Alþýðublaðið - 01.12.1967, Side 5
«.Á.
SENDIBRÉF
TIL SÉRA JÓNS
29. nóvember.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS lét um síðustu
helgi getið ráðstefnu norrænna rithöfunda og
gagnrýnenda, þar sem fjallað var um samtíðar-
bókmenntir. Var sú frásögn harla forvitnileg og
okkur íslendingum íhugunarverð. Mun í ráði,
að íslendingar og Færeyingar gerist þátttakendur
í slíkum málþingum framvegis ásamt Dönum,
Finnum, Norðmönnum og Svíum, og væri það vel
farið. Jafnframt ættu íslendingar að koma slíkri
starfsemi á heima fyrir. Væri það verðugt við-
fangsefni heildarsamtökum íslenzkra rithöfunda,
en þau eiga einmitt tíu ára afmæli þessa dagana.
Bókmenntastefnur eru of lítið ræddar hér á
landi, þó að furðu gegni eins og íslendingar lesa
mikið. Ritdómar blaðanna eru að vísu nokkurs
virði, en meginviðhorf komast þar naumast á
framfæri. Er þó sannarlega ástæða að fjalla um
ýmis konar nýjungar, sem til sögu koma, íslenzk
sérkenni og erlend áhrif. Slíkar umræður gætu
orðið rithöfundum og lesendum mjög að gagni,
ef vel tekst.
íslenzka skáldsagan
Sumir halda því fram, að tími skáldsögunnar
sé liðinn. Ekki virðist svo hér á landi. Um þessar
mundir koma út margar íslenzkar skáldsögur. Ég
geri þær ekki að umræðuefni þessu sinni, en
gaman væri, að ritdómarar okkar og aðrir mennta-
menn ræddu í heyranda hljóði íslenzku skáldsög-
una, þróun hennar, listgildi, þjóðfélagsáhrif og
menningararf. Þá' gæfis); þess ef til vill kostur
að skýra og skilgreina sitthvað, sem nú er á
huldu.
Ritdómurum ber oft illa saman i áliti, er þeir
fjalla um skáldskap samtíðarinnar. Skoðanir eru
stundum jafn margar og mennirnir, sem í hlut
eiga. Þetta stafar af því, að persónuleg afstaða
mótar yfirleitt íslenzka ritdóma. Það er út af fyrir
sig gott og blessað. En víst væri fróðlegt, að jafn-
framt kæmust meginstefnur á dagskrá. Ég skal
taka dæmi, svo að ljósara verði, livað fyrir mér
vakir með þessum hugleiðingum.
Skáldsögur Guðbergs Bergssonar þykja að von-
um nýstárlegar. Ýmsir lesendur álíta þær valda
tímamótum í íslenzkri bókmenntasögu. Aðrir finna
þeim flest til foráttu og kveða fast að orði. Hefur
varla annar ungur höfundur hérlendis orðið um-
deildari síðan Halldór Laxness ritaði Vefarann
mikla frá Kasmír á sínum tíma. Það eru þvílík
tíðindi, að skylt virðist að rannsaka fyrirbærið á
þann hátt, sem tíðkast með öðrum menningar-
þjóðum.
Bókmenntirnar lúta einmitt þessu lögmáli, svo og
aðrar listir. Ella staðna þær eins og vatn, sem frýs
á hörðum vetri.
Góðar bækur eða vondar
íslendingum hættir ósköp við að telja bækur
annaðhvort góðar eða vondar. Þetta einkennir mjög
dóma um skáldsögur Guðbergs Bergssonar. Sann-
leikurinn er hins vegar sá', að flestar bækur hafa
eitthvað til síns ágætis, ef þær eru skrifaðar af
hugkvæmum og gáfuðum höfundum. Iíins vegai'
má löngum deila um skáldskap, vinnubrögð og
skoðanir. íslendingar ættu fremur að leggja það
erfiði á sig en trúa því, að bækur séu góðar eða
vondar. Mestu skiptir, að hver einstakur lesandi
reyni að gera þær upp við sig í mati og nautn.
Fyrir mörgum árum ritdæmdi ég nýútkomná
skáldsögu. Ég var í vanda staddur að meta hana
og mun tilviljun hafa r-áðið úrslitum. Seinna sann-
færðist ég af öðrum ritdómi um allt aðra niður-
stöðu en mig henti. Svo liðu enn tímar fram, og
ég lenti á tali við ágætan mann, sem kvaðst mér
innilega sammála um þennan ritdóm minn. Ég
rakti honum raunasögu mína í þessu efni, en það
stoðaði ekkert. Honum datt ekki í hug að hætta
að trúa því, að dómur minn hefði verið rétturl
Þá blöskraði mér hlutskipti ritdómarans.
