Alþýðublaðið - 15.10.1967, Blaðsíða 16

Alþýðublaðið - 15.10.1967, Blaðsíða 16
eJá&MMÉÍmkáM’ ALLT FYRIR H0LSUNA í ÞESSARI viku kom Alþingi sam an til a3 tojarga þjóðinni. —• Má segja að það sé vel gert af vanda lausum, Fyrst tók það annars fyrir hend «r ao ojarga sjálfu sér og athug- aði kjörbréf. Varð niðurstaðan sú að öll kjörbréf væru í lagi enda þótt sum væru bersýnilega í ó- lagi, enda ræddust menn við í foróðerni um það heilan dag á fullu kaupi. , i I þessu sambandi væri rétt að benda á nýja aðferð til að af- greiða kjörbréf. Ur því að aiþing ismenn í einni heild eru æðsti dómstóll um gildi sinna eigin fkjörbréfa, hvers vegna þá ekki að láta bara hvern mann greiða atkvæði um sitt eigið kjörbréf? í»á er af og frá að miklar deilur iisu um það mál og ekki þyrfti að gefa neinar maraþon-yfirlýs- iogar. Næst á eftir komu bjargráðin lianda allri þjóðinni, og varð þá lýðum Ijóst hversu mikil er for-. 'ejálni ráðamanna og umhyggja wfj'X'ir alþjóð. Verðhækkun mikil var sett á alls konar vörutegund- iir eins og smjör og kartöflur og dnnur þau matvæli sem eru fit- andi og vond fyrir lijarta og æða : kerfi. Úr því að þetta hækkar í verði er gert ráð fyrir að minna j verði neytt af þeim og heilsa manna verði betri. Um sama leyti för líka Hjarta- og æðavorndarfé lagið af stað með mikið veraldar- innar húllumhæ, og af því má sjá að í-áðstafanir ríkisstjórnar- innar hafa ekki mátt kcma síðar. Og ekki né'g með þdð. Það þurfti að styrkja svolítið bindind ismálstaðinn með því að hækka íbrenniv ([íið, Mfönn mega leþki drekka frá sér vitið. Þeir hafa líklega flestir ekki svo skaðvæn- lega mikið af mannviti að rétt sé að losa sig við það með þeim Ihætti. Og tóbakið fékk líka sína afgreiðslu. Það var hækkað til að draga úr krabbameinshættu í lungum. Ég sé ekki betur en einu rithöfundarnir sem blakta í dag séu þeir sem leggja fyrir sig að skrifa víxla og ávísanir. Til þess svo að kóróna þessar bjargarráðstafanir þá var lagður skattur á fargjöld til útlanda (nema Færeyja og Grænlands). Ástæðan fyrir þeirri ráðstöfun er sú, að ekki þykir gott fyrir heilsu manna að breið3 úr sér í lúxus- farartækjum og kýla vömb með krásum og brennivíni. Er gert ráð fyrir og við það miðað að í stað- inn fyrir utanlandsferðir komi gönguferðir á ijöll til þess að halda sér ungum og fi-ískum. Hef ur heyrzt að til mála hafi komið að skylda menn til þess að hlaupa snöggklæddur upp á Esju tvisvar á ári og ella verðilO% lögð ofan á útsvarið. Mun það verða næsta heilbrigðisháðstöfun. Allt eru þetta kallaðar efna- hagsráðstafanir, en það er bara hrekkur. Þetta eru heilbrigðisráð- stafanir. En það var hyggilegra aö kalla þær einhverju öðru nafni til þess að fólk tæki þeim skynsamlegar. Ekki verður hjá því komizt að nokkur úlfaþytur verði um ráðstafanir þessar, en við þvi er alltaf að búast, því að fátt er það *:em almenningur hugsar lausara um en heilsu sír.a, andiega og líkamlega. Er það fyrst með þessum ráðstöfur | m sem íslenzka þjóðin tekur fyrir al vöru að keppa að því að hver ein staklingxir sé „heiltarigð sál í [ ihraustum líkama". Herforingjastjórnin í Grikklandi reynir nú að punta sig með því að láta gamla Papandreau lausan, ■*— Og svo leitumst við við að tryggja góða líðan þína í framtíðinni með því að jbanns þér að tala um pólitík. KONA: Vera, sem getur talað sig frá öllu öð’ru en símtólinn. SÓLMYRKVI: Feii kona sem stendur upp innan um liggjandi fólk á baðstaff. STJÓRNARHERRAR: Þeir sem þjóðin getur talið trú um að ráfi yfir sár og kennir svo um skakkaföllin þegar hún hefur hagað sér óskynsamlega. ÞOLINMÆÐI: Að bíða með aðra yfirferð málningarinnar þar til sú fyrri er orðin þurr á veggnum. DIPLÓMATÍ: Að leysa eitt vandamál með þvi að skapa annað. Sá spaki segir... Kraftaverk gerast, enn i dag, en þaSr-ír eins og vant er viá verðum að vinna baki brotnu langan tíma til þess að þau ger ist.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.