Alþýðublaðið - 01.12.1967, Síða 9

Alþýðublaðið - 01.12.1967, Síða 9
Bragi Sigurjónsson alþingismaður fiutti síðari ræðu Alþýðuflokksins í útvarpsumræðunum síðastliðinn þriðjudag. Fjallaði Bragi um helztu röksemdir, sem stjórnarandstæðingar færðu fyrir tillögu sinni um van- útflutningsafurða væri fallið, og að misræmi ylli erfiðleikum um. Auðvitað hét þetta í munni háttvirts þingmanns óstjórn rík isstjórnarinnar, en.ek'ki hefir hún stjórnað verðfalli á útflutn ingsvörum né valdið þar nokkru um, og ólíklega hefur háttvirtur þingmaður ætlast til, að ríkis- stjórnin hefði hindrað hækkan- ir kaupgjalds þau árín, sem út- flutningsatvinnuvegirnir gátu borið þær, vegna góðæris, eins og stjórnarandstaðan vill telja. í útvarpsumræðum frá alþingi á s.l. vori tók Sigurður Ingi- mundarson, nú 1. landskjörinn iþingmaður og einn af forvígis- mönnum Alþýðuflokksins hér *■ Reykjavík, þessa góðæris stað hæfingu til meðferðar og benti með skýrum rökum 'á, að sam- kvæmt venjulegum skilningi á orðinu góðæri, hefði ekki geng ið góðæri yfir landbúnaðinn svo hann vissi, því að víða um land hefði ár eftir ár verið kvart að um kal og grasleysi. Þá vissi hann ekki til, að sérstakt góð æri hefði verið talið ríkja vest- an- og norðanlands undanfarín ár, hvað aflaföng úr sjó snerti. Sum árin heldur ekki sunnan- lands. Aflabrögð togaranna hefðu oftast undanfarin ár þótt rýr, svo að þar hefði ekki ver ið góðæri að marka. Hitt væri rétt, að síldin hefði veiðzt, það væri vissulega um góðæri að ræða, en spyrja mætti, hvaða aðstöðu við hefðum haft til að notfærá okkur það, ef fram- sýnnar stjórnar hefði ekki notið við um öflun veiðiskipa af full- traust á ríkisstjórnina og hrakti þær. I stæðingum ýmsar hollar ráSleggingar. komnustu gerð og séð hefði ver ið fyrir aðstöðu til að nýta afl ann. Það stendur enn upp á Framsóknarflokkinn að svara þessarí glöggu og skýru ræðu Sigurðar Ingimundarsonar. Næst skulum við líta á þá fullyrðingu stjórnarandstöðunn- ar, að ríkisstjórnin hafi ekki reynzt þeim vanda vaxin að taka efnahagsmál þjóðarinnar réttum tökum og beri því að fara frá, þar sem hún njóti ekki lengur fylgis meirihluta lands- manna. Þegar við reynum að kryfja þessá staðhæfingu til mergjar, verðum við að skilja á milli lið innar tíðar og þess, sem bíður. Um þær efnahagsaðgerðir, sem nú hafa verið teknar eðá senn verða teknar, þ.e. gengislækk unina og 'hliðarráðstafanir í sambandi við hana, gengur dóm ur reynslunnar seinna, og hann einn vei^ður óvéfengjanlegur. < Nú getum við aðeins ráðið í hann af likum frá fyrri reynslu og er þó sá þátturinn mikils- verðastur, sem ekki verður séð ur fyrir: Hvaða aðstoð veitir al menningur til þess, að niður- staða reynslunnar verði hag- stæð Ef við leggjumst ekki öll á eitt'um það, að gengislækkun in verði atvinnuvegunum blóð- gjöf, ef við hvorki skiljum né viljum skilja það, að hér er ver ið að freista þess að bæta hag atvinnuveganna, svo að atvinna geti haldist sem jöfnust og bezt en í stað atvinnuöryggis vérð- um við vísast um sinn að þola lítillega þrenferí kjör, ef við hvorki skiljum þetta né VilJ- um skjlja það, þá er gengislækk unin aðeins bráðabirgðaaðgerð- En gerist hitt, sem allar góðar vættir styðji, að landsmenn víkist af ábyrgð undir nauðsyn ina, þá mun gengislækkunin koma að góðu gagni. Þannig liggur það í hendi alþjóðar og framtíðarinnar að skera úr því, hvort ríkisstjórnin hefir nú reynzt forystu- og þar með efna hagsvandanum vaxin. Dómur stjórnarandstöðunnar þar um er ekki tímabær. En hvað þá um liðinn tírna? Hefir stefna ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum verið þar röng? Núverandi efnahagsvandi er sá, að mikið verðfall hefir orðið á útflutningsafurðum okkar, leiðinni gaf Bragi stjórnarand- vissir markaðir hafa lokazt og afli hefir nokkuð dregizt sam- an.