Of miklir heimaalningar
íslenzkir rithöfundar deila ógjarnan við gagn-
rýnendur sína. Eigi að síður væri ærin. ástæða,
að ritliöfundar og gagnrýnendur bæru saman skoð-
anir og viðhorf. Þess vegna finnst mér álitlegt að
taka upp þann hátt, sem tíðkast í þessu efni víða
erlendis.
Væri slíkt ekki kjörið verkefni og líklegt, að
til nokkurs árangurs leiddi hér í fásinninu og
einangruninni? . ’•
Þig undrar kannski, að ég skuli tala um fásinní
og einangrun nú á dögum, þegar fjarlægðir eru að’
kalla úr sögu. Ég ætla þó, að Íslendingar séu of'
miklir heimaalningar í andlegum efnum og að úr því
megi bæta. Dönsku vikublöðin koma ekki veröld-
inni og heimsmenningunni á framfæri við okk-
ur, þó að þau geti talizt sæmileg dægrastytting.
Og þetta á ekki aðeins við um skáldskap. ís-
lenzkir fræðimenn þurfa einnig að ræða hugðar-
efni sín í áheyrn þjóðarinnar og gefa henni kost
ó að heyra skoðanir.
Er þetta bylting?
Mig grunar, að bókmenntastefna Guðbergs sé
ckki sú bylting til góðs eða ills, sem margir les-
endur ætla. Hún er hins vegar ný af nálinni hér
og þess vegna forvitnilegt viðfangsefni. íslenzka
skáldsagan hefur breytzt að frumkvæði þessa sér-
stæða og tiltektarsama höfundar. í hverju er sú
breyting fólgin og hvað boðar hún? Svör við þeim
spumingum gætu orðið fróðlegt íhugunarefni öll-
um, sem unna íslenzkum bókmenntum.
Nýjungar í ljóðagerð sættu hatrömmum deilum
hér á landi fyrir aldarfjórðungi. Nú er sá hávaði
þagnaður og sum umdeildu kvæðin ótvíræð þjóð-
areign. Tilraunin var síður en svo hneykslanleg.
Hún var allt annars eðlis en stjórnarbylting. Gam-
all siður þarf ekki að dæmast til útskúfunar, þó að
ný viðleitni keppi við hann og reynist farsæl.
Náttúrunafnakenningin
Náttúrunafnakenning Þórhalls Vilmundarson-
ar vakti mikla athygli í fyrravetur. Fræðimenri
okkar láta hins vegar eins og þeir viti ekki af
henni. Sama gilti forðum um sagnfraeði Barða
heitins Guðmundssonar. Um málflutning hans var
hlaðið þagnarmúr, ef undan voru skildar trúarjátn-
ingar þeirra, sem líta á fornsögurnar eins og
heilagan og óskeikulan sannleik.
Annars staðar myndi náttúrunafnakenning Þór-
halls þykja sjálfsagt umræðuefni á málþingi
fræðimanna, þar sem fjallað væri vísindalega um
þessi efni. Til þess er fjöldi íslendinga hæfur
vegna inenntunar og áhuga. En hvers vegna fær
þjóðin ekki að heyra skoðanir sérfróðra manna á
þessarj forvitnilegu tilraun? Þá væri um eitthvað
að hugsa og tala á íslandi næstu vikur.
Eða eigum við kannski að láta okkur nægja
dönsku vikublöðin?
Helgi Sæmundsson.
Nýjar Heimskringlubækur
Björn Bjarman: |
TRÖLLIN, skáldsaga
Verð kr. 270,—
Drífa Viðar:
FiALLÐALSLILJA,skáldsaga
Vérð kr. 320,—
Gunnar Benediktsson:
SKYGGNZT UMHVERFIS SNORRA
(væntanleg í desember)
Gunnar M. Magnúss:
ÁR OG DAGAR
Verð kr. 450,—
Jón Helgason:
KVIÐUR AF GOTUM OG HÚNUM
(væntanleg í desember)
Krupskaja o.fl.:
ENDURMINNINGAR UM LENÍN
•I
Verð kr. 320,—
Mao Tse-tung:
RAUÐA KVERIÐ
Verð kr. 93,—
Vera Panova:
SAGAN AF SERJÓZA, skáldsaga
Verð kr. 280,—
Romain Rolland:
JÓHANN KRISTÓFER IX X
Verð kr. 420 —
Tryggvi Emílsson:
RÍMUÐ LJÓÐ
Verð kr. 350,—
Þorsteinn frá Hamri:
JÓRVÍK LJÓÐ
Vérð kr. 300,—
Þorsteinn Valdimarsson:
FIÐRILDADANS
Verð kr. 320,—
(Sölusk’attur er ekki innifalinn í verðinu).
HEIMSKRINGLA
LAUGAVEGI 18.
1. desember 1967 - ALÝÐUBLAÐIÐ 5
>jH,.igTí'ji,i Hil.Mt ijm I ^na,Ti»«jMiKÉf|->innfrwffTHi|>n.r<in»..lni,rflifir».l . ■ ... 'i i i I i | ................... v'-J-