Alþýðublaðið - 13.01.1968, Blaðsíða 1
Það, sem lielzt veldur umliugs-
un um álirii' sjónvarps á þjpjSfé-
lagið í heild, er það vald, sem það
stundum nær yfir bornum. Sem
betur fer minnkar það, þegar frá
líður og sjónvarpið verður dag-
Iegur viðburður. Sarnt sem aður
veröa ráðamenu sjónvarps ávallt
að hafa börnin í huga og ieggjá
sérstaka rækt við efni fyrir þau.
Hinrik Bjarnason var í uppháfi
valinn til að sjá um barnatíma
íslenzka sjónvarpsins. Var þegar
ijóst, að það yrði að vera sani-
settur þáttur úr ýmsu erlendu og
innlendu efni. Hefur þetta tekizt
með núklum ágætum og er þáttur-
inn viðurkenndur ai öllum sem eitt
bezta atriöi íslenzku dagskrárinn-
ar. Sjálfur er Hinrik einkanlega
góður sjónvarpSmaður, geð'félldur
og skýr.
Á rnorgun, sunnudaginn 14. jan-
úar, verður Stundin okkar fiutt
í 50. skipti, og sendir Alþýðublað-
ið stjórnanda og öllum, sem hlut
hafa átt að þættinum, þakkir og
liamingjuóskir. Hefur enginn
þáttur, nema fréttir, komið oftar
fram eða verið jafn vinsæll.
Á morgun mun Jón Baldur Sig-
urðsson rabba um ríki náttúrunn-
ar. Síðan segir Hallgrímur Jón-
asson sögu. Þá stinga Rannveig
og ki'ummi, líklega frægustu per-
sónur þáttarins (meö nokkurri
samkeppni frá Sviþjóð) saman
nefjum. Loks flytja nemendur úr
Vogaskóla leikritið Nýju fötin
keisarans eftir H. C. Andersen.
Þetta virðist ætla að verða fjöl-
breyttur og skemmtilegur þáttur
aö vanda.
)