Alþýðublaðið - 01.12.1967, Page 1

Alþýðublaðið - 01.12.1967, Page 1
Föstudagur 1. desember 1967 — 48. árg. 278. tbl. — VerS 7 kr. Kjaradómur úrskurðaði um Jbrjú mál i gær Séra Rasmar Fjalar Lárusson. Hlaut flest atkvæði í prestskjöri Prestkosning fór fram í Hali- grímssókn síðastliðinn sunnudafí og' voru sex umsækjendur í kjöri. Atkvæði voru taiin á skrifstofu biskups í gærmorgun, ogr hlaut séra Ragnar Fjalar Lárusson á Siglufirði flest atkvæði, en kosn ingin var ólögmæt, þar eð eng inn umsækjenda hlaut hreinan meirihluta atkvæða. Er því heim ilt að skipa hvern umsækjenda sem vera skal í starfið, cn bess munu um langt árabil engin dæmi að annar hafi verið val- inn en sá atkvæðahæsti, þegar Iíkt hefur staðið á. Úrslit kosninganna urðu þau, að séra Ragnar Fjalar Lárusson hlaut 812 atkvæði, séra Páll Pálsson 688, séra Ingþór Indriða son 685, séra Lárus Halldórsson 651, séra Björn Jónsson 364 og séra Kristján Róbertsson 167. 22 seðlar voru auðir og 12 ógildir. Breytingar á vinnutima og aldurshækkun í GÆR fjallaði Kjaradómur um þrjú mál og afgreiddi. Voru það kjaradómsmát starfsmanna rík- isins, lögregfuþjóna, sem fá laun greidd úr borgarsjóði og bæjar- starfsmanna á Siglufirði. Mjög litlar breytingar urðu á kjörum rikisstarfsmanna frá því sem áð- in- var. Ein helzta breytingin er sú, að tíminn, sem starfsmaður þarf að vlnna samfleytt til að hækka í launaflokki og svo til að ná hámarkslaunum hefur verið styttur. Nær þetta atriði til þriggja flokka. Flokkurinn, sem áður miðaðist við 15 ára starfs- aldur verður nú miðaður við 12 ár, sá sem áður miðaðist við 10 ár, miðast nú við 8 ár og flokkur- inn, sem áður var miðaður við 6 ára starfsaldur breytist í 5 ára. Vinnutími alls hjúkrunarfólks og aðstoðarfólks við hjúkrun, svo og ljósmæðra á fæðingardeildum styttist um tvær vinnustundir á viku, úr 44 stundum í 42. Næturverðir talsíma og tal- stöðva fá styttingu vinnuviku úr 44 stundum í 36 stundir. Sumarvinnutími ríkisstarfs- manna á iaugardögum breytist. Hann var áður reiknaður frá 15. maí, en nú verður hann reiknað- ur ftó 1. maí að telja. Daglegur vinnutími kennara lengist, hann var áður frá klukk- an 9 til 17 virka daga, en frá 9 til 12 á laugardögum. Nú verður daglegur vinnutími kennara reiknaður frá kl. 8 á morgnana til kl. 17 virka daga, en á laug- ardögum frá kl. 8 til 12. Verði ejýz í daglegum, samfelldum Framhald á 14. siðu. ENGAR MYNDIR TAKK'. Fréttamaður Alþýðublaðsins og Ijósmyndari fóru i gær á vettvang til þess að fá niður- stöður kjaradóms og taka mynd, er forseti dómsins læsi hann upp. Þegar á staðinn kom fékkst hins vegar aðeins afrit af dómnum í aðalmálinu en dómarnir í hinum tveim- ur voru ekki handbærir og fengust engar upplýsingar gefnar um innihald þeirra þar á staðnum. Og með öllu var útilokað að leyfi fengist til að taka myndir af dóms- uppkvaðningunni, eins og reglan hefur þó verið áður. Kjaradómur fjallar um mál, sem varða þúsundir Iands- manna, en starfsmenn hans virðast halda, að niðnrstöður dómsins komi blöðunum og þar með almenningi ekkert ?ið. IDESEMBER Það er orðið æði vetrarlegt hér norður á íslandi, eins og sést á þessari mynd, sem tek in var fyrir fáeinum dögum. Enda er kominn hávetur og I dag er fullveldisdagurinn 1. desember. Að vanda verða ým is hátíðahöld i tilefni dagsins og standa stúdentar einkum fyrir þeim. Frá þessum hátíða höldum er sagt í í'rétt á bls. 3 í blaðinu í dag. IVERKFALLI1SÆTTIR I K ÝPURDEILU AFLYST Á félagsfundi í Hinu íslenzka prentarafélagi siðdegis í gær var samþykkt að aflýsa áður b f laðri vinnustöðvun, Fund- urinn var mjög fjölmennur og var samþykktin gerð með öll- um greiddum atkvæðum gegn tveimur. Á fundinum var samþykkt samkomulag sem stjórn prent arafélagsins og Félags ísl. prentsmiðjueigenda hafa gert með sér imi að setja á fót sameiginlega nefnd til að ræða urn atriði viðvíkjandi 'i samskipti félaganna. i Nicosia 30. nóvember (ntb-reuter). Tilkynnt var í Nícosiu í gær, að rikisstjórnirnar í Aþenu Ank- ara og Nicosiu hafi náð samkomulagi um samþykkt lausnar Kýpur- deilunni, þar sem segir m. a., að Grikkjum beri að kalla heim þá 10.000 hermenn, sem þeir haía sent til Kýpur. Frá Aþenu berast þær fréttir, að tveir hinna þriggja sáttasemjara í deilunni hafi snú ið heim í gær, en þeir hafa átt ríkan þátt í samningaviðræðunum um lausn deilunnar. Benda því allar líkur til þess, að hættan á striði milli Tyrkja og Grikkja sé úr sögunni. í samþykktinni, sem gerð var seg'ir einnig að Tyrkjxun beri að dreifa liðssafnaði þeim, sem þeir hafi haft uppi undan farnar vikur, tilbúnum til inn- rásar á Kýpur. Cyrus Vance, sendimaður John sons Bandaríkjaforseta og einn sáttasemjaranna þriggja fór í gær frá Nicosiu til Aþenu, þnr sem hann mun dvelja enn um stund. Hinir tveir, Manlijo Brosio aðalritari NATO, og Jos Rolz Bennett, sendimaður U Thants, eru nú farnir hvor til síns heima. Makarios, forseti Kýpur, var að því spurður í gær, hvort han.n teldið frið vera tryggðan. „Það held ég“, svaraði forsetinn. Á- kvæði samþykktarinnar um lausn Kýpurdeilunnar, sem gerð var í gær, hafa enn ekki verið birt opinberléga. Samkvæmt fregnum frá Aþenu segir, að þau verði að öllum líkindum sett fram sem til mæli frá U Thant, framkvæmda- stjóra S.þ. til Tyrklands og Grikk lands um, að framkvæma vissar aðgerðir. Áreiðanlegar fréttir frá Aþenu herma, að aðaldeilumálið í samn ingaviðræðunum í Nicosiu hafi verið innan hve langs tíma grísku hermennirnir á Kýpur skyldu vf irgefa eyna. Var að lokum komizt að niður stöðu um, að þessi tími skvldi vera 2 mánuðir. Fréttamenn í Aþenu telja að brottflutningur gríska liðsins frá Kýpur sé mik ill sigur fyrir Tyrki. Mik il eítirvænting ríkir meðal frétta mannanna um, hvort deilan um Kýpur síðustu vikur hafi ekkt áhrif á völd grísku herfcringja. stjórnarinnar, þar sem Panayotis Pipinelis, fyrrverandi forsætisráð herra og áhrifamikill stjómmála maður, hafi verið kallaður úr út- legð í hinni pól.itísku eyðimörk og útnefndur utanríkismálaráð- herra. Það * er skoðun margra fréttaritara í Aþenu, að starf Pipinelis hafi flýtt og tryggt hina farsæla endi, sem Kýpurdeilan nú hefur fengið. Embætti útvarpsstjóra var í gær auglýst laust til umsóknar frá og með næstu áramótum. Umsókn- arfrestur er til 23. desera- ber.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.