Alþýðublaðið - 01.12.1967, Síða 7

Alþýðublaðið - 01.12.1967, Síða 7
ÞEGAR NORSKIR GYÐINGAR VORU TEKNIR OG FLUTTIR TIL ÚTRÝMINGAR ALLIR Norömenn sem fylgd- ust með þróun mála í Þýzka- landi undir stiórn Hitlers vissli, áður en stríðið brauzt út, að Gyðingar voru ofsóttir, ertir og þeim mismunað á margan hátt, og að margir þeirra flúðu land. Það sem enginn vissi var, að Hitler hafði ákveðið að útrýma þeim alveg, að svo miklu leyti sem honum og lijálparmönnum hans var það mögulegt. Það var fyrst ljóst eftir að stríðið brauzt út. Fyrstu tvö ár hernámsins í Noregi var ekki mikið um Gyð- ingahatur í landinu, og var álit- ið að svo myndi verða áfram. Ef þessi skoðun hefði ekki verið svo útbreidd, bæði meðal norskra Gyðinga og annarra en raun bar vitni. ★ ÁRÁSIN Á SOVÉT- RÍKIN. Ákveðinnar viðleitni til mis- mununar og ofsóknar á Gyðing- um gætti þó örlítið fyrstu tvö Norðmanna hefði vissulega marg- falt fleiri Gyðingar flúið land hernómsárin, en á öðrum grund- velli, og hlutu þeir svipaða með- ferð og aðrir Norðmenn. Þannig voru nokkrir Gyðinga- kaupsýslumenn frá Tromsö, Nar- vik og Brönnöysund handteknir og sendir í Grini fangelsi. í fangaskrá fangelsisins stendur aðeins eitt orð sem ástæða hand- tökunnar: „Gyðingur.” Þó þykir trúlegf að ástæðu handtökunnar megi rekja til fyrirhugaðrar á- rásar á Sovétrikin 22. júní. Dag- inn eftir að árásin hófst voru 60 norskir Gyðingar handteknir í Osló og þeir sendir í Grini. í fangaskránni stendur ritað: ,,Á rásin á Sovétríkin. Gyðingur.” Flestir Gyðinganna voru af ein- um eða öðrum ástæðum látnir lausir að þremur til fjórum vik- um liðnum. Mörgum tókst síðan að laumast yfir landamærin til Svíþjóðar, aðrir voru handtekn- ir í annað sinn og síðan fluttir til Auschwitz og annarra útrým- ingarbúða. Af öðrum aðgerðum gegn norsku Gyðingunum má geta þess að Gestapo krafðist snemma skrár yfir meðlimi trúarfélags Gyðinga, og fengu meðlimir síð- an stimpilinn „J” (Jöde), í vega- bréf sín. Sumarið 1941 brutu nokkrir unglingar, sem fylgdu Quisling að málum rúður í nokkrum verzl- unum Gyðinga í Osló og um haustið sama ár voru flokkar Gyðinga í Þrándheimi og öðr- um norskum bæjum handteknir. Það var fyrst vorið 1942 að atburðir fóru að fá óhugnanleg- an blæ. Þá voru fjórir af þeim sem handteknir voru í Þránd- heimi teknir af lífi. Síðla sum- ars var Gyðingapresturinn Sam- úel og flokkur safnaðarfólks hans handteknir og fluttir úr landi. Haustið 1942 hóf störf í aðal- stöðv. Gestapo í Osló svonefnd Gyðingadeild, sem hafði það verk efni að undirbúa brottfl.utning Gyðinga úr landi í stórum stíl. Um þetta vissu ekki margir í Noregi. Aðfaranött 26. október voru gefnar skipanir þess efnis að all- ir Gyðingar í Osló skildu fang- elsaðir, og út um allt land var fjöldi Gyðinga liandtekinn. — Fangarnir voru fyrst fluttir til Bretveit, en síðan til svonefnds „hænsnabús,” sem Quisling hafði umsjón með. „Hænsnabúið” var bærinn Berg við Túnsberg og þar fengu Gyðingarnir heldur harka- lega meðferð. Á hvítasunnu árið 1942 tilkynnti Quisling stofnun „norsku” fangabúðanna. Áætl- unin komst í framkvæmd siðla sumars og voru Gyðingarnir fyrstu fangarnir sem þangað voru fluttir. Fangaverðir voru að mestu úr „hirð” Quislings og stóðu þeir fyrirmyndum sín- um úr SS-sveitunum sízt að baki hvað snerti harðneskju og hrottaskap. ★ GAGNSLAUS MÓTMÆLI KIRKJUNNAR. Samtíða handtökunum voru allar eigur Gyðinga í Noregi gerðar upptækar samkvæmt skip- un frá Quisling. Allur þessi yfir- gangur, sem var með öllu