Alþýðublaðið - 18.01.1968, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 18.01.1968, Blaðsíða 6
IV. FF.ÁDKÁTTUR. 1. Kosvnaður við húseigrnir. Sjá um stafