Alþýðublaðið - 01.12.1967, Page 2
1
Bazar gamla fólksins
Á LAUGARÐAG og' sunnudag'
veráur lialdinn bazar í Elli- og
hjúkrunarheimilinu Grund við
Ilringbraut. Á bazarnum verffur
til sölu ýniiss konar liandavinna
sem vistfólk; heimilisins hefr'|
unniff. Rennur allur ágóði af baz-
arnum óskertur til gamla fólks-
ins.
Bazarinn hefst kl. 2 e. h. báða
dagana og verffur þar á boffstól- >
um margt eigulegt og ódýrt. Má 1
benda fólki iá' að margt sem
þarna fæst er tilvalið til jóla-
gjafa.
Meffal þess er til sölu verður
má nefna muni úr tágum og basti,
hekluð barnaföt, prjónavöru ým-
iss konar, útsaumaða dúka, púffa
og margt fleira.
Magnea Hjálmarsdóttir og Ei-
] ríka Sigurhannesdóttir handa-
1 vinnukennarar tjáðu fréttamönn-
um aff þetta væri 12. 'árið sem
handavinnukennsla færi fram að
Grund og kynni gamla fólkiff vel
að meta slíka kennslu. Elzta kon
ah/Or á handavinnu á bazarnum
er níutíu og tveggja ára.
Fólk er góðfúslega hvatt til að
styrkja gamla fólkið og er bazar-
inn sem fyrr segir í Elli- og hjúkr
unarheimilinu Grund við Hring-
braut, gengið inn frá Blómvalla
götu.
Sautján
bækur frá
Setbergi
BÓKAÚTGÁFAN Setberg hef-
ur sent frá sér 17 nýijar bæk-
lú'- A,C menkari bókum; má
telja: Minningar Stefáns Jó-
hanns Stefánssonar, síðara
! bindi; Misgjörðir feðranna,
skáldsögoi eftir Gísla Jónsson;
5 í særótinu eftir Svein Sæm-
undsson; Heim til íslands eftir
• Vilhjálm S. Vilhjálmsson;
Daggardropa eftir Björn J.
: Blöndal; Veröldin og viff, nýja
fjölfræðibók og Sumardvöl í
Grænufjöllum eftir Stefán Júl
íusson. Arnbjörn Kristinsson,
framkv.stj. Setbergs kvaddi
blaðamenn til fundar við sig
aff Hótel Borg í gær og kynnti
fyrir þeim nýju bækurnar. —
Þar voru og viðstaddir fimm
af höfundum bóka þeirra er
að ofan er getið.
Minningar Stefáns Jóhanns
Stefánssonar.
Bók þessi er síðara bindi af
endurminningum Stefáns, en
fyrra bindi þeirra kom út í
fyrra. Stefán Jóhann Stefáns-
son er fæddur 1894. Nam hann
lögfræði við Iláskóla íslands
og starfaði síðan frá 1922 að
málfærslu og stjórnmálum. —
Stefán átti sæti lá Alþingi 1934
-1937 og 1942-1945, var for-
stjóri Brunabótafélags íslands
um ára skeið og sendiherra í
Kaupmannahöfn 1957—1965.
Hann var formaður Alþýðu-
flokksins 1938-1952, félags-
mála- og utanríkisráðlierra ár-
in 1939—1942 og forsætisráð-
herra 1947-1949.
Stefán Jóhann Stefánsson
kemur þannig mjög við sögu
undanfarinna áratuga. í þessu
síðara bindi endurminninga
sinna lýsir hann almennum
stjórnmála- og sendiherrastörf
um og átökum innan Alþýðu-
flokksins. — Jafnframt rekur
hann 'kynni sín af fjölmörgum
samtíðarmönnum, samherjum
og andstæðingum, og gerir
grein fyrir meginþáttum Is-
lenzkra stjórnmála og miklum
sögulegum breytingatímum.
Bókin er 130 bls. að stærð
og skiptist í ellefu meginkafla.
Hún er prýdd fjölda ljósmynda
af mönnum og atburðum er„
við sögu koma. Aftast- í bók-
inni er prentuð nafnaskrá.
Misgjörðir feðranna.
Misgjörðir feðranna er
fyrsta skáldsaga Gísla Jónsson
ar fyrrverandi alþingimsanns.
Gísli er þó þjóðkunnur af rit-
störfum fyrir ferðaþættina í
„Frekjunni", sem kom út 1941
og frásögnina „Frá foreldrum
mínum“, sem kom út haustið
1966. Einnig hafa birzt eftir
Gísla Jónsson ljóð og ritgerð-
ir í ýmsum blöðum og tíma-
ritum.
Gísli tjáði blaðamönnum í
gær að Misgjörðir feðranna
væri rómantísk skáldsaga og
hafi hann byrjað að rita hana
í júní 1965. Er þetta fyrsta
hók: Botnsheiðar-Gudda. — X
ibókinni rekur höfundur örlaga
ríka íslenzka ættarsögu, —
harmsögu, sem nær út yfir
landamæri lífs og dauða.
Misgjörðir feðranna er 259
bls. að stærð og skiptist í 20
kafla.
í særótinu.
í særótinu er þriðja bók
Sveins Sæmundssonar, en áð-
ur hafa komið út bækurnar:
í brimgarðinum og Menn í
sjávarháska. Þessi nýja bók er
sem tvær hinar fyrri frásagn-
ir og þættir um íslenzka sjó-
menn.
í bókinni er m. a. fjallað
ýtarlega um Halaveðrið og hef
ur Sveinn safnað efni í frá-
sögnina úr samtímaheimild-
um, prentuðum og skrifuðum
Nokkrir rithöfundar ásamt framkv.stj. Setbergs á blaðamannafundinum í gær. Efri ráð frá
vinstri: Sveinn Sæmundsson, Arnbjörn Kristins son framkv.stj. Setbergs, og Stefán Júlíusson.
Neðri röð frá vinstri: Björn J. Blöndal, Gísli Jón sson og Stefán Jóhann Stefánsson.
og einnig hefur hann rætt við
um 60 sjómenn sem lentu í
Halaveðrinu. Bókin er 221 bls.
og skiptist í 28 kafla. Bókina
prýða yfir 90 ljósmyndir.
Ileim til íslands.
Er Vilhjálmur S. Vilhjálms-
son lézt árið 1966 hafði 'hann
ekki að fullu lokið við hand-
rit að þessari bók. Það varð
þó að ráði milli forstjóra Set-
bergs, Arnbjörns Kristinsson-
ar og ekkju Vilhjálms, frú
Bergþóru Guðmundsdóttur, að
bókin yrði gefin út eins og
ákveðið hafði v.erið. Var Ing-
ólfi Kristjánssyni falið að yf-
irfara handritið og ganga frá
því til prentunar. Bókin hefur
að geyma endurminningar
hjónanna Elísab.etar Helgadótt
ur og Thor J. Brand. — Þau
hjónin voru Vestur-íslending-
ar, en fluttu til. íslands þar
sem Thor J. Brand gerðist
þjóðgarðsvörður á Þingyöllum.
Bókin er 179 bls. að stærð
og skiptist í 17 kafla.
Daggardropar.
Daggardropar er sjöunda
bók Björns J. Blöndal. Bókin
er spunnin ún íslenzkum þjóð-
sögum, aðallega újr Borgar-
firði, ævintýrum og loks skáld
skap Bjöms sjálfs. Efni þetta
fellir Björn í eina heild. Þjóð-
isögurnar hafa ekki verið skráð
ar 'áður og eru sumar orðrétt-
ar af munni sögumanna, en
aðrar endursögn.
Daggardropar er 191 bls. og
skiptist í 9 kafla.
Veröldin og Við.
Veröldin og við er ný fjöl-
fræðibók, sænsk að uppruna.
Freysteínn Gunnarsson þýddi
og staðfærði. Veröldin og við
minnir að mörgu leyti á Fjöl-
fræðibókina sem Setberg gaf
út fyrir um það bil 10 árum
og seldist upp á nokkrum ár-
um í óvenjulega stóru upplagi.
Bókin er 200 bls. að stærð
ásamt orðaskrá, Skiptist hún
í 12 kafla og má þar nefna
Upphaf lífs á jörðinni, Heim
dýranna, Vélaöldina, Viðurværi
manna, Tungumálin, Uppgötv-
anir og uppfinningar, kafla
um algeiminn o. fl.
Sumardvöl í Grænufjöllum.
Bók þessi er saga 16 ára
stúlku. Höfundurinn, Stefán
Júlíusson, sem kunnur er af
fyrri barna- og unglingabók-
um sínum, kvaðst sækja hug-
myndina að sögunni til sumar
búða í Bandaríkjunum, þar
sem hann starfaði um skeið.
— Fjallar sagan um íslenzka
stúlku, Ástu, sem lendir í ýms
um ævintýrum á erlendri
grund. Sagan er skrifuð handa
unglingum. Bókin er 140 bls. ~
að stærð.
Barnabækur
Auk ofangreindra bóka gef-
ur Setberg út nokkrar barna-
Framhald á bls. 14.
2 1. desember 1967 - ALÝÐUBLAÐIO