Alþýðublaðið - 06.01.1968, Síða 3
Rússar saka USA
um sprengjuárás
Moskva, 5. 1. (ntb-reuter).
RÚSSAR hafa sent Bandaríkja-
mönnum orðscndingu, þar sem
mótmælt er árás bandarískra
sprenffjuflugrvéla á rússneskt
skip á höfninni í Haipong í gær.
Er þess krafist að þeim, sem á-
byrgðina beri verði hegnt og
bandaríska stjórnin geri ráðstaf-
anir til að hindra, að slíkir at-
burðir endurtaki sig.
Skipið, sem um ræðir, nefnist
Pereslavl Saelesskij og varð það
Bólusetí við
VEGNA innflúensufaraldurs þess
er nú herjar á íbúa nágranna-
landa okkar Bretlands og Dan-
rr-erkur, er nú hafin hér bólusetn
ing vissra starfsmannahópa, sem
Banvænn
tannhursti
Róm 5. 1. (ntb-afp)
Brasilönsk sendiherrafrú
fannst í gær látin í bað-
herbergi sínu í Rómaborg.
Er talið' að banameinið hafi
verið rafmagnshögg frá raf
knúnum tannbursta sem frú
in átti.
fyrir miklum skemmdum eftir að
bandarísk flugvél hafði varpað
sprengjum á það. Enginn maður
slaðsaðist alvarlega í árásinni.
Rússneska ríkisstjórnin lýsti yf
ir í gær, að tekin yrðu upp ráð
stafanir, til þess að vernda rúss-
nesk skip, sem sigla til N-Viet-
nam, fyrir árásum bandarískra
flugvéla. Er talið að annað hvort .
verði skipin útbúin loftvarnar11
byssum og öðrum varnarvopnum, ,
eða hópuð saman í skipalest'r, |
sem gætt verði af herskipum.
inflúenzu
vegna atvinnu sinnar hafa mikil
samskipti við þessi lönd, og einn
ig þá er þaðan koma.
Blaðið hafði í gær samband
við borgarlækni, Jón Sigurðs-
son og aðstoðarborgarlækni
Braga Ólafsson og fengust þá of
angreindar upplýsingar. Þá kom
einnig í ljós, að nolckurra vægra
innflúensutilfella hefur orðið
vart 'hér í borginni, en ekki er
1 hægt að segja með neinni vissu
hvort hér er um Asíu-innflúensu
að ræða, ekki sízt vegná þess að
í innflúensa er tíð hér, einkum ef
kalt er í veðri eins og nú ér.
Borgarlæknir kvað hættu á að
Asíu-innflúensan bærist hingað
og rétt væri fyrir það fólk að láta
bólusetja sig; er. sérstaklega ætti
vanda til að fá hitasótt og innflú
ensu.
Fækkar ferðamönnum?
Framhald af 1. síðu.
viðvíkjandi þessum májum, þar eð
stjórn Loftleiða hefði . enn ekki
tekið neinar ákvarðanir varðandi
hugsanieg minnkandi ferðalög
Bandaríkjamanna til Evrópu.
ÖRN JOIINSON.
Alþýðublaðið leitaði álits Arn
ar Johnsonar forstjóra Flugfé-
lags ísands á þvi, hvort ráðstaf
anir Bandaríkjastjórnar og til-
mæli John?ons forseta þess efn-
is, að Bandaríkjamenn dragi úr
ferðalögum til útlanda næstu tvö
(árin, kunni að hafa einhver á-
hrif á rekstur Flugfélags íslands.
Örn sagði, að þetta væri erfið
spurning að svara, enda erfitt að
dæma um málið úr fjarlægð. Tví
mælalaust hefði það einhver á-
hrif á rekstur flugfélagsins, ef
Bandaríkjamenn fylgdu þessum
tilmælum forsetans. Þó jið fél-
agið flygi ekki til Bandaríkj-
anna, væri alltaf nokkuð stór
hluti farþega þess Bandaríkja-
menn.
Þá sagði Örn, að sig minnti, að
Kennedy fyrrverandi fprseti
Bandaríkjanna hafi fyrir nokkr-
um árum mælzt til þess við lands
menn sína, að þeir drægju úr
ferðalögum til annarra landa.
Tilmæli Kennedýs hafi verið víð
tækari en þau, sem nú væru
gerð, þar eð hann mæltist til
þess, að menn, sem nauðsynlegá
þyrftu að fljúga til annarra
landa notuðu eingöngu flugvéiar
bandarískra flugfélaga. Þessi til
mæli Kennedys hafi ekki virzt
hafa haft nein veruleg áhrif.
Að síðustu sagði Örn John-
.son; ,,Ég tel. að þessar ráðstaf-
.anir og tilmæli Bandaríkjastjórn
1 ar muni ekki hafa stórvægileg á-
hrif á okkar félag, en að líkind-
um einhver áhrif."
GEIR H. ZOEGA
Blaðið hringdi í Geir H. Zoega,
forstjóra Ferðaskrifstofu Zoega
og spurði hann, hvort hann teldi
tilmæli Bandaríkjaforseta um
minnkandi ferðalög Bandaríkja-
manna til annarra landa, hafd á-
hrif á rekstur ferðaskrifstofunnar.
Geir sagði; ,,Ég tel erfitt að
segja^nokkuð til um þetta eð svo
stöddu. Ég er hálfhrædtíur við
þetta og trúi, að þetta kunni að
hafa í för með sér einhvern aft-
urkipp frá Bandaríkjunum. Enn
veit ég ekki. hvort þessi tilmæli
kunni að verka á skemmtiífrrða-
i skipin."
Hreindýrahópar á héraöi
Hreindýr fara nú í miklum
flokkum austur á Héraði og
eru komin alla leið út að sjó
í Ilróarstungu. Skipta þau
hundruðum, ef ekki þúsund-
um, og segja Héraðsbúar að
þessi mikli fjöldi bendi t.il
þess, að minnsta kosti þriðj-
ungur stofnsins komi ekki til
skila í talningum þeim, sem
lagðar eru til grundvallar því
hve mikið megi veiða á hverju
ári. Þykir bændum hrein-
dýraflokkar þessir heldur
slæmir gestir, því að þau
skiljj eftir allt að því sviðna
jörð, eta allt sem þau nái í og
brjóti niður girðingar. Hefur
aldrei verið eins mikið af
hreindýrum í byggð á Aust-
urlandi og er fjöldi þeirra allt
af að aukast.
Lúðrablástur í .
í Kópavogi í dag
í dag, þrettándadag jóla kl.
15.30 leikur Skólahjómsveit Kópa
vogs álfalög fyrir framan Félags
heimilið, ef veður leyfir, en ann
ars í Kópavogsbíói. Öllum er
heimilt að koma og hlýða á hl jóm
sveitina, meðan húsrúm leyfir.
Sýnir Ijós-
myndir
í dag kl. 4 opnar Leifur Þov
steinsson ljósmyndari, Ijós-
myndasýningu í Bogasal Þjóð
minjasafnsins. Sýninguna kall
ar Leifur ,,Myndir úr borginni
og samanstcndur’ hún af 50
ljósmyndum úr lleykjavík.
Á sýningunni Jná sjá
myndir af götulíff Reykjavíkur
og ýmis hús og; byggingar.
Framhald á 9. 'síðu.
Grískir peningar
finnast í Rússlandi
Moskva 5. 1. (ntb-reu,ter)
Samyrkjubændur á búi í nágrenni Ódessu fundu fyrir skömmu
mikið magn af grískum myntum, sem taldar eru vera 2.500 ára gaml-
ar. Fundpr þessi er hinn merkilegasti og hefur mikið vísindalegþ
gildi . .
Bændurnir voru að grafa hús-
grunn, þegar þeir rákust á gaml
an koparketil, sem þeim til mik
illa vonbrigða reyndist ekki hafa
annað inni að halda en kringlótt-
ar, ryðgaðar járnþynnur með
myndum af mönnum og dýrum.
Var myntunum dreift milli barna
á samyrkjubúinu, e nketilinn tók
ein bóndakonan til handagagns.
Nokkrum vikum seinna datt ein
um bændanna í hug, að mynt-
irnar kynnu að vera einhvers
virði, þrátt fyrir alft. Afhenti
hann lögregluþjóni npkkrar mynt
ir, sem síðan sýndi þær fornfræð
ingi. Sá fornfræðingurinn strax
að hér var um einstæðan forn-
minjafund að ræða.' Var þegar
hafizt handa að safna.'saman mynt
unum og fundust 59;hjá bændun
um.
Eftir ítarlegri leit höfðu komið
í leitirnar 73 myntir, en það er
talið vera aðeins hluti af uppruna
lega fundinum. Myntirnar eru úr
gull og silfurblöndu og voru þær
steyptar í gríska bænum Kizik
á árunum 600 - 400 fyrir fæðingu
Krists. Vitað er að mynt þessi
var alllengi notuð í kringum Mið
jarðarhaf og einkum Svartahaf.
Fræðimaður nokkuf sagði í
rússneska blaðinu Pravda, að verð
mæti myntanna lægi fyrst og
fremst í því snilldarhandbragði,
sem væri á myndunum á mynt-
Vilja losna vi5 kjaradóm
A fjölniennum fundi í Lög-
reglufélagi Reykjavíkur, liöldn-
um 28. des. ’67, var samþykkt eít
irfarandi.
„l'Tmdui-inn vítir harðlega frá-
vísun Kjaradóms í kjaradóms-
málinu nr. 4/1967, Lögreglufélag
Reykjavíkur gegn borgarstjóran-
| um í Reykjavik, fyrir hönd Borg-
i arsjóðs.
Fundurinn telur, að Kjaradóm-
ur hafi notað hæpin rök um mis
tök á málsmeðferð, sem ljóst er
að enga þýðingu höfðu, til að
skjóta sér undan að leggja dóm
á ágreiningsatriði málsins, sern
báðir málsaðilar ósjcuðu þó eft
ir að gert yrði.
Vegna þessarar frávísunar
FramhaUl á 9. síðu.
5. janúar 1968
ALÞÝÐUBLAÐI0 3