Alþýðublaðið - 30.09.1967, Síða 1
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
1—7. október 1967
SJONVARPIÐ
Á mánudaginn kl. 21.40 sýnir sjón
varpið merkilega heimildarkvik-
mynd um fuglatekjur í Súlnaskeri
við Vestmannaeyjar. Myndin heit
ir „Skerdagur“. Rúnar Gunnars-
son, kvikmyndatökumaður sjón-
varpsins kleif eyna í sumar ásamt
þremur öðrum. Dvöldu þeir þar
daglangt, og myndaði Ritnar það
sem fyrir augu bar. Myndin hér til
hliðar sýnir félagana á léið upp
bergið. Foreldrar skulu minntir
/ DAG
á að myndin er tæplega fyrir
börn.
<s»
Arsafmæli
sjónvarpsins
í DAG, 1. október er ár liðið síð-
an íslenzka sjónvarpið hóf útsend
inSar sínar. Umræður um sjón-
varp hö.fðu hafizt nokkrum árum
áður og var það þá mál margra
að íslendingar væru þess lítt bún
ir til að taka í sínar hendur rekst
ur svo umfangsmikils og vandmeð
farins tækis. Það ríkti- því vantrú
og efasemdir þegar sú stóra stund
rann upp og íslenzkt sjónvarp var
hafið. Starfsemin var að vísu' köll
uð tilraunasjónvarp allt fram til
1. sept. þessa árs, en ekki virt
iist áhorfendum neinn byrjenda
bragur 'á gjörðum sjónvarps-
starfsmanna og jafnvel svömustu
andstæðingar sjónvarpsreksturs
hafa orðið að viðurkenna að mjög
vel hafi til tekizt. Starfsmenn
voru fáir í upphafi og tæki
þeirra ófullkomin, en óbilandi á
hugi og dugnaður starfsfólksins
bætti hér úr um og réði vafalaust
mestu um velgengni sjónvarpsins.
Nú eru ný og betri tæki komin að
stofnuninni og verið er að fjölga
starfsfólki, svo að um leið og fagn
að er ársafmæli sjónvarpsins er
■ full ástæða til að vænta góðs af
framtíðarstarfi þess. Myndin hér
að ofan er tekin fyrir ári síðan og
sýnir Ásu Finnsdóttur skömmu áð
ur en dagskráin hófst, en Ása var
þula þann dag og verður það einn
ig í dag.
Skerdagur
Sjónvarpið endurtekur í dag
kl. 17 þáttinn „Stundarkorn", sem
áður var sýndur að kvöldi 11.
þessa mánaðar. Síðan stjórnar
Örn Eiðsson íþróttaþætti. Sýndur
verður leikur Fulham og West-
ham Unied úr ensku bikarkeppn-
inni, en á undan ræðir Sig. Sig.
við Bjarna Felixsson um liðin.
Einnig verður sýnt frá seinni
degi landskeppni Finna og Norð-
manna í frjálsum íþróttum.