Alþýðublaðið - 01.09.1967, Page 1

Alþýðublaðið - 01.09.1967, Page 1
sma i Hargreaves sagði ekki orð fyrr en hann var búinn að kveikja á báðum lömpunum. Jafnvel þá fór hann ekki úr frakkanum. Þó að kalt væri inni var þar ekki gott loft. Hargreaves hikaði ögn. — Þetta, sagði hann og benti á rúmið, - var hérna. Hann kom inn um dyrnar þarna. Skilurðu það núna? Félagi Hargreaves kinkaði koili. — Nei, sagði Hargreaves og brosti. — Ég er ekki að reyna að blekkja þig. Ég er að reyna að svipta blekkingavefnum af. Eigum við að koma niður? Það brakaði og brast i stigan- iim undir fótum þeirra, jafnvel þó að þrepin væru klædd þykk- um teppum. Hargreaves benti félaga sinum að setjast við eld- inn. — Mig langar til að segja þér það, sagði hann. — Þér megið ekki halda að ég sé að setja mig á háan hest, þó að ég segði yður frá þessu lilutlaust eins og þér hefðuð enga hugmynd um það, sem gengið hefur á. Aðeins þann ig getið þér skilið það, sem hann átti í höggi við. — Við skulum byrja á Tony Marvell. Allir kunnu vel við hann. Hann var kannske ekki sér lega séður í viðskiptum enda allt of örlátur, en hann var fram úr Ihófi samvizkusamur og einstak- lega góður stærðfræðingur. Tony ætlaði að læra stærfræði, en hann varð að taka við fyrir- tækinu, þegar frændi hans dó. Þér vitið, hvernig fyrirtækið var þá. Þrjú fyrsta flokks hótel, sem gamli Jim, frændinn, Ehafði byggt og rekið með glæsibrag. Nú var allt að fara í hundana. Menn sögðu Tony, að það væri brjálæði af honum að fara út í viðskiptaiífið. Bróðir hans - Ste phen Marvell, skurðlæknirinn - sagði að spilaborgir gamla Jim myndu hrynja yfir þau öll og steypa þeim í frekari skuldir. Þér vitið, hvernig fór. Tony var tutt- ugu og fimm ára, þegar hann tók við rekstrinum. Þegar hann var tuttugu og sjö ára voru hótelin farin að bera sig og gróðinn kom jafnvel Tony á óvart. Og allt var það vegna þess að hann vissi ekki hvað eftirvinna var. Hann vann stöðugt og gafst aldrei upp. Það var -hægt að lesa úr andliti hans þessa lífsskoðun: „Mér leiðist hótelrekstur, en ég verð að koma öllu í gott horf til að ég fái að vinna við mín hugð- arefni“. Hann gerði þetta vegna þess, að hann hafði lofað gamla Jim að gera það og vegna þess, að hann áleit að þetta væri svo auðvelt starf, að hann vildi sýna öllum hve auðvelt það er að reka hótel. Ep það var ekki auðvelt. Enginn maður getur unnið allan sólarhringinn. Hann vissi allt um hótelinn þrjú, .eitt í London, annað í Brighton og það þriðja í Eastbourne, frá verðinu á kodda veri og smurningsolíu á lyftu- reimar. Hánn veiktist í'lok fimm- ta ársins. og Stephen bróðir hans sagði honum, hvað hann ætti að gera. — Þú hættir, sagði Stephen. — Þú ferð í ferðalag. Umhverfis jörðina en þú lætur ekki sjá þig næsta hálfa árið. Þann tíma máttu ekki einu sinni hugsa um starfið. Skilurðu það? — Tony sagði mér söguna í gærkveldi. Hann segir að þetta hefði aldrei komið fyrir, ef hon um hefði ekki verið bannað að skrifa heim. — Þú sendir ekki einu sinni kort, sagði Stephen. — Ef þú gerir það ferðu að hugsa um hótelin, aftur og þá hjálpi þér guð. — En Judith.... mótmælti Toriy, — Þú skrifar Judith alls ekki, sagði Stephen. — Mér er sama þó að þú ætlir að giftast einka- ritara þínum, en þú hvílist ekki ef þú stendur í löngum bréfa- skriftum um hótelin. Framhald á 4. síðu.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.