ó- þekktur í Noregi, vakti mikinn úlfaþyt í landinu og ekki sízt meðal starfsmanna kirkjunnar. Bráðabirgða kirkjustjórnin, guðfræðideildir háskólanna, frí- kirkjan og önnur trúarfélög sam- einuðust um að senda mótmæla- skjal til Quislings, og var skjalið lesið úr predikunarstólum sunnu- daginn 22. nóvember. Þrátt fyrir allt báru mótmælin engan árang- ur. Nokkrum dögum áður hafði Quisling fyrirskipað skrásetningu á öllum sem voru Gyðingar að hálfu leyti eða að einum fjórða. Margir Norðmenn hófust þá handa um að hjálpa norsku Gýð- ingunum úr landi eða koma þeim í sambönd við menn sem það gerðu, en því miður tókst ekki að koma nema hluta þeirra úr landi. Tíminn reyndist of skamm- ur. Þó má ætla að nokkur hundr- ur Gyðinga hafi komizt yfir landamærin til Svíþjóðar. ★ NÓVEMBERNÓTTIN ÓGNÞRUNGNA. Aðfaranótt 26. nóvember 1942 komu svo fyrirskipanir um hand- töku allra Gyðinga sem fyrir- fundust í Osló og nágrenni, án tillits til aldurs og kyns, líkam- legra eða andlegra sjúkdóma. Handtökurnar voru framkvæmd- ar af borgarlögreglu Nazista í Osló og gerðar með mikilli hörku. í fyrirskipununum stóð að allar Gyðingakonur, sem báru merkið „J” í vegabréfum sínum ætti að handtaka ásamt börnum þeirra. Allir hugsanlegir Gyð- ingar voru handteknir, er þeir fundust. Þeir handteknu máttu vera norskir, þýzkir, án ríkis- borgararéttar, Slavar, Kreólar eða borgarar einhvers þtirra landa, sem Þjóðverjar höfðuiher- tekið. Undanskildir handtöku ýoru hins vegar konur og karlmenu sem áttu maka er ekki hafði „J” merkið í vegabréfinu. Einnig voru undanskildir borgarar er tilheyrðu brezka heimsveldinu, Bandaríkjunum, Mexíkó, Mið- og Suður-ríkjum Ameríku. Föngunum bar að hafa með- ferðis matvæli til fjögurra daga, fatnað og skó ásamt öllum verð- bréfum og verðmætum. 53 fanganna frá Berg og Grini voru fluttir um borð í þýzku flutningaskipin „Monte Rosa” og „Dóná”, „þrælaskipin” eins og þau réttilega voru nefnd. ★ ÚT í ÞOKUDIMMA NÓTT. Þannig byrjaði ferðin langa mót „Nacht und Nebel,” nótt og þoku eins og Þjóðverjarnir kölluðu það með mildandi orða- lagi, sem raunverulega var sult- ur og hörmungar, gasklefar og dauði. FÍeiri flutningar fylgdu í kjölfarið, jafnskjótt og völ var á skipum til þeirra. í bókinni „Stríð Noregs 1940 — 1945” er skýrt frá því að tala handtek- inna norskra Gyðinga hafi verið 734. Einungis 12 komu aftur til Noregs eftir stríðið. Meðal þeirra sem lifðu hörmungarnar af voru einnig norsku Gyðing- arnir sem áttu maka af arísku kyni. Þeim var haldið í fangels unum Grini og Bergi til vorsins 1945, en þá voru þeir sendir til Svíþjóðar, þar sem þeir fengu frelsi. LAND1966 HANDB00K PUBLISHED BYTHE CENTRALBANK 0F ICELAND Kjörin tœkifærisgjöf ti! fyrirtækja og vina erSendis. Mikilvæg handbók stofnunum og heimilum hér á landi. í ICELAND 1966 er að finna allar helztu upplýsingar itm land og þjóð. Bókin er 390 lesmálssíöur, prýdd nokkrum fögrum iitmynd- um og íslandskorti. Bókinni er skipt í 11 höfuðkafla: Landið og fólkið Saga og bókmenntir Stjórnarskrá og ríkisvald Utanríkismál Atvinnuvegir Verzlun og samgöngur Efnahags- og fjármál Félagsmál Trúarbrögð og menntamál Vísindi og listir Tómstundaiðja. SEÐLABANKI ÍSLANDS Hátt á annað þúsund atriðisorð (Index) er að finna aftast í bókinni. ICELAND 1966 er tvímælalaust vandaðasta handbók um íslenzk málefni sem völ e.r á. Bókin kostar kr. 400,00 með söluskatti. Útgefandi: Seðlabanki íslands. ©AUGLYSINGASTOFAN 1. desember 1967 — ALYÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.