Alþýðublaðið - 02.08.1967, Blaðsíða 7
Dátar gera víbreist
DATAR eru nú komnir í heima
haga eftir velheppnað ferðalag
um landið, en það er ekki þar
með sagt, að þeir haldi sig ein
göngu við höfuðborgina hér eft
ir því aðdráttaraflið, sem sveita
böllin hafa, stenzt enginn þeirra.
Hljómplata þeirra hefur fengið
mjög góðar móttökur og hefur út
gefandinn ekki við að panta nýj
ar sendingar, og ennþá selst' hún
gráðugt, enda er hér á ferðinni
beathljómplata eins og þær ger-
ast beztar.
Þeir, sem skipa DÁTA eru: Jón
Pétur Jónsson, Rúnar Gunnars-
son, Karl Sighvatsson og Stefán
Jóhannsson.
Fjórmenningamir lögðu upp
laugardaginn 8. júlí. Reyndar
Pónik í Galtalækjarskógi
Meðfylgjandi mynd er af
Pónik og Einari, en þeir félagar
halda uppi fjörinu á danspall-
inum í Galtalækjarskógi um
verzlunarmannahelgina, sem nú
fer í hönd.
Eins og kunnugt er, hefur
hljómsveitin leikið inn á tvær
hljómplötur og hefur önnur
þeirra þegar komið á markað-
inn og fékk ágætis móttökur,
en þeir voru nokkuð séinheppn-
ir, því aðallagið á plötunni, ,,Jón
á líkbörunum", var bannað í
okkar virðulega Ríkisútvarpi,
en þetta lag hefði þá þegar öðl-
azt vinsældir á dansleikjum hjá
piltunum.
Einari Júlíussyni tókst sérstak-
lega vel upp á þessari hljóm-
plötu og nú bíða allir i spenn-
ingi eftir -næstu plötu, en titil-
lagið á henni heitir HERRA
MINN TRÚR.
voru þeir sex í ferðalaginu, hin
ir tveir „Dáta-skáldið“, Þorsteinn
Eggertsson, en eins og kunnugt
er, hefur hann samið að heita
má öll þau Ijóð, sem DÁTAR
hafa sungið á hljómplötu og vænt
anlega mun sá háttur verða hafð
ur á í framtíðinni, því Dátar eru
vandlátir. Einnig var umboðsmað
ur og framkvæmdastjóri hljóm-
sveitarinnar, Þráinn Kristjánsson,
með í ferðinni.
Dátar héldu sinn fyrsta dans
leik í Víðihlíð í Húnavatnssýlu
og voru allir aðilar ánægðir með
kvöldið. En nú gerðust menn
nokkuð þaulsetnir í bifreiðinni,
því ekið var alla leið í Breiða-
blik á Snæfelisnesi og þar var
slegið upp balli á sunnudags
kveldi.
Á mánudögum eru ekki haldin
„böll“ hvar sem er, en eftir nokkr
ar vangaveltur var ákveðið að
brenna til Akureyrar, enda
Alþýðu'húsið tilvalinn staður til
mánudagsdansleiks. Og piltarnir
sluppu ekki samdægurs frá Ak-
ureyringum. því áfram var dans
inn stiginn þriðjudag og miðviku
dag og voru undirtektir gestanna
slíkar, að rætt var um, hvort
ekki væri athugandi að setjast að
á staðnum fyrir fullt og allt. En
þar sem Dátum er nú vel við
alla landsmenn, -svona almennt,
hvar sem þeir búa, þá þótti ekki
tilblýðilegt að láta Akureyringa
sitja eina að krásunum.
Á fimmtudegi var ekið til Siglu
fjarðar og að sjálfsögðu haldinn
dansleikur í Hótel Höfn. Dátar
fengu ágætis móttökur og ekki
sízt Stefán, en hann er Siglfirð-
ingur í húð og hár. Næst á dag
II á lög-
regluþjónum
— Okkur vantar lögreglu-
þjóna, segir Sigurjón Sigurðs--
son, lögreglustjóri við Alþýðu-
blaðið. Við ætlurn að auglýsá
á næstunni. Við þurfum 20
góða menn í haust. Þeir geta
komizt á námskeið í Lögreglu-
skólanum í október.
— Hefur ekki verið hörgull
á lögregluþjónum í sumar?
—Jú, en Við höfum líka feng
ið allmarga kennai'a og há-
skólastúdenta, sem liafa fyllt
skörðin og reynzt prýðilegir
starfsmenn. Sumir hafa únnið
Jhjá okkur sumar eftir sumar.
Einn af þessum 18 kennurum
og háskólastúdentum sem
starfa í götulögreglunni í sum-
ar .er Jóhannes Pétursson kenn
ari, ög cr þetta sjötta sumarið
hans þarna. Við náðum augna
blikssamtali við Jóhannes sem
annars.var í útkalli fyrst þeg
ar liringt var í jhann. Jóhann-
es kann vel við lögreglustörfin
sem stimarvínnu.
Jóhannes Pétursson.
— Hvernig vildi til að þú
tókst á þig lögreglustörf í sum
arleyfum þínum Jóhannes?
— Þegar ég byrjaði hér sum
arið 1961 var ástæðan sú að
ég þurfti að fá sumarvinnu til
að jafna hallann á fjárlögun-
um hjá' mér, var nýbúinn að
byggja — og stóð til boða að
gerast sumarmaður í götulög-
reglunni. Ég vildi gjarnan
reyna þetta, sumarleyfið nýtt-
ist mér betur en við ýmis önn
ur störf, sem þá stóðu til boða.
— Og hvernig kanntu við
þig?
— Ég lief skiljanlega kunn
að vel við mig. Bæði yfirmenn
og vaktafélagar hafa verið mér
velviljaðir og ég hygg að aðr-
ir hafi sömu sögu að segja í
því efni. Og oft hefur hið fagra
sólsetur í Reykjavík stytt næt
urvaktina til rnuna-
— Lendirðu í átökum?
—■ Ékki svo teljandi sé.
— Þú ert kvæntúr, er það
■ekki?
Framhald á 14. síðu.
skrá var Ólafsfjörður og kom
bæjarstoltið upp í fáeinum ung-
lingum, svona í lokin og kannski
ekki að undra, því dansleiknum
var ekki framlengt lengur en um
hálftíma.
Laugardagskvöldið 15. júlí var
haldinn dansleikur í Skúlagarði,
Kelduhverfi. Þetta var fjörugasti
dansleikur og voru þingeysku kon
urnar svo aðgangsharðar, að
hljómsveitin var ekki vinnufær
f.vrr en kl. 10 kvöldið eftir, en
þá léku Dátar í Hlöðufelli á
Húsavík. Þar sem hljómsveitin
var búin að leika stanzlaust á
níu dansleikjum í ferðinni, eða á
hverju einasta kvöldi síðan lagt
var af stað, var ákveðið að taka
tveggja kvölda frí að loknum
dansleik á mánudagskvöldinu í
Alþýðuhúsinu á Akureyri. Fyrra
íríkvöldið 18. júlí fóru Dátar á-
samt fylgdarliði sínu í Sjálfstæð
ishúsið á Akureyri, Snæddu þar
stóran kvöldverð og skemmtu sér
þar um kvöldið. Dátum bar öll-
um saman um, að hljómsveit
Sjálfstæðishússins á Akureyri
væri sérlega góð, en það er hljóm
sveit Ingimars Eydal. Á meðan
Dátar voru á Akureyri, var gist
á Hótel KEA, og þar er þjónusta
öll alveg til fyrirmyndar, að sögn
Dáta.
Að loknu tveggja daga fríi á
höfuðstað Norðurlands var brennt
austur á firði, en það átti að
vera lokaþáttur ferðalagsins.
Fyrsti austfjarðadansleikurinn
var haldinn í Egilsbúð, Neskaup
stað, sá næsti í Valhöll, Eskj-
firði, og síðasti austurlandsdans
leikurinn og jafnframt síðasti
dansleikur ferðarinnar vár hald-
inn í hinu nýja félagsheimili
héraðsbúa á Egilsstöðum, Vala-
skj álf.
En eins og fyrr getur, er langt
frá því, að Dátar bi-ndi sig ein
göngu við Reykjavík og í því sam
bandi má geta þess, að þeir
verða í Húsafellsskógi um verzl-
unarmannahelgina.
Meðfylgjandi myndir voru tekn
ar af þeim félögum á ferðalaginu.
2.- ágúst 1967, - ALÞÝÐUBLAÐIÐ J