Alþýðublaðið - 25.11.1967, Qupperneq 1

Alþýðublaðið - 25.11.1967, Qupperneq 1
VIKAN 26. nóvember — 2. desember 1967. FULLVELDIS HÁTÍÐ 1. DES. Á föstudaginn kemur, 1. des- ember halda íslendingar hátíð- legan fullveldisdag sinn. Efni hl.iáðvarpsins þann dag ber ríku legan keim' af fullveldisafmæl- inu og að venju ber þar hæst hlut stúdenta. Útvarpað er frá messu þeirra um morguninn og kl. 14,00 hefst svo útvarp frá stúdentahátíð í HásKóla Islands. þar sem Sigurður A. Magnússon mun m. a. flytja ræt.i og stúd entakór skemmta. Um kvöldið er svo útvarpað dagskrá Stúdenta- félags Reykjavikur og má nefna, að meðal efnis er ræða Péturs Thorsteinssonar, sendiherra, um ísland og samfélag þjóðanna og einnig mun Ólafur Haukur Ólafs son, læknir, flytja ræðu. o Stundarkorn Á miðvikudaginn kemur stjórnar Baldur Guðlaugsson þættinum Stundarkorn. Gestir hans cru að vcnju allmargir og sitt úr hvorri áttinni. Sveinn R. Hauksson er læknanemi og jafnframt einn helzti fox-vígismaður Tengla, en svo nefnir sig hreyfing ungs fólks, sem vinnur sjálfboðastarf í geðverndarmálum. Hann segir frá þessari starfsemi. Elísabet Erlingsdóttir heitir ung söng- kona, sem er í þann mund að ljúka söngnámi við tónlistarhá. skóla i Þýzkalandi. Hun syngur 4 íslenzk lög í þættinum. Þá er rætt við Eddu Þórarinsdóttur, leikkonu, en hún lauk leiklistar- námi á síðasta vori. Sömuleiðis er rætt við Óskar Sigurpálsson, íslandsmeistara í lyftingum og sýnd stutt kvikmynd af þjóðlaga tríó, svonefndu Hryntríói, en það er skipað þeim Jóni Stefánssyni, organista að öðru jöfnu, og Kenn araskólanemunum Ólöfu Harðar- dóttur og Helga Einarssyni. A3 lokum segir svo Vilborg Árnadótt ir nokkuð frá ævintýraríku starfi sínu við íslenzku sýningar deildina á heimssýningunni í Montreal sem nýlega er lokið. o Á MORGUN Hljóðvarp kl. 11.00 og 20.00, Um nokkra árabil hefur verið hald in kirkjuleg sumarhátíð að Hól- um í Hjaltadal, og stendur að henni félag, sem hefur viðreisn og framfarir staðarins á stefnuskrá sinni, svo og rækt við forna sögu hans, og heitir það Hólafélagið. Nú á sunnudag (26. nóv.) verða á dag skrá útvarpsins tveir meirihátt- ar dagskrárliðir frá síðustu Hóla- hátíð, er haldin var 13. ágúst í sumar. Kl. 11 verður útvarpað guð þjónustu þeirri, er þá fór fram í dómkirkjunni á Hólum. Þar prédik aði séra Benjamín Kristjánsson prófastur Eyjafirði, sem hefur síð- an látið af embætti. Að messu- gerðinni standa með honum prest arnir Björn Björnsson á Hólum prófastur Skagfirðinga, séra Þórir Stephensen á Sauðárkróki og séra Jón Kr. ísfeld á Bólstað. Kirkju- kór Sauðárkróks syngur undir stjórn Eyþórs Stefánssonar tón- skálds, sem annast einnig orgel- leikinn ásamt dóttur sinni Guð- rúnu. í messunni stjórnar Eyþór írumflutningi kórverks, er hann samdi beint af tilefni þessarar há- tíðar: „Dona Nobis P^cem”, sem tileinkað er minningu Jóns bisk- ups Ögmundssonar hins helga. Ætlunin mun að halda framvegis þeim hætti, sem upp var tekinn í sumar, að á Hólahátíð sé minnzt einhvers hinna fyrri Hólabiskupa eða annarra framámanna staðar- ins. Elísabet Erlingsdóttir syngur íslenzk lög við undirlcik Jóns Stef- ánssonar (miðvikudug). (Ljúsmynd: Sigurliði Guðmuiidssou).

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.