Alþýðublaðið - 21.07.1967, Blaðsíða 3
s
Landnám ríkisins hefur m. a. lagt mikla áherzlu . iiiyndun byggðahverfa víða um landið. Á mynd-
inni sjáum við nýbýlahverfi í Ölfusinu, sem var byggt upp á árunum 1950—1956. (Ljósm.: Þ. B. S.).
Aukning tæknibúskapar
er f ramtíðarstefnan
Rætt viö Pálma Einarsson, landnámsstjóra
HJÁLPARSVEIT skáta í Reykja-
vík hefur í samráðt við Skógrækt
ríkisins tekið að sér að standa fyr-
ir útisamkomu i Pórsmörk um
Verzlunarmannahelgina, en eins og
C / ■ /
Symr a
Mokka
Á SUNNUDAG verður opnuð
sýning á veitingastofunni Mokka
við Skólavörðustíg á grafíkmynd,-
um eftir íslenzkan málara, Guð-
bjart S. Guðlaugsson, 34 ára gaml-
an Arnfirðing, sem numið hefur
list sína í Vínarborg og býr þar.
Guðbjartur hóf myndlistar-
nám í skóla frístundamálara hjá
Kjartani Guðjónssyni, listmálara,
stundaði síðan nám í Handíða-
skólanum og sýndi þar á samsýn-
ingu nemenda, en sigldi síðan til
Vínar, þar sem liann stundaði
nám frá 1955 til 1961, er hann
lauk prófi. Síðan hefur Guð-
bjartur verið búsettur í Vín og
vinnur þar m. a. við að teikna
neonljósaauglýsingar og aðrar aug-
lýsingar, en mólar hálfan daginn.
Þetta er í fyrsta skipti, sem
Guðbjartur heldur sjálfstæða sýn-
ingu hér heima og hafði raunar
aðeins tök á’ að flytja hingað
litlar grafíkmyndir, unnar með
ýmsum aðferðum. Hann hefur sýnt
þrisvar sinnum og hefur átt mynd
á stórri umferðarsýningu, sem
farið hefur um fjölda landa.
FLUGVÉL Flugþjónustunnar
h.f. af gerðinni Cessna 180 mun
verða staðsett á Egilsstöðum í
sumar frá og með sunnudeginum
23. júlí. Flugvél þessi, sem getur
flutt allt að 4 farþega, mun ann-
ast alls konar flug fyrir Aust-
firðinga, sem sé sjúkraflug og
leiguflug auk fastra flugferða
milli Egilsstaða og Vopnafjarðar,
og munu þær ferðir verða í
beinu sambandi við áætlunarflug
Flugfélags íslands milli Reykja-
víkur bg Egilsstaða.
Umboðsmenn Flugfélags íslands
á Egilsstöðum munu annast alla
afgreiðslu fyrir þessa flugvél, og
er mönnum bent á' að leita til
þeirra um allar nánari upplýsing-
ar. Flugmaður á þessari flugvél
verður Þórhallur Karlsson. Er það
von Flugþjónustunnar að Aust-
kunnugt er hefur Þórsmörk verið
mjög vinsæl til þeirra hluta und-
anfarin ár. Jafnan hefur það þótt
skorta á þessar samkomur, að
skipulagðar væru skemmtanir fyr-
ir gestina og þeim veitt einhver
fyri-rgreiðsla á staðnum. Nú hafa
skátarnir tekið að sér að bæta
úr þessu. Mnnu þeir bæta hrein-
lætisaðstöðu alla og tryggja öll-
um aðgang að vatni. Jafnframt
munu þeir skipuleggja skemmt-
anir, svo sem íþróttir, lei-ki og
gönguferðir, auk þess sem þeir
munu útvega danshljómsveitir og
aðra skemmtikrafta.
' Hjálparsv. skáta er gjörkunnug
öllum svona útiskemmtunum, þar
sem hún hefur undanfarin ár haft
á hendi sjúkravörzlu á flestum
slíkum samkomum, sem haldnar
hafa verið. Er þetta þó í fyrsta
sinn, sem sveitin stendur sjálf
fyrir útisamkomu, en hún mun
jafnframt reyna að veita aðstoð
sína á hinum skemmtunum, sem
haldnar verða á Verzlunarmanna-
helginni, en þær verða fjórar í ár.
Bindindismenn verða með hátið
að Galtalæk, ungmennasamtök
Borgarfjarðar að Húsafelli, hjálp-
arsveitin í Þórsmörk og í Vest-
mannaeyjum verður hin kunna
Þjóðliátíð.
Aþenu, 20. 7. (NTB-Reuter).
Mikis Theodorakis, sem samdi
tónlistina í kvikmyndina „Grikk-
inn Zorba“, var dæmdur í 5 og
hálfs mánaðar fangelsi í Aþenu í
gær fyrir að hafa móðgað kon-
ungsfjölskylduna.
firðingar geti notfært sér þessa
þjónustu,
MEGINSTEFNAN er sú, að 1
draga úr stofnun nýbýla, en
keppa heldur að því að bæta að-
stöðu þeirra býla, sem ekki hafa
nægilegt ræktað land til að bera
uppi tæknibúskap. Því leggjum við
áherzlu á að stækka vissar jarð-
ir og leggja niður búskap á þei-m
jörðum, sem ekki hafa skilyrði til
notkunar véltækni í búrekstrinum.
Þetta kom fram í viðtali, sem
Alþýðubl. átti við Pálma Ein-
arsson, landnámsstjóra, um starf-
semi Landnáms ríkisins. í við'
talinu kom einnig fram, að unnið
væri skipulega að því að þétta
byggðir í sveitum, og fyrir til
stilli Landnámsins hefðu verið
stofnuð 15 byggðaiiverfi í landinu
á sl. 20 árum. Þá hefðu verið
byggð upp 77 býli af 96, sem eru
í áætlun Landnáms ríkisins í
byggðahverfum.
Pálmi lagði áherzlu á þá skoð-
un sína, að þegar gerðar væru á-
ætlanir um uppbyggingu ein-
| stakra landshluta, yrði jafnliliða
að fjalla um framtíðarvandamál
sveitanna, þar eð þéttbýlið við
sjávarsíðuna og sveitirnar ættu
sameiginlegra hagsmuna að gæta.
Menn yrðu að gera sér grein fyrir
því, að ef sveitirnar færu í eyði,
væri tómt mál að tala um endur-
reisn byggðalaga við sjávarsíðuna.
Eitt af verkefnum Landnáms-
ins er að hafa áhrif á uppbygg-
ingu sveitanna. Þannig væru eyði-
jarðir iðulega keyptar svo koma
mætti í veg fyrir stofnun óhag-
kvæms búreksturs. Sem dæmi um
það mætti nefna, að í Svartárdal
í Skagafirði, þar sem margar jarð-
ir voru í eyði, er nú hafinn bú-
rekstur á tveimur jörðum í
mynni dalsins, fyrir áhrif Land- |
í DAG, föstudaginn 21. júlí koma
hingað 18 norrænir unglingar í
boði Rotaryfélaganna á íslandi og
dvelja hér um tveggja vikna
skeið. Munu. þeir ferðast um land-
ið í fylgd nokkurra íslenzkra ung
menna og verða margir Rotary-
kliibbar heimsóttir og dvalið verð-
ur á heimilum Rotarymanna.
Boð þetta er liið fyrsta sinnar
tegundar, en áður hafa fjölmargir
einstaklingar hlotið ferða- eða
námsstyrki Rotary.
Til að standa straum af kostn-
aði fékk Rotary félagsskapurinn
á íslandi gjöf frá Rotary Norden
námsins, þar sem annars hefði e.
t. v. verið stofnað til búskapar
innarlega i sama dal, en slíkt hefði
augljóslega verið óhagkvæmt.
Árið 1964 voru framlög til
Landnáms ríkisins stórhækkuð og
eru nú samtals um 29 milljónir
króna. Styrkir þeir, sem Landnám-
ið veitir skiptast á sex vegu. Til
nýbýla, sem stefna að almennuni
búrekstri með sauðfé og naut-
gripi. Til smábýla eða iðnaðarbýla,
sem fá sex hektara lands, en að-
alatvinnan er einhvers konar
þjónusta eða iðnaður í viðkom-
andi sveit. Til garðyrkjubýla, sem
hafa jarðhita, er nægir til upp-
hitunar 1000 fermetra gróðurhúsa,
Framiiald á 14. síðu.
Hingað koma 4 þátltakendur
frá hverju Norðurlandanna, Dan-
mörku, Svíþjóð, Finnlandi og
Noregi, 2 frá Færeyjum og auk
þess verða 10 íslenzkir þátttak-
endur með i förinni.
Fyrrverandi umdæmisstjóri, Sig-
urgeir Jónsson tilnefndi þá Jónas
B. Jónsson, séra Braga Fríðriks-
son og Vilhjálm Einarsson til að
annast um skipulag ferðarinnar,
en til að annast undirbúning og
fararstjórn var ráðinn Ásgeir
Guðmundsson yfirkennari.
(Frá Rotary félögunum).
essi mynd sýnir flugvcl Flugþjónustunnar h.f., sem mun verða
aðsett á Egilsstöðum í sumar, en flugvél þessi var keypt hingað
ý til landsins síðastiiðið sumar, og hefur hún reynzt mjög vel
í alla KÍaifVi.
Staðsetja flugvél
á Egilstöðum
Unglingaheimsókn
til Rotaryfélaga
21. júlí 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3