Alþýðublaðið - 01.12.1967, Side 15

Alþýðublaðið - 01.12.1967, Side 15
RÆDA BRAGA... Framhald úr opnu. komulagsleiðum. Styrkleiki hins vegar aö því leyti, að þannig finna siéttirnar að vissu marki meir til ábyrgðar sinnar eða ættu að finna það. Þær verða að koma sér saman undir leiðsögn nikisstjórnar, sem kann hverju sinni bezt að laða til samvinöu og samstöðu. Það er skilningurinn á þess- um þætti í stjórnarháttum okk- ar, sem hefir valdið því, að sam stjórn Aiþyðuflokksins og Sjálf stæðisiioiiksins hefir 1 vaxandi inæli leitaö meir og meir eftir samvinnu stéttanna um úrlausn ir efnahagsmála og þá ekki sízt iaunþegasamtakianna, fjölmenn asta hópsins í þjóðfélagi okkar. Það hefir varla farið fram hjá nokkrum, að þessi sam- vinnueftirieitun 'hefir í sumum tílfellum a.m.k. kallað á aukna ábyrgðarkennd forystuliðs stéttanna og af iþessari sam- vinnu hefir ýmislegt gott hlotið, sem ella 'hefðj kannske alls ekki nóðst fram. Enginn skyldi því vanmeta nauðsyn þessara sam- vinnutilrauna né sjá eftir tím- anum, sem í þær fer, þótt hóf verði að vera á öllu. Á s.l. vori gengu stjórnmála- flokkarnir til alþingiskosninga. Þeir lögðu spilin á borðið fyrr kjósendur, hver eftir sftiu mati ó málefnum þjóðarinnar. Að sjálfsögðu drógu þeir hver fram sinn hlut eftir getu. Það er hátt ur flokka. Einn telúr þetta sér sigurstranglegast, annar hitt. Stjórnarandstaðan taldi sér mundu verða bezt til fylgis að deila hart á samstjórn Alþýðu- flokksins og Sjálfstæðisflokks- , ins. Sérstakíega 'lagði Framsókn arflokkurinn alúð við að túlka fyrir alþjóð, að þar hefði allt tekizt illa. Nú yrði að taka upp aðra stjórnarstefnu, fara nýja leið, hina leiðina. Hver sú leið væri, þótti óljóst. Margir kom- ust að þeirri niðurstöðu. að önn ur stjórnarstefna táknaði það í munni flokksins, að hann fengi sæti í stjórn, að nýja leiðin væri að hann næði sæti í stjórn, að hin leiðin væri, að hann öðl- aðist sæti í stjórn. Kjósendum þótti svipur Framsóknarflokks- in ekki hreinn og upplitið næsta ódjarflegt. Þeir veittu lionum ekki aukið brautargengi. Alþýðubandalagið gekk klofið itil kosninganna í vor og kom sárt og vígmótt af inribyrðis- deilum út úr þeim. Hinn vaski og gunnreifi uppreisnarforingi, Hannibal Vaidimarsson, bar að visu hátt skjöldinn úr þeim hild arleik, en það verður honum vísast síz^ fyrirgefið af andstæð ingunum í eigin flokki, og fá- um dyist, að „bróðernið er flátt mjög og gamaniö er grátt“ í þeim herbúðum. Þegar óeining í herbúðum Al- þýðubandalagsins, er höfð í huga og getuleysi Framsóknar- flokksins til að skilgreina, hvað íriann vill í þjóðmálum — ann- að en komast í rikisstjórn — liggur í augum uppi, að þangað er ekki forystu að leita í þeim vanda, er nú er við að fást. Þar verður núverandi ríkisstjórn að fá frið til að greiða úr erfiðleik unum. Það verður affarasælast. Strangasti dómurinn, sem kveðinn hefir verið upp um stjórnarandstöðuna og algert stefnuleysi hennar í efnahags- málum, hefir verið felldur af nokkrum talsmönnum þjóð- stjómar nú. Rök þeirra eru, að þjóðstjórn skuli mynduð, svo að stjórnarandstaðan verði til friðs. Enginn nefnir, að hann skuli taka inn í stjórn vegna skynsamlegra ræða hennar. Enginn skyldi þó taka orð mín svo, að núverandi ríkis- stjórn sé gallalaus eða ’hafi ekki eða geti ekki gert skyssur. Slíkt hefir allar ríkisstjórnir hent og mun allar henda. Það er mannlegt að skjátlast. En ég þykist hafa leitt rök að þvl, að meginefni rökstuðnings hátt- virtrar stjórnarandstöðu fyrir vantrauststillögu sinni er úr lausu lofti gripið: Það er ekki rétt, að núverandi stjórnar- flokkar hafi hlotið meirihluta með þjóðinni út á fals og hlekk ingar varðandi efnahagsaðstöðu hennar s.l. vor. Það liggja eng in rök fyrir, að meirihlutakjör fylgið sé brostið. Það hafa ekki verið færð rök að því, að stjórn arstefnan í efnahagsmálum okk ar hafi reynzt í megindráttum röng, og það er