-Er þetta að kenna efnahags- stefnu núverandi ríkisstjórnar? Enginn mun bera það sér í munn. Hitt vill háttvirt stjórnar andstaða staðhæfa, að hinar miklu tekjur þjóðarinnar um undan- farin ár, sem sérstaklega komu af miklimi síldarafla og hag- stæðu verðlagi á afurðum okk- ar erlendis, hafi brunnið á ör- skömmum trma upp í báli verð bólgu. Ekki þarf nema hug- leiða stórfelld skipa- og flugv.- kaup, minnast nýrra verk- smiðja, skóla- og íbúðarhúsa á undanförnum árum til að sann- færast um, að þetta er ekki all ur sannleikurinn. Hitt er rétt, að hluti af hinum auknu þjóðar tekjum hefir vissulega brunnið á báli verðbólgunnar, en víxl- verkanir verðlags og kaupgjalds hafa þar óvéfengjanlega komið við sögu. Hefir ríkisstjórnin haft þar , fyrirleikinn? Varla verður það sagt með sanni. Og ekki minnumst við þess, að Framsóknarflokkur né Alþýðu- bandalag hafi sérstaklega geng ið fram fyrir skjöldu um að hindra víxlhækkanirnar. Brenn ur þó verðbólgan á flestum þegnum þjóðfélagsins og ekki sízt á launþegum og bændum. Við höfum þvert á móti orðið Vitni að því hvað eftir annað, að þessi flokkar — og ekki síð ur Framsóknarflokkurinn - hef ir sjaldan talið eftir sér að kasta sprekum á eldinn. Hér skal ég að vinna, virðist hann hafa hugsað. Nú kann einhver að spyrja: En hyaða vesaldómur er það hjá ríkisstjórn að láta eldana brénna? Hví slekkur hún þá ekki? Og. þá komum við að kjarna þessa máls, sem almenningur virðist gera sér glögga grein fyrir: Það er ekkert fram- kvæmdavald til í landinu, sem getur barið í borðið og sagt, að svona skuli hlutirnir vera og ekki öðruvísi. Þetta er í senn veikleiki og styrkleiki íslenzka Iýðveldisins: Veikleiki að því ieyti, að vegna þess getur ná lega hver stétt þjóðfélagsins jafnvel. minni hagsmunahópar, tekið hús á löglegri ríkisstjórn og gert henni ókleift að koma málum fram nema eftir sam- Framhald á 15. síðu. um á þri&judagskvöld Höfum opnað nýja matvöruverzlun ásamt söluturni að BÚÐAGERÐI 9. Opið frá kl. 8,30-23,30 alla daga vikunnar. Leggjum áherzlu á góða þjónustu. REYNIÐ VIÐSKIPTIN. VÖRUVAL - VÖRUGÆÐi SÖEBECHSVERZLUN Búðagerði 9 — Sími 32140. Fótaaðgerðastofa VIKTORÍU B. flKTORS Viðurkennd af Danska læknafélaginu. KLAPPARSTÍG 25-27 3. h. Almennar fótaaðgerðir. Sérfræðingar á öllum Dr. Scholl’s vörum Innlegg eftir máli, teygjusokkar eftir máli. Nauðsynlegt er að panta fyrirfram í síma 13186 milli kl. 9 og 12. Kvenfélag Alþýðuflokksins heldur bazar í Iðnó uppi laugardaginn 2. des. kl. 2 e. h. Mikið af góðum ódýrum jólagjöfum. Bazarnefndin. Kvenfélagið Hringurinn Efnir til sinnar árlegu kaffisölu og bazars, sunnudaginn 3. desember næstkomandi. Kaffi- salan er að Hótel Borg og bazarinn í húsa- kynnum Almennra Trygginga í Pósthús- stræti. — Á bazarnum er óvenju mikið af fallegum handunnum munum. Allur ágóðinn rennur til að koma upp lækningaheimili fyr- ir taugaveikluð börn. Góðir Reykvíkingar komið og styrkið þetta mikla nauðsynjamál. Kvenfélagid HRINGURINN Starf organista við Dómkirkjuna í Reykjavík er laust til um sóknar frá 1. janúar 1968. Umsóknir sendist fyrir 20. desember til for manns sóknarnefndar, Óskars Gíslasonar, gull smiðs Skólavörðustíg 5, Reykjavík. Sóknarnefnd Dómkirkjunnar. 1. desember 1967 — ALÝÐUBLAÐIÐ $

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.