lok
in fóru Svíarnir að sækja fastar
en tókst ekki að skapa sér veru-
leg tækifæri. Á 10. mín. skorar h.
innherji Svíanna seinna markið
eftir þvögu á vítateig og var eins
og Sigurður í markinu væri ekki
með á nótunum í það skiptið.
Skömmu áður átti Kári mjög gott
skot að sænska markinu en hinn
góði markvörður þeirra varði vel.
Nokkur góð tækifæri sköpuðu ís-
lenzku piltarnir sér en óheppnin
elti þá og sigur Svíanna 2-ð varð
staðreynd. íslenzka liðið barðist
vel í þessum leik og var vörnin
betri hluti liðsins eins og fyrri
daginn. Beztu menn liðsins voru
þeir Eyleifur og Þórður en allir
reyndu að gera sitt bezta.
SERVÍETTU-
PRENTUN
SÍMI 32-101.
Reykjavíkurmót
í frjálsíþróttum
kl. 8 í kvöld
Annar hluti meistaramóta
Reykjavíkur í frjálsum í-
þi’óttum fer fram í dag og
á morgun á Laugardalsvell-
inum og heist kl. 8 bæði
kvöldin
Keppt verður i tugþraut,
3000 m. hindrunarhlaupi og
10 km. hlaupi og fimmtar-
þraut kvenna.
Þeir Valbjörn Þorláksson
og Ólafur Guðmundsson,
KR eru báðir skráðir til
leiks í tugþrJutinn og Hall
dór Guðbjörnsson, og Agn-
ar Levý KR í 10 km. og
3000 m. hindrunarhlaupi.
Allmargar stúlkur eru skráð
ar til leiks í fimmtarþraut.
Valur fær
Luxemborg og
KR Aberdeen
í GÆR var dregið um það
hvaða lið leika saman í
fyrstu umferð bikarkeppn-
innar. Valur leikur við Lux
emborgarmeistarana í
keppni meistaraliða og fer
leikurinn fram hér heima.
KR leikur við Aberdeen, í
Skotlandi í keppni bikar-
meistara.
Sumarnámskeið fyrir börn
Svefnpokar sænskir, enskir
og franskir
Vindsængur og pumpur
pólskar og danskar
6- júlí 1967
ALÞYÐUBLAÐIÐ %%