Alþýðublaðið - 06.01.1968, Qupperneq 4
Ritstjóri: Benedikt Gröndal. Símar: 14900 — 14903. — Auglýsingasími:
14906. — AÖsetur: Alþýðuhúsið við Hverfisgötu, Rvík. — Prentsmiðja
Alþýðublaðsins. Sími 14905. — Áskriftargjald kr. 120,00 — í lausa-
sölu kr. 7,00 eintakið. — Útgefandi: Alþýðuflokkurinn.
TUNGUR TVÆR
RITSTJÓKI TÍMANS virðist vera órólegur yfir
þeirri almennu skoðun landsmanna, að framsóknar-
r .enn hafi eina stefnu, þegar þeir sitja í ríkisstjórn,
en, aðra þegar þeir eru í stjórnarandstöðu. Þetta er
i aunar augljós staðreynd, en til að reyna að afsanna
t .ana grípur ritstjórinn til þess að búa til samtal við
'jálfstæðismann og ræða málið við hann.
Niðurstaða Tímaritstjórans er þessi:
,,Framsóknarflokkurinn hefur í dag, þegar hann
e-r í stjórnarandstöðu, nákvæmlega sama viðhorfið og
i ann hafði sem stjómarflokkur vorið 1958, þegar
cfnahagsráðstafanirnar voru gerðar þá. Hann beitti
sér þá fyrir því, að launþegar fengju fullar vísi-
Oluuppbætur, en grunnkaupshækkanir taldi hann
ekki tímabærar að sinni. í dag beitir hann sér fyrir
því, að l'aunþegar fái fullar vísitölubætur, en hann
hefur ekki hvatt og hvetur ekki til að verkalýðs-
l.reyfingin hefji baráttu fyrir grunnkaupshækkun-
um að sinni.“
Svo mörg eru þau orð.
Ritstjórinn yelur vorið 1958, en hann hefði eins
getað valið annan tíma á valdaárum vinstri'stjórn-
arinnar, þegar framsóknarmenn höfðu stjórnarfor-
tistu. Hvers vegna minnist ritstjórinn til dæmis ekki
á fyrsta verk þessarar ríkisstjórnar Hermanns Jón-
assonar síðsumars 1956? Byrjaði hún ekki á að taka
rriörg vísitÖiustig af launþegum og bændum? Töldu
fiemsóknarmenn það ekki vera eðlilega og sjálf-
sagða fórn til að bjarga efnahag þjóðarinnar? Var
það ekki þveröfug stefna við þá, sem þeir fylgja í
dag
Ritstjórinn hefði eins getað tekið haustið 1958.
Gekk þá ekki Hermann Jónasson sjálfur á fund Al-
þýðusambandsþings til þess að biðja verkalýðsfélögin
að gefa eftir vísitöluuppbætur á kaup? Töldu þeir
Hermann og Eysteinn þá ekki svo þýðingarmikið,
að launþegar fengju EKKI fulla vísitöluuppbót, að
þeir sögðu cf sér, er því var neitað? Var það ekki
siðasta úrræði framsóknarmanna í efnahagsmálum,
rétt áður en vinstri síjórnin féll, að launþegar gæfu
eftir allmörg stig af dýrtíðaruppbót?
Flsstir þeir, sem fylgzt hafa með stjórnmálum síð-
ari ára, muna þessa atburði. Þeir sjá í gegnum svo
bamalegan málflutning, sem ritstjóri Tímans ber á
borð.
Oím á allt þetta bætist sú fullyrðing, að framsókn
armenn 'vilji ekki grunnkaupshækkanir. Þeir mundu
ýta ur.dir slika kröfu, ef nokkurt stéttarfélag setti
bana frarn, og reyna að koma á vandræðum. Það
■gerðu þeir í kaupskipaverkfallinu, þegar agentar
þeirra beittu sér gegn lausn deilunnar svo lengi sem
þeir sáu sér fært.
4 5. janúar 1968 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ
BALLETSKÓLI
Þórhildar Þorieifsdóttur
Kennsla hefst aftur í skólanum 8. janúar í Góðtemplarahúsinu við
Vonarstræti. Innritun í síma 83082milli kl. 10-12 og 5-7.
Kennt í byrjenda- og framhaldsflokkum.
