Alþýðublaðið - 20.12.1967, Blaðsíða 11

Alþýðublaðið - 20.12.1967, Blaðsíða 11
Þjcfóaratkvæði Framhald af l. siðu. með breytinguna í eitt ár að minnsta kosti og mætti nota i>ann tíma til að rannsaka ná- kvæmlega, hve mikið hliðstæð breyting hafi kostað Svía. — og til þess að gefa þjóðinni kost á að ákveða með þjóðaratkvæða- greiðslu, hvort af breytingunni skuli verða eða ekki. Hjartamaðurinn I'',. - ’ • ■ * ! -ílðu. Taismaður sjúkrahússins sagði, að margar ástæður gætu legið til þess, hve hvítu blóðkornunum ■hefði fækkað í líkama Wash- kanskys b á m svokölluð afsvars efnabreyting. En hún felst í því að hið nýja hjarta hans, sem hann fékk frá nýlátinni stúlku, samlagast ekki líkamanum. Dr. Marthinus Botha. einn læknanna, sem tók þ’átt í því. að setja nýja hjartað í Washkans- ikys, sagði að slík afsvarsefna- hreyting snerti ef til vill ýmis liffæri hans. svo sem lungu og hvítu blóðkornin. Á morgun verður ákveðið, hvort Washkansky verður látinn fá fleiri inngiafir af hvítum blóð kornum. Lungnabólgan, sem hann fékk á laugardag. og miss- ir hvítu blóðkornanna, eru ein- mitt fyrirbrigði. sem læknarnir hafa verið iái varðbergi fyrir og vonað að aldrei myndu koma fram. Þar sem þetta var fyrsta tilraUn til að setja nýtt hjarta í mann vissu læknarnir ekki ná- kvæmlcga livernig afsvarsefna- breytingin mundi koma i'ram. Samt birtust áhrif hennar ein- mitt á þeim tíma, sem læknarnir bjuggust við. Strax eftir aðgerð- ina töluðu læknarnir um 10-14 daga hættutímabil, sem kæmi á efiir. Þegar Washkansky fékk lungnabólguna, voru einmitt liðn ir 14 dagar frá aðgerðinni. Ilækur rramhald af 1. síðu. stræti voru fimm söluhæstu bæk urnar: „Séra Bjarni”, „Harmsög- ur og hetjudáðir” eftir Þorstein Jósefsson, „Eiríkur skipherra dulskynjanh- og dulreynsla”, rituð af Gunnari Magnúss, - „í særótinu” eftir Svein Sæmundsson, - og í fimmta sæti „Spyrjum að leikslok um” eftir Alstair Maelean. Hjá Almenna bókafélaginu, bóka verzlun Sigfúsar Eymundssonar voru þessar bækur mest seldar: „Séra Bjarni”, en um útgáfu bók arinnar sá Andrés Björnsson lekt- or, - „Spyrjum að leikslokum,, eft- ir Alstair Maclean, - „Harmsögur og hetjudáðir” eftir Þorstein Jósefs son, - verzlunarstjórinn taldi sig ekkí geta dæmt um, hvaða bók skyldi koma í fimmta sæti, en taldi tvær til: „í særótinu” eftir Svein Sæmundsson og „Horfin tið” eft ir þá Sverri Krisíjánsson og Tómas Guðmundsson. Þær upplýsingar fengust og hjá AB, að mikil sala væri í framhalds bókum, til að nefna „Myndir dag anna” eftir Séra Svein Víking og „Minningar Stefáns Jóhanns Stef ánssonar”. í bókaverzlun ísafoldar voru fimm söluhæstu bækurnar: „Séra Bjarni - „Brennur París?”, „Lands hornamenn” eftir Guðmund Daní elsson, - „Að hetjuhöll” eftir Þor- stein Thorarensen, - „í særótinu” eftir Svein Sæmundsson. Þá gat verzlimarstjórinn hjá ísa fold þess, að mikil sala væri einnig í bók Friðþjófs Nansen „Hjá sel um og livítabjörnum” og sömuleið is í bókinni „Sex daga stríðið”. Hjá bókaverzlun Snæbjarnar voru bækurnar í gær: „Spyrjum að leikslokum” eftir Alstair Mac- lean, - „Séra Bjarni”, - „Að hetju höll”, „Eiríkur skipherra”, - um fimmta sætið deila svo tvær þýdd ar eftir C.H. Paulsen, en þær nefn ast: „Skyttudalur” og „Skógar- vörðurinn”, Hjá bókabúð Braga í Hafnar- stræti voru bezt seldu bækurnar: „Séra Bjarni”, - „Eiríkur skip- herra”, - „Eldur í æðum” eftir Þor stein Thorarensen, - „Dulræn reynsla min” eftir Elínborgu Lár usdóttur og í fimmta sæti bók Sveins Sæmundssonar „í sæ- rótinu”, Húseigendafél. Framhald af 2. síðu. ar á Alþingi að fella framkomna tillögu um níföldun fasteignamats ins í þessu skyni. Engin trygging hefur verið gef in fyrir þvi, að fyrningarfrádrátt ur til skatta vegna fasteigna verði miðaður við nífalt fasteignamat, en það ætti að vera í rökréttu sam hengi við álagningarhækkunina, verði hún lögfest. Stjórn Húseigendafélags Reykjavíkur. Hjólbarðaverk- stæði Vesturbæjar Annast allar viðgerSir á hjól- börSum og slöngum. ViS Nesveg. Sími 23120. Mannraunir Frásagnir af ævintýramönnum, sem lent hafa í margvíslegum mannraun- um, t. d. Árás»nni á fljúgandi virkin. 54 daga hrakningum í snjó og frosti. 1000 mílna kúrekakappreiðum frá Chandron í Nevada til Chicago. Bar- dögum við' Indíána. Orrustunni um Kasserina-skarðið. Hlébarðaveiðum. 60 daga hrakningum á sjó o. fl. Kjörin bók fyrir karlmenn, sem unna frásögnum af hetjudáðum og mann- raunum. Þýðinguna annaðjst Skúli Jensson. Verö kr. 268,75 meé söluskatti. Bókaútgáfan Snæfell, Hafnarfirði, Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og útför móður minnar, tengdamóður, ömmu og langömmu JÓNÍNU TÓMASDÓTTUR, frá Siglufirði Jón Kjartansson, Þórný Tómasdóttir, Tómas Ó. Jónsson, Kjartan Jónsson, Ólöf G. Jónsdóttir, Jónína H. Jónsdóttir, Óiafur S. Björnsson, Jón Þór Ólafsson, Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi HARALDUR HJÁLMARSSON, forstöðumaður Hafnarbúða andaðist 18. desember. Jóna Ólafsdóttir, Ólafur Haraldsson, Margrét Jónsdóttir, Grétar Haraidsson, Kristín S. Sveinbjömsdóttir, Haraldur Haraldsson, og bamabörn. Maðurinn minn og faðir SVEINN HELGASON, stórkaupmaður, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 21. þ.m. kl. 2 e.h. Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á minnir.garsjóð við Templarahöll Reykjavíkur, er ber hans nafn. Minningarspjöld fást í Bókabúð Æskunnar. Gyða Bergþórsdóttir, Árni B. Sveinsson. ÚTFÖR HELGU J. ÞÓRARINSDÓTTUR, sem andaðist 14. desember, fer fram frá Raufarhafnar- kirkju, fimmtudaginn 21. desember og hefst með hús- kveðju frá heimili hinnar látnu, Árbliki, Raufarhöfn kL 13.30. Börn, tengdasynir og barnabörn. Útför sonar okkar, unnusta og bróður BRYNJÓLFS GAUTASONAR, fer fram frá Dómkirkjunni, föstudaginn 22. desember kl. 1.30 e.h. Elín Guðjónsdóttir, Gauti Hannesson, Margrét Þorsteinsdóttir, Nína Gautadóttir, Skúli Gautason. NÆG BÍLASTÆÐI. Grensásvegi 50. ÚBVAlSVðRUR k ttUUM HJEfiUM 20 desember 1967. - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.