Alþýðublaðið - 14.01.1968, Page 1
Sunnudagur 14. janúar 1968 — 49. árg. 10. tbl. — VerS kr. 7
Gorðor d
Álftanesj
bœnna
KL. 3.50 aðfaranótt laugardagrs
var slökkviiiö Hafnarfjarðar
kvatt að bænum. Garðar á Álfta-
nesi, en þar lograffi eldur á efri
hæff hússins.
Skantma stund tók aff ráffa nið
urlögum eldsins, en bóndinn á
Görðum brenndist mikið og
skemmdir urffu miklar á húsi og
innbúi.
Á fjórða tímanum aðfaranótt
laugardags varð bóndinn þar,
Guðmundur Björnsson, var við
að eldur hafði komið upp í inn-
byggðum klæðaskáp, sem stað-
settur var á' miðri efri hæð húss-
ins. Svo illa vildi til að sími
heimilisins var við klæðaskápinn
og reyndist Guðmundi ókleift að
komast að símanum. Varð hann að
fara út að bænum Grund, til að
ná í síma. Slökkviliðið var kom-
ið á staðinn um kl. 4 og sem fyi-r
segir gekk greiðlega að ráða nið-
urlögum eldsins.
Mikil mildi var að ekki fór verr
en raun varð á, því efra loft húss-
ins er klætt trétext með spónum á.
Þess má einnig geta að ekkert
vatn var á staðnum, og var vatn
það, er notað var til slökkvi-
starfs fengið úr tönkum slökkvi-
liðsbifreiðanna. Hefði vatnið
þrotið liefði orðið að leiða það
alla leið frá Hafnarfirði.
Búandinn í Görðum, Guð-
Framhald á II. síðu.
EIN AFLEIÐING hins frjálsa innflutninss síðustu ára hefur
verið sú, að fluttar eru inn í allstórum stíl erlendar sjávaraf
urðir, fyrst og fremst niðursoðnar. Alþýðublaðið sendi í gær út
blaðamann til að kanna í tveim verzlunum, hversu mikið væri
um þessa vöru. Hann kom aftur með fullan kassa af dýrindis
kræsingum úr ríki hafsins, glæsiiega innpakkaðri og girnilegri
vöru allt frá Noregi til Japan.
Þarna voru makrílsflök í olíu frá
USA. Þarna var „postei" úr þorska-
hrognum og þorskalifur með A og
D vítamínum frá Noregi. Reyktar ostr-
ur frá Japan. Gaffalbitar í vínsósu
fá Glyngöre í Danmörku. Síldarflök
í olíu frá Þýzkalandi. Portúgalsk-
ar sardínur frá Portúgal og portúgalskar sardínur frá Liver-
pool í Englandi. Þarna var norskur kavíar og norsk smá-
síld í olíu. Og ótal tegundir af túnfiski frá Danmörku, Júgó-
slavíu og af ýmsum gerðum frá Japan, pakkað á ensku og selt
af fyrirtækjum í Bandaríkjunum undir sínum vörumerkjum. Svo
var King Oscar smásíld frá Stavangri í Noregi, Limafjarðar-
ostrur, japanskur kúfiskur, humaransjósa frá Fredrikstíd iog
fleira og fleira.
Við gerðum ekki þessa athugun til að skammast yfir því,
að fiskmeti sé flutt til íslands, þótt Bretar hafi löngum taíið
það fáránlegt að flytja kol til Newcastle. Sumt af þessu fiskw
meti veiðist ekki hér, eins og túnfiskurinn, sem er í rai íinni
seldur í samkeppni við kjöt en ekki annan fisk.
Tilgangur okkar með þessari innkaupaferð er að benda á,
hversu stutt íslendingar eru komnir í þeirri starfsgrein, sem
þjóðin lifir á. Hvers vegna hefur okkur gengið svona hiirmu-
lega að gera sjávarafurðir okkar að útgengilegri og fallegri
neyzluvöru? Af hverju seljum við mestallan okkar fisk sem
hráefni? Skyldi vera íslenzk síld í einhverjum dósanna, sen>
við flytjum inn frá öðrum löndum? Af hverju geta svo margar
þjóðir framleitt sínar sjávarafurðir á þennan glæsilega hátt —
svo að þær seljast jafnvel í búðum uppi á íslandi?
Þetta er alvarlegt umhugsunarefni. Niðursuða hefur af ein-
hverjum óskiljanlegum ástæðum heppnazt illa hér á landi. Og
menn segja, að ógerningur sé að komast inn á markaði annarra
landa. En allir virðast geta komizt inn á okkar markað, þótt hann
sé ekki stór.
í tilefni af byltingu herforingjanna í Grikklandi liefur Stúdenta-
félag Háskóla íslands ákveðiff að gangast fyrir Grikklandskynn-
ingu. Kynningin verður haldin í Tjarnarbúð mánudaginn 15, jan,.
n.k. og hefst kl 20,30.
Dagskráin hefst með því, að
Jökull Jakobsson rithöfundur
flytur frásögn frá Grikklandi, e
liann dvaldi þar á s.l. ári sem
Ikunnugt er. Þá mun Sigurður
Guðmundsson skrifstofustjóri
og Þorsteinn Thorarensen rithöf
undur ræða um þróun og ástand
stjórnmála landsins í Ijósi síð-
ustu atburffa.' Sigurður A. Magn
ússon ritstjóri les eigin þýðing-
ar úr verkum grískra Ijóðskálda
og kynnir tónlist eftir Theodora-
kíus. Að lokum verður lesin á-
lyktun stjórnar stúdentafélagsins
um Grikklandsmálið.
Samdægurs gangast stúdenta-
samtök víðsvegar í Evrópu f.vrir
samkomum, sem verða helgaðar
Grikklandi og grísku þjóðinni
Slíkar samkomur og fjöldafundir
verða m.a. lialdnir í London, Par-
ís, Varsjá, Vín, Prag, Osló,
Stokkhótmi, Edinborg, Amster-
dam, Brussel, Róm, Milano, Munc
hen, Frankfurt Helsingfors og
Berlín.
Kynningin verður sem fyrr
segir haldin n.k. mánudagskvöld
og er alroenningi heimill aðgang--
ur.
Frá fundanefnd.