enn of snemmt að dæma um áhrif nýgerðrar gengislækkunar á efnahags- kerfi okkar. Af öllu þessu er vantrauststillaga háttvirtra stjórnarandstæðinga óraunhæf ótímabær og ég vil leyfa mér að skora á flutningsmenn henn ar að taka hana. aftur og tefja ekki þingstörfin með gagnslaus- um tillöguflutningi. Hláttvirt stjórnarandstaða hef ir kvartað undan því á alþingi undanfarið, að ræðum þeirra væri lítið eða ekki svarað og stjórnarsinnar vildu lítið á mál þeirra hlýða. Með þessu væru hinu háa alþingi óvirðing sýnd. En hefir stjórnarandstað an hugleitt, hver hlutur hennar er í þessu? Það má vissulega æra stöðuglyndasta mann að hlusta á sömu röksemdirnar fluttar mörgum sinnum af ræðu- manni eftir ræðumann, sem hafa það eitt að marki að tefja tímann og heyra í sjálfum sér. Þetta er að sýna alþingi óvirð- ing og þetta er að fara illa með hlutverk sitt. Því að snörp og sköruleg stjórna^andstaða, sem þorir og kann að segja kost og löst á stjórnaraðgerðum er þingræðinu nauðsynleg, og ætti ef vel er á málum haldið, að ganga næst farsælli og góðri rík isstjórn um virðingu alþióðar. Hvar er virðing stjórnarand- stöðunnar í dag með þjóðinni? Kemur hún fram í þjóðstjórnar hugmyndinni til að stjórnarand staðan íhafi frið? Það er þá virð ing, liggur mér við að segja. Ég vil ráðleggja stjórnarand- stöðunni heilt: Hættið þessum sífellda suðaustan fjórtán, hætt ið þessum eilífa stormbeljanda, reynið að hafa farsæl áhrif á málefni lands og þjóðar með á- byrgri afstöðu, með því að segja af fyllstu einlægni kost og löst á hlutunum að eigin dómi án hornauga á stjórnarstóla, því að til þess voruð þið kjörnir á þing. Megi svo nýgerðar efnahags- aðgerðir verða þjóð okkar til hagsældar, megi ríkisstjórnin bera gæfu til íarsællar forystu landi og lýð, megi takast góð samvinna og samstaða stjórnar- flokka og stjórnarandstöðu um framgang og framkvæmd margra góðra mála á alþingi og utan þess, nú og framvegis. KÉvikmyndir Framhald af 7. síðu. er ágætur sem hinn eigingjarni bankastarfsmaður og sömu sögu er að segja um Bing Crosby í hlutverki hins drykkfellda lækn is. Keenan Wynn Ieikur Luke Plummer, sem reynist ekki eins mikill bófi og maður hefði ætl- að. Michael Connors er fjár- hættuspilarinn svallsami, en allar tilraunir til að láta hann deyja hetjudauða mistakast. Þannig hefur athyglisvert efni að mestu farið forgörðum í með förum leikstjórans og leikenda. Þrátt fyrir allt finnst mér per- sónulega þessi mynd betri en margar aðrar af því tagi, sem sýndar hafa verið hér upp á síð kastið. Að lokum mætti geta þess, að kvikmyndin er vel mynduð, en þar var að verki William nokkur Clothier. Sigurður Jón Ólafsson. Skíðalyfta Framhald af 11. síðu. þeirra. Þetta þarf að gerast fljótt ; og ákveðið. Farþegar skulu síðan strax fara af palli endastöðvar- innar, niður tröppur, sem þeim eru ætlaðar. Þegar farið er nið- ur með lyftunni, skulu farþegar ganga upp á pall endastöðvarinn- ar, híða efst í stiganum eftir því, að lyftuvörðurinn gefi merki um að koma og ganga þá í veg fyrir stólanae sem f^-a niður. Hafa síðan sama hátt á og þegar farið er í stólana niðri. Það getur verið þægilegt, þeg- ar farið er í stólana að grípa um uppistöðu, sem er milli stólsæt- anna, eða í stólarmana og halda sér, þar til búið er að setja niður öryggisslána. Meðan fólk er ó- vant að nota lyftuna, má gera ráð fyrir ein'hverjum töfum og að stoppa 'þurfi hana þess vegna oftar en ella. Ef lyftan stoppar vegna rafmagnsbilunar er benzín mótor settur í gang til að koma fólki á ákvörðunarstað. Tekur að eins nokkrar mínútur að stilla lyftuna yfir á benzínmótorinn. — Fólk er áminnt um að sitja kyrrt, ef lyftan stoppar, og gera ekki neinar þær ráðstafanir, er geta komið sér illa, þegar lyftan fer í gang aftur. X- íþróttir Framhald af 11. síffu. 2. KENNAFLOKKUR Halldóra Thoroddsen og Hulda Guðmundsdóttir hlutu Unnarbik- arinn með því að sigra í úrslitum þær Guðmundu Petersen og Jón- ínu Níeljohníusardóttur eftir jafna keppni, sem tók þrjár lotur 7:15, 15:9, 15:10. 3. FYRSVI FLOKKUR A Þar sigruðu veir ungir og efni- legir leikmenn, Magnús Magnús- son og Sveinn Kjartansson. UnnU í úrslitum í jöfnum leik þá Guð- jón Jónssön og Berg Jónsson, 15:12, 15:12. Næsta laugardag verða leiknir úrslitaleikir í innanfélagsmóti T.B.R. fyrir Sveina (12—14 ára), Drengi (14—16 ára) og unglinga (16—18 ára), sem staðið hefur yfir að undanförnu og laugardag- inn 16. desember n.k. gengst T.B.R. fyrir opnu einliðaleiksmóti fyrir aldursflokkana 12 — 18 ára, bæði drengi og stúlkur. Verður það mót auglýst á næstunni. Skíðalyfta Framhald af 11. síðu. boð fyrir gestina í Skíðahótelinu í Hlíðarfjalli, og að lokum munu skíðamenn renna sér með log- andi kyndla frá' Stromphæð, þar sem endastöð lyftunnar er, og nið- ur að Skíðahótelinu. Skíðalyftan er 1000 metra löng, og er hæðarmismunur milli for- stöðvar og endastöðvar 200 metr- ar. 67 stólar eru í lyftunni, sem tekur 134 menn í einu. Á klukku- stund getur lyftan skilað 500 manns upp á Stromphæð, þar sem endastöðin er, en forstöðin er skammt fyrir sunnan Skíðahó- telið. Ferðin upp tekur 7—8 mín- útur. Mesta hæð undir stóla frá jörðu er um 8 metrar. Skíðalyftan er frá fyrirtækinu Doppamayer í Austurríki. Uppsetn ing lyftunnar í Hlíðarfjalli hófst sl. vor og stjórnaði Magnús Guð- mundsson frgmkvæmdum í fjall- inu, en Pétur Bjarnason sá um tæknilega hlið verksins. Hermann Sigtryggsson, íþróttafulltrúi bæj- arins, hefur borið hita og þunga þessara skíðalyftuframkvæmda, en hann vinnur undir stjórn íþrótta- ráðs að þessu verki. Rekstur skiða lyftunnar annast íþróttaráð. Kostn aður við lyftuna er 4—4% millj. kr. og er 40% af því greitt úr íþróttasjóði. ÍSÍ lánaði 1 millj. kr. í lyftuna. en eins og kunnugt er ákvað stjórn ÍSÍ á sl vetri, að í Hlíðarfjalli skyldi vera miðstöð vetraríþrótta á íslandi. Allur ör- yggisútbúnaður er mjög fullkom- inn. Lyftustjóri er Hörður Sverr- isson, en áætlað er að starísmenn ’ verði þrír. Stjórn íþróttaráðs Akureyrar •. skipa: Jens Sumarliðason, formað ■ ur, Haraldur M. Sigurðsson, Svav ; ar Ottesen, Knútur Ottersted og Hermann Stefánsson. ■ Jóla?^fpiuii v Framhrid af 3. síðu. áttu við erfiðleika að etja vegna sjóslysanna miklu er urðu það ár. Kom brátt í ljós að margir fleiri þörfnuðust aðstoðar og ber þar : helzt að nefna gamlar einstæðar konur, gömul hjón og eii stæðár stúlkur með börn á framfæri. ! Enn er þörfin brýn og fyrir jólin í fyrra bárust nefndinni ■ hjálparbeiðnir frá um 800 aðilum. í fyrra veittj nefndin hjálp m.a. á milli 40 og 60 heimilum þar sem : voru á milli 7 og 13 börn. Nefndin nýtur engra opinberra styrkja og byggist fjársöfnunin einkum á frjálsum framlögum al- mennings. Hefur nefndin i ár sent j söfnunarlista í fyrirtæki hér í borg 1 ihni og vill hún vinsairúegast fara i fram á að listamir berist nefnd-1 inni sem fyrst. í fyrra námu fjár- * framlög til nefndarinnar um i hálfri milljón króna. j Mæðrastyrksnefnd víir stofnuð j af félagasambandi 20 kvenfélaga j og núverandi formaðuj- nefndar- j innar er frú Jónína Guðmunds- dóttir og r.itari frú Svava Mathie sen. Vörur á gamla verðinu ★ Við erum að taka upp mikið úrval >af hinu heimsfræga Bing & Gröndahl postulíni, ösku- bakka margar tegundir, styttur og kaffistell. ★ Og ennþá hafið þér tækifæri til að kaupa eft- ir taldar vörur á gamla verðinu, t. d. segul- bandstæki, plötuspilara af ýmsum gerðum, vöfflujárn, straujárn, Gundapotta og brauð- ristar í úrvali og margt fleira. ic Ennfremur mikið úrval af faliegum lömpum á mjög góðu verði, sterk og falleg bómullar- teppi í mörgum stærðum og liíum — mjög ódýr. Jólavörur í fjölbreyttu úrvali Véia- ©g raftækjaverz;iís?sn hf« Lækjargötu 2 — sími 12852. tillagna eða úr- s> 1. desember 1967 - ALÝÐUBLAÐIÐ J.5

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.