Alþýðublaðið - 19.10.1967, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 19.10.1967, Blaðsíða 4
 wmwM) Rltstjórl: Benedlkt Grðndal. Slmar 14900—14903. — Auglýsingaslml: 14906. — Aðsetur: Alþýöuhúsið viö Hverfisgötu, Rvik. — PrentsmiOja AlþýOublattslns. Simi 14905. — Askriítargjald kr. 105.00. — 1 lausa* sölu kr. 7.00 elntakið. — Útgefandi: AlþýOuflokkurinn. Atvinnan tyrir öllu VERKALÝÐSFÉLÖG senda nú hvert af öðru frá sér mótmæli gegn þeim ráðstöfunum, sem ríkisstjórn- in hefur gert í efnahagsmálum. Þetta er eðlilegt. Ráð- stafanirnar koma við alla landsmenn og óneitanlega þungt við stærri heimilin. Það er hlutverk verkalýðs félaganna að standa á verði í þessum efnum og knýja ríkisvaldið til þeirra aðgerða, sem eru félagsfólkinu hagstæðastar á hverjum tíma. Það er athyglisvert við þessi mótmæli, að svo tii allir viðurkenna, að vandinn sé geigvænlegur og grípa verði til aðgerða. Deilan er aðeins um, hvernig þær aðgerðir eigi að vera. Þar sem ríkisstjórnin hef- nr nú auglýst eftir tiliögum um aðrar ráðstafanir, sem væru léttbærari almenningi, er enn tækifæri til að kanna, hvort slíkar leiðir finnast. Alþýðuflokkur- inn er hlynntur því, að þetta sé vandlega athugað. Það er rétt, að ríkisstjórnin tók ekki upp samninga við verkalýðshreyfinguna um lausn á fjárhagsvand- ræðum ríkissjóðs á næsta ári. Er raunar hæpið að ætla verkalýðssamtökunum að gerast beinir aðilar að slíku máli í heild, en þau eiga að einbeita sér að þeim atriðum, sem beinlínis snerta umbjóðendur þeirra. Til þess gefst enn tækifæri og ber að vona, að unnt reynist að létta eitthvað byrðarnar á þeim, sem sízt geta borið þær. Því betur sem menn athuga vandamálið í heild, því ljósara verður, að ríkisstjórnin valdi einu heildar- stefnuna, sem hugsanleg var eins og á stóð. Það var ■ekki hægt að gera minna á þessu stigi, og getur raun- ar enginn fullyrt, að ekki verði þörf frekari ráðstaf- ana síðar í vetur, þegar staða sjávarútvegsins verð- ur Ijósari en hún er í dag. í umræðum á Alþingi lýsti forsætisráðherra því yfir, að það væri grundvallaratriði í stefnu ríkis- stjómarinnar að forðast atvinnuleysi. Þessari hlið mál anna verður nú að gefa meiri gaum, því víða hefur 'atvinna ekki aðeins minnkað verulega, heldur jaðrar við atv irmuleysi. Sums staðar bitna vandræði eins frystihúss á heilu byggðarlagi, þannig að það ná- lega larr>ast, og samdráttur í einum eða tveim iðngrein um, til dæmis skipasmíði, getur haft alvarleg áhrif á afkomu heilla bæja. Verður sýnilega að beina fjár- magni í ríkara mæli til ýmissa atvinnugreina til að vega upp á móti því tjóni, sem verðhrunið gerir í ein- stökum greínum og byggðum. Framurr’an er alhliða barátta við mestu erfiðleika, sem þióðin hefur orðið fyrir síðan í byrjun heims- kreppu^nar. Nú verða allir að sýna ábyrgð og dreng- lund og leggja sig fram um farsaélustu lausn málanna. 4 19. október 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ ÞAU ERU KOMIN - DONSKU EPLIN MEÐ BROSI SAFA OG ANGAM LEITIÐ EKKI LANGT YFIR SKAMMT AÐ SUMARAUKANUM HANN ER í NÆSTU BÚÐ, SEM HEFUR DÖNSKU EPLIN TIL SÖLU. krossgötum ★ ÍSLENZKAR JURTIR. Á íslandi vaxa um 430 tegundir jurta auk slæðinga, sem sumir hverjir eiga sjálfsagt eftir að ílendast hér og vinna sér þegn- rétt í gróðurríkinu. Þar við bætast svo garðjurt- irnar og stofublómin og er tala þeirra legíó. — Grasafræðiáhugi margra er að mestu bundinn við skrautjurtimar, nær oft ekki út fyrir stofuna eða garðinn og jafnvel varla það. Hinir eru þó líklega fleiri, sem hafa meiri eða minni áhuga á gróðurfari og jurtalífi landsins yfirleitt, enda eiga þar margir hagsmuna að gæta, t. d. flestir, sem landbúnað stunda eða vinna að ræktunar- málum. Hingað til hafa fáir íslendingar lagt stund á grasafræðinám umfram það sem almennt er krafizt til að ná prófi í skólum. Þó eigum við nokkra vel menntaða grasafræðinga og á þeim hvíla allar meiriháttar grasafræðiranlnsóknir iandsins. En þetta er svo lítill hópur, að þótt hver þeirra væri fjögurra manna maki að afköstum og vel það, þá myndi margt verkefnið, sem leysa þarf, verða út undan eða dragast á ianginn. Þó er stöðugt unnið að gróður- rannsóknum, m. a. hefur undanfarin ár farið fram athugun á útbreiðslu háfjallaplantna, og hefur Eyþór Einarsson, grasafræðingur, einkum haft það starf með höndum. Þetta er seinunnið verk og tímafrekt, enda kemur einungis hásumartím- inn til greina við gróðurathuganir á fjöllum. Samt hefur ýmislegt athyglisvert komið i ljós. T. d. hefur nú fengizt örugg vitneskja um, að jurtir vaxa hér mun hærra yfir sjó en til skamms tíma var ætlað eða í ríflega 1600 m. hæð. ★ ATHUGANIR Á EYJA- FLÓRUNNI. Dálítið hefur líka verið um gróðurathuganir við sjávarsíðuna, en þar er þö margt ógert eða skammt, á veg komfð. Hef ég þá sérstaklega eyjarnar í huga. Rannsóknir hafa að vísu farið fram á einstökum eyjum, þó fáum, en engar heildarathuganir á eyjaflórunni hafa átt sér stað. Mikið er af eyjum og hólmum með- frpm ströndum la'ndsins, sem kunnugt er, á Breiðafirði einum munu t. d. finnast á þriðja þúsund eyjar með einhverjum landgróðri. 1 flest- ar þessara eyja hefur aldrei grasafræðingur komið, hvað þá að fylgzt hafi verið með gróður- farsbreytingum, sem þar kunna að hafa orðið. Þarna kynni ýmisiegt íróðlegt að koma í ljós, e£ að væri gáð. Til marks um það má nefna, að Framhald á bls. 15.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.