Æsm
★ ALMANÖK OG
DAGATÖL
Þessa dagana er landsfólklð að hengja upp ný
almanök og dagatöl. Rímnafræðingar hafa lokið
öllum sínum útreikningum um gang himintungl-
anna, og fróðleiknum hefur verið komið á fram-
laeri til almennings í landinu í almanökum og daga-
tölum í ýmsum myndum. Allir þurfa að fylgjast
með tímanum. Að vísu láta menn sig nú minna
skipta ýmsar messur og daga helgra manna en
áður tíðkaðist, en allir þurfa þó að kunna skil á
helztu stórhátíðum, svo sem páskum, hvítasunnu
og jólurn, að ég ekki tali nú um hvar þeir eru
staddir í mánuðinum þann og þann daginn. Þess
vegna er ævinlega hagræði að því að hafa daga-
tal eða almanak við hendina, ef minnið lirekkur
ekki til, því að nú kunna fæstir fingrarím lengur.
Fjöimargar verzlanir og fyrirtæki liafa tekið
upp þann ágæta sið, að senda viðskiptavinum sín-
um dagatal eftir áramótin með viðeigandi kveðju
og árnaöaróskum, sum mjög fallega og smekklega
úr garði gerð. T. d. er Eimskipafélag íslands þessa
dagana að senda út dagatal fyrir árið 1968, sem er
hreinasta augnayndi, eri það ágæta félag hefur
lengi vandað sérstaklega til dagatala sinna. Eins
og að undanförnu fylgir litmjmd af landslagi eða
úr atvinnulífinu hverjum mánuði ársins, tekin af
einhverjum valinkunnum Ijósmyndara, innlendum
eða crlendum. Að þessu sinni eiga þarna m. a.
myndir: Rafn Hafnfjörð, Gunnar Hannesson og
Karl Sæmundsson, allt þekktir snillingar á sviði
1 j ósmyndalistarinnar. Dagatalið er prentað í Kassa-
gerð Reykjavíkur.
Þá liefur Litbrá gefið út lítið borðalmanak
með fallegum litmyndum og einkar smekklegt á
alian hátt, og sjálfsagt eru ýmsir fleiri með athygl-
isverð almanök og dagatöl, ef að vanda lætur. Það
er gaman að hafa svona dagatöl á borðinu eða
veggnum heima hjá sér eða á vinnustaðnum.
I
★ VINSÆL
ÚTVARPSSAGA
f
Það fer ekki milli mála, að lestur útvarpssög-
unnar, Manns og konu, er mörgum ánægjuefni.
Auðvitað kannast ýmsir við söguna, einkum fólk,
sem komið er á fullorðinsár, eigi að síður er þessi
gamli kunningi aufúsugestur, erida lestur Brynj-
ólfs Jóhannessonar með miklum ágætum, sem
vænta má. En þeim sem yngri eru og heyra söguna
í fyrsta sinn, þykir ekki síður fengur að kynnast
þessu öndvegisverki Jóns Thoroddsens og setja sig
ekkj úr færi að fylgjast með flutningi sögunnar í
útvarpinu.
Fyrst minnst er á Mann og konu, er ekki úr
vegi að hvetja fólk til að nota tækifærið og kynna
sér hið gagnmerka rit dr. Steingríms J. Þorsteins-
sonar, Jón Thoroddsen og skáldsögur hans, sem
Helgafell gaf út árið 1943, þar sem ærinn fróöleik
er að finna um ritstörf og skáldsögur Jóns, m. a.
um fyrirmyndir að sögufólkinu í Manni og konu,
sem liöfundurinn hefur dregið fram í dagsljósið.
Steinn.
Jólatrésskemmtun
fyrir börn félagsmanna verðúr haldin sunnu
daginn 7. janúar að Hótel Sögu kl. 3 e.h.
Aðgöngumiðar verða seldir að Óðinsgötu 7,
4. hæð, frá kl. 13—17 og við inngahginn.
Áramótafagnaður
verður haldinn að Hótel Sögu 9. janúar og
hefst kl. 21.
Félag framreiðslumanna,
Félag ísl. hljómlistarmanna,
Félag matreiðslumanna, „
Félag starfsfólks í veitingahúsum.
ÓTTAR YNGVASON
héraðsdómslögmaður
MÁLFLUTNINGSSKRIFSTOFA
BLÖNDUHLÍÐ 1 • SÍMI 21296