Alþýðublaðið - 02.08.1967, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 02.08.1967, Blaðsíða 3
Norðmenn taka við ískönnunarfluginu Danska blaðið Aktuelt skýrði jrá því nýlega að í þessum mánuði muni norska jlugfélagið Bergen Air Transport taka við ískönnun- arflugi því við Hvarf á Grænlandi sem Flugfélag íslands hefur til þessa haft á hendi. Að sögn blaðs ins er um þessar mundir verið að gera samning við norska flug- félagið um að annast ískönnunar- flug þetta næstu þrfú árin. ískönnunarflug við Grænland liófst eftir að danska farþegaskip- ið Hans Hedtoft fórst við Hvarf. íslendingar hafa annazt þetta flug, þar til nú, en samningur við FÍ um flugið rann út 1. júlí síð- astliðinn, en félagið mun halda könnunarfluginu uppi, þar til norska félagið tekur við einhvern tíma í þessum mánuði. Danska ríkið ber kostnaðinn við ískönnunarflug þetta, en að sögn blaðsins nemur hann um 2,5 milljónum danskra króna á ári eða um 15 milljónum íslenzkra króna. iiklar síma- framkvæmdir Framkvæmdir hjá Landssíman- um eru miklar í sumar eins og endranær, segir Gunnlaugur Briem, póst- og símamálastjóri í samtali við Alþýðublaðið. Síma- númerum í Hafnarfirði var fjölg- að um 600 sl. mánaðamót. Stækk- un Grensásstöðvarinnar um 2000 númer er langt komin og síðar á árinu verður fjölgað um 400 númer í Kópavogi. Þá verður stækkað um 400 númer á Akur- eyri. Nýjar sjáifvirkar stöðvar verða teknar j notkun á Brúarlandi, Vogum, Stykkishólmi, Grundar- firði með um 800 númer samtals. Framkvæmdir eru hafnar við 400 númera sjáifvirka stöð á Sauðár- króki, og verður hún tekin í notk- un snemma á næsta ári, sömu- Framkvæmdum miöar vel við Búrfell Byggingarframkvæmdum við raforkuverið mikla hjá Búrfelli miðar allvel áfram. Nokkrar taf- ir í byrjun verksins og ill veðr- átta í vetur ullu því að fram- kvæmdirnar drógust heldur aftur úf áætluninni, en nú hefur eðli- legur gangur komizt á og ef ekk- ert óvænt kemur fyrir verður verkinu lokið sumarið 1969. Öllum greftri og undirvinnslu að stöðvarhúsinu -er lokið og brátt hefst bygging gólfs þess, sem sjálf ar túrbínurnar eiga að standa á. Sprengivinna við aðrennslisgöng þau, sem munu leiða vatnið að túrbínunum, og fóðrun þeirra er alllangt komin og sama er að segja um vatnsinntakið við Þjórsá. Vinna við að korna túrbínun- um upp hefst að öllum líkindum snemma á næsta ári. Auk stöðvar- byggingarinnar verða byggð 5 íbúðarhús þarna og eru þau ætluð starfsfólki raforkuversins, og verður bráðlega hafin vinna við þau. leiðis 300 númera sjálfvirk stöð á Patreksfirði, og 100 númera stöð á Hellu, seint á þessu ári. Lokið verður við sjálfvirka stöð að Brú í Hrútafirði, sem verður aðalstöð fyrir ailstórt svæði. Nokkrar smá'stöðvar verða tekn ar í notkun t.d. í Þykkvabæ, Laug- arvatni, Kópaskeri og Hvamms- tanga. Helstu jarðsímaframkvæmdir eru lagning línu milli ísafjarðar, Flateyrar og Bolungavíkur. Þá verður í sumar lokið við að reisa símastöðvarhús á Brúar- landi, Vogúm og Hellu og fleiri hús eru í smíðum. Af öðrum framkvæmdum Landssímans má nefna fjölsímalagningu, endurnýj un talstöðva, uppsetningu innan- hússtöðva hjá fyrirtækjum og Telexnotendum fjölgar úr 27 í 50 — 60, á næstunni. Nýr prófessor Með lögum nr. 41/1966 var stofnað prófessorsembætti í ensku við heimspekideild Háskóla ís- lands. Embástti þetta var auglýst laust til umsóknar og hefur I. J. Kirby, lektor, verið settur pró- fessor í ensku við heimspekideild Háskóla íslands til eins árs, frá 1. júlí 1967 að telja. Menntamálaráðuneytið, 28, júlí 1967. Saga úr sólskininu Arnarhóll hefur undanfarna daga jafnan verig þéttsetinn í hádeginu, og sumir hafa ekki látið sér nægja að sleikja þar sólskinið sitjandi á bekk, heldur hafa lagzt út af endi- langir í grasið og látið líða úr þreytt um limum. Og hvað er þá eðlilegra en einhverjum renni blundur á brá? En það er eins gott að sofa ekki of lengi. Þá kann svo að fara að menn vakni upp við vondan draum, því lögreglan er árvökul • og fylgist vel með því að fólk leggist ekki til svefns á almannafæri, jafnvel þótt það ætti að vera alveg óhætt veðursins vegna. 95 % ISLENDINGA HAFA RAFMAGN I nýútkominni skýrslu raforku- máiastjóra, ORKUMÁL, kemur fram m.a. að nú hefur um 95% þjóðarinnar rafmasn frá almenn- ingsrafstöðvum; 3% hafa rafmagm frá einkastöðvum, en um 2% eru án rafmag-ns- Heildarnotkun raf- magns á öllu landinu árið 1966 var 3442 kílówattstundir á mann. Orkuvinnsla allra almennings orkuvera á landinu árið 1966 nam alls. 667 598 megawattstundum, og hafði aukizt um 0,7 % frá ár- inu áður. Á Suðvesturlandi var um nokkru minni orkuvinnslu að ræða en árið áður, og stafaði það af vatnsskorti í Soginu. Þetta hef ur þó ekki dregið úr almennri orkunotkun, cn hins vegar haft í för með sér samdrátt í sölu af- gangsorku til Áburðarverksmiðj- upnar. Raforkunotkun Áburðar- verksmiðjunnar minnkaði um 32,7 % á árinu, en stórnotkun í heild, þ.e. notkun Áburðarverksmiðjunn ar, Sementsverksmiðjunnar og Keflavíkurflugvallar, minnkaði um 19,1 % á sama tíma. Alls var stórnotkunin árið 1966 125 137 wattstundir eða 10,1 % af iheildar heildarnotkuninni; þar af notaði Áburðarvérksmiðjan 67 688 mega- megawattstundir eða 18,7 % af notkuninni. Til samanburðar má nefna að raforkunotkun verksmiðj unnar var 100 648 megawattstund ir árið 1965 og 142 469 megawatt- stundir árið 1964. Orkunotkun hennar hefur þannig minnkað um meira en helming á tveimur árum. Sé orkuvinnsla vegna stórnotk- unar ekki talin með, kemur Framhald á bls. 15. 2. ágúst 1967 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.