Alþýðublaðið - 14.01.1968, Page 7
Það hefur verið sagt, að sarastarf
mitt við Nureyev hafi blásiö nýju
lífi í túlkun mína, og það er
alveg rétt, og núna vil ég frem-
ur dansa á móti honum en nokkr-
um öðrum. Af þeirri einu á-
stæðu, að ég hef orðið að leggja
mig alla fram til að geta komið
fram á sviði með jafnundursam-
legum dansara og honum. Þogar
ég dansaði á móti Robert fielp-
mann var ég miklu yngri og ó-
reyndari en hann sem var hik-
laust aðalstjarna flokksins á
þeirn dögum, og ég dáðist ákaft
að honum sem manni. Margir
gleyma því hversu mikið brezki
ballettinn á honum að þakka.
Hann var ekki aðeins leiðtogi
flokksins og aðaldansari, heldur
merkilegur kóreógraf og samdi
marga athyglisverða ballotta á
því tímabili sem Ashton gegndi
herþjónustu.
Sp. Hafið þér nokkru sinni
fengizt við kóreógrafíu?
Sv. Nei, ég er gersneydd
hæfileikum í þá átt. En Nureyev
hefur þá hins vegar. Hann býr
einnig yfir aðdáanlegri þekkingu
á' hinum klassíska skóla ball-
ettsins.; Hann hefur næstum ó-
skiljanjegt minni. Hann man
hvert §por og hreyfingu í ótal
þriggja þátta ballettum. Auk
þess hefur hann mjög víðtæka
tónlistárþekkingu.
Sp. Mynduð þér segja, að þér
lifðuð algerlega fyrir list yðar?
Sv. Nei, langt í frá. Það hljóm-
ar yfirlætislega eins og maður
hafi leitað skjóls í einhverjum
fílabeinsturni. Listamaður má
aldrei einangra sig frá umheim-
inum.
Sp. Hver eru áhugamál yðar
utan ballettsins? Hafið þér nokk-
ur hobbí?
Sv. Það orð þoli ég ekki held-
ur. Mér rennur kalt vatn milli
skinns og hörunds þegar ég
heyri það. Þá' dettur mér í hug
allt það gráa, dapra og leiðinlega
sem fólk tekur sér fyrir hendur
til að „drepa tímann” einhvern
veginn.
Sp. Eigum við að segja „tóm-
stundaafþreying” í staðinn?
Sv. Ekki er það síður frá-
hrindandi. Það minnir á eitt-
hvað sem fólki finnst það verða
að gera, hvort sem það langar
til þess eða ekki. Ég geri fátt
annað en dansa. Mestöll orka
mín, einbeitingarhæfileiki og
tími fer í ballettinn. Ég á engar
tómstundir til að mála eða spila
á hljóðfæri eða prjóna — það
dauðleiðist mér raunar.
Sp. Hvaða listgrein hafið þér
mestan áhuga á fyrir utan ball-
ettinn?
Sv. Auðvitað músík, enda er
hún náskyld ballettinum. Svo
eru það bókmenntirnar. Sjálf
get ég varla komið saman
tveimur orðum, hvað þá heilu
bréfi. En mér finnst afskap-
r
lega gaman að lesa. Það var mín
fyrsta brennandi þrá í lífinu að
læra að lesa. Þá var ég fimm
ára. Verst þykir mér, að ég hef
alltaf nauman tíma til lesíurs
núorðið. Það getur tekið mig
heilt ár að komast í gegnurn
eina bók.
Sp. Eigið þér nokkurn eftir-
lætishöfund?
Sv. Æ, kemur það orð nú aft-
ur! Nei, ég á engan eftirlætis-
höfund. Ef ég væri inni í bóka-
verzlun og sæi nýja bók oftir
Graham Greene í hillunni
myndi ég kaupa hana tafarlaust,
því að ég hef mikiar mætur á
bókunum hans. En ég er líka
hrifin af fjöldamörgum öðrum
rithöfundum.
Sp. Lesið þér umsagnir gagn-
rýnendanna eftir frumsýningu?
Sv. Aldrei. Ég gerði það í
fyrstu, en er löngu hætt því.
Ég álít, að fólk geti séð með
því að lesa dómana hvort það
sjálft langar að sjá ballettinn,
en ég er sannfærð um, að þeir
geta haft mjög neikvæð áhrif á
listamanninn. Ef gagnrýnend-
urnir hrósa manni fer maður
kannski að ímynda sér, að mað-
ur sé miklu betri en raun ber
vitni, og hættir að leggja eins
mikla rækt við að hækka stand-
ard sinn og áður. Og ef þeir
eru óvægnir í dómum sínurn og
rífa allt niður getur maður
Framhald á 11. síðu.
SKATTFRAMTELJEND-
UR í KÓPAVOGI
Skrifstofa mín í Félagsheimili Kópavogs, 2. hæð verður
í janúar 1968 opin sem hér segir:
15. - 20. janúar kl. 4-6 e.h„ nema laugardag bl, 1 - 6 e,h,
22. - 27. janúar kl. 4-10 e.h„ nema laugardag kl. 1 - 6
e.h. 29. - 30. og 31 janúar kl, 4 e,h, til miðnættis,
UMBOÐSIMAÐUR SKATTSTJÓRA
AÐSTOÐARSTÚLKA
óskast til rannsóknarstarfa.
Stúdentsmenntun æskileg.
Upplýsingar í síma 21340.
Raunvísindastofnun Háskólans.
AÐSTOÐARMAÐUR
óskast til rannsóknarstarfa. Nokkur reynsla í járnsmíði,
eða rennismíði æskileg.
Upplýsingar í síma 21340.
Raunvísindastofnun Háskólans.
ÆSKULÝÐSRAÐ REYKJAViKUR
Fríkirkjuvegi 11.
Framvegis verður OPIÐ HÚS fyrir unglinga
15 ára og eldri.
!|
í
sunnudaga
þriðjudaga
föstudaga
laugardaga
i
M:
Jt
'!
■il
kl. 20—23
— 20—23
— 20—23
— 20—23,30
Auk þess er opið hús fyrir 13—15 ára á surrnu
dögum kl. 16—19.
í d'ag verður unglingadansleikur kl. 16—19.
FJARKAR LEIKA
Á þriðjudagskvöldum verða kvikmynda-
sýningar.
ÆSKULÝÐSRÁÐ REYKJAVÍKUR.
Góður lager, þykktir 5, 7 og 10 em. Hagstætt verð og
greiðsluskilmálar.
HELLU- OG STEINSTEYPAN SF.
við Breiðholtsveg. Sími 30322.
14. janúar 1968 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ ^