Alþýðublaðið - 21.07.1967, Síða 9
SYBIL BURTON, sem áður var gift' Riehard
Burton, en er nú gift ungum dægurlagasöngv-
ara, eignaðist nýlega dóttur, sem skírð hefur
verið Amy. Sybil átti 2 dætur með Richard.
Ánægðar mæður
C>
BEATRIX krónprinsessa Hollands er geisl-
andi af hamingju, er hún situr hér fyrir með
frumburð sinn, Vilhjálm Alexander prins,
og það er heldur engin furða. En litli prins-
inn virðist ekki enn hafa vanizt blossum ljós-
myndavélanna, en sennilega líður ekki á
löngu, þar til hann tekur þeim sem sjálfsögð-
um hlut.
OG HÉR ER svo Anna María Grikklandsdrottn-
ing með son sinn, Pál, ríkiserfingja Grikklands
Fiskiðjuver á floti
FISKIFLOTINN í Riga hefur
nú fengið nýtt flaggskip, þar
sem er verksmiðju- og móður-
skipið „Aleksej Pozdnjakov,”
sem smíðað var í Gdansk skipa-
smíðastöðvunum í Póllandi. Er
þetta næstum 20.000 lesta skip,
165,5 metra langt, 21,3 metra
breitt og hefur 260 manna á-
höfn.
Skip þetta er hið nýtízku-
legasta í alla staði og er fljót-
andi fiskiðjuver, sem framleið-
ir fiskafurðir tiibúnar til sölu
til neytenda. Þar er fiskur salt-
aður, frystur og soðinn niður,
þar er mjölverksmiðja og
margt fleira. í hinum miklu
vörugeymslum skipsins eru af-
urðirnar geymdar í allt að 25
stiga frosti. (APN).
Frægur turn
GALATATURNINN í Istanbul
var byggður á 13. öld og var
notaður sem varðturn fyrir
verzlunarhverfið í Galata og
einnig fyrir höfnina. Sagt er,
að hann hafi einnig verið not-
aður sem fangelsi, og að marg-
ir fangar hafi verið látnir dúsa
í dimmum klefum í kjallaran-
um þar. Nú hefur turninn ver-
ið byggður upp og á efstu hæð
er nú veitingahús og nætur-
^1ÚbbUr-' 1
b£j•'
tún er falleg, þegar hún er orðin svona hrein og
Appelsín. Nýja AppelsíniS á nýrrl
Enn ein gæða-
vara frá
PEPSIC0
INC., N.Y.
Pepsi, Pepsi-Cola og Miranda eru skrásett vörum., eign PEPSICO INC., N.Y.
21. júli 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ <|