Alþýðublaðið - 02.08.1967, Qupperneq 4

Alþýðublaðið - 02.08.1967, Qupperneq 4
 EtJQJKSttF Ritstjóri: Benedlkt Grðndal. Slmar 14900—14903. — Auglýslngaslml: 14906. — AOsetur: AlþýOuhúsið vlð Hverfisgötu, Rvflc. — Prentsmiðja AiþýOublaðsins. Sími 14905. — Áskriftargjald kr. 105.00. — 1 lausa* sölu kr. 7.00 etntakiO. — Útgefandl: Aiþýðuflokkurlnn. Skipulag eða handahóf EITT af megineinkennum viðreisnarinnar hefur ver ið stórfelld aukning áætlunargerðar. Samdar hafa ver ið framkvæmdaáætlanir á einstökum sviðum, til dæm is um vegagerð, landshlutaáætlunar og loks áætlanir íyrir fjárfestingu ríkisins í heild. Þessu til viðbótar iliefur verið unnið að því að fá sveitarfélögin til að gera áætlanir um framkvæmdir sínar, og loks mundi k.oma til kasta annarra aðila í þjóðfélaginu. Þessi mikla áætlunargerð hefur haft góð áhrif og komið skipulagi á þýðingarmikil mál, þar sem áður ríkti hið mesta handahóf. Um leið og áætlanir um framkvæmdir eru gerðar, verður að hafa til þeirra fé og afla þess á skipulegan hátt. í þessu felst að sjálf- sögðu val, þannig að þýðingarmestu framkvæmdir eru settar fram fyrir aðrar og fjáröflun til þeirra lát- in ganga fyrir. Tíminn heldur fram þeim furðulegu kenningum, að ríkisstjórnin hafi hafnað öllu vali og látið handahóf ríkja um framkvæmdir þjóðarinnar. Er þetta þvert of an í augljósar staðreyndir, sem framkvæmdaáætlanir bera gleggst vitni. Þetta á að sjálfsögðu ekkert skylt \úð þau höft, sem framsóknarmenn ennþá virðist dreyma um, það er skipun nefnda til að ákveða, hvaða einstaklingar megi reisa hús í landinu, bverjir megi kaupa bíl eða dráttarvél, hverjir fá gjaldeyri til inn flutnings.eða ferðalaga o. s. frv. Hér blandar Tíminn , tvennu ólíku saman á hinn blygðunarlausasta hátt, því engum kemur til hugar, að ritstjórar Tímans skilji ekki allt þetta. Það er athyglisvert að í marga áratugi reyndist ekki unnt að koma fram áætlunargerð hér á landi. Hugmyndin er runnin frá sósíalistísku flokkunum og var í eina tíð kölluð rammasti bolsevismi. En áætl- unargerð hefur verið tekin upp um allan heim .Stór fyrirtæki auðvaldsins voru meðal hinna fyrstu, sem skiidu þýðingu þeirra, og nú er varla það land til, sem ekki beitir áætlunargerð í meira eða minna mæli. Ætla mætti, að vinstri stjórnin hefði talið það sér- •stakt hlutverk sitt að koma þessu máli fram. En það var öðru nær. Framsóknarmenn brugðu fæti fyrir málið og stöðvuðu það. Framkvæmdaáætlanir voru ekki gerðar, meðan vinstristjórnin sat, heldur teknar upp eftir að núverandi ríkisstjórn kom til valda. Þegar forsaga þessa máls er íhuguð, hljóta menn að siá, hversu furðulegur málflutningur framsóknar manna er. Þeir hindruðu gerð framkvæmdaáætlana í tið vinstri stjórnarinnar. Núverandi ríkisstjórn tók þessa áætlunargei'ð upp og hefur aukið hana ár frá ári með góðum árangri. Svo segir Tíminn, að ríkisstjórnin hafi sett „handa hóíið í hásæiið“, og uppskeran sé ringulrcið! 4 2. ágúst 1967 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ Vædl_ ■ ©-— Bifreiðin FRAMLEIÐUM ÁKLÆÐI á allar tec&nðlr bfil OTUR Hringbraut 111. 9íml 10659. BÍLAKAUP 15812 — 23900 Höfum kaupcndur að flcst- um tegundum ogr árgcröum af nýlegum biíreiöum. Vinsamlegast látið skrá Mf- reiðina sem fyrst. BÍLAKAUP Skúlagötu 55 við Rauðará Símar 15813 - 23900. _________ „ SKIPAUTGeRÐ RIKISINS Ms Herjólfur fer til Vestmannaeyja og Horna fjarðar á miðvikudag. Vörumót- taka til Hornafjarðar I dag. Ms. Herðubreið fer austur um land í hringferð 8. þ. m. Vörumóttaka á miðviku dag og fimmtudag tjl Austfjarða hafna, Húsavíkur, Akureyrar, Ólafsfjarðar, Siglufjarðar, Norð- fjarðar og Bolungavíkur. Ms. Esja fer vestur um land 9. þ. m. Vörumóttaka á fimmtudag, föstu dag og mánudag tií Patreks- fjarðar, Tálknafjarðar, Bíldu- dals, Þingeyrar, Flateyrar, Suð- ureyrar, lsafjarðar, Siglufjarð- ar, Akureyrar, Húsavíkur, Rauf- arhafnar og Þórshafnar. Ms. Baldur fer til Snæfellsness- og Breiða- fjarðarhafna á morgun. Vöru- móttaka í dag. B I LA- Lö K K Grunnur Fyllír Sparsl Þynnlr Bón. BINKAHMBOO ÁSGEIR ÓLAFSSON, hefldv. Vonarstræti 12. Sími 11071. Hjólbarðaverk- stæði Vesturbæjar VI8 Ncsveg. S|mi 2312«. Annast allar viðgerðir á bfól- börðum og slöngum. Smurstöóin Reykjavíkurvegi 64, Qafnar- firðL Opið alla virka daga frá kL T.30 — 19 s.d„ laugardaga ttl hádegis. Vanir menn. Sími: 52121. Opið afla vlrka daga txá U. 8—22 nema laugardaga M 8—16. Fljót eg góð afgrwilbía. Hjólbarðaviðgerðin Reykjavíkurvegl 56 Hafnarfirði. Sími 51963. KENNARAR Tvo kennara vantar að barna- og unglingæ skóla Þorlákshafnar. Utvegum góða íbúð. Nánari upplýsingar gefur skólastjórinn í síma: 99-3638 eftir kl. 5 á daginn. Skólanefndin. Héraðslæknisembætti Héraðslæknisembættin í eftirtöldum héruð- um eru laus til umsóknar: 1. Neshéraði. Veitist frá 10. sept. n.k. 2. Flateyrarhéraði. Veitist frá 10. sept. nk. 3. Þingeyrarhéraði. Veitist frá 10. sept. n.k. 4. Þórshafnarhéraði. Veitist frá 20. sept. n.k. 5. Austur-Egilsstaðahéraði. Veitist frá 1. október nk. 6. Búðardalshéraði. Veitist frá 1. okt. n.k. Umsóknarfrestur um öll héruðin er til 4. september nk. Dóms- og kirkjumálaráðuneytið 1. ágúst 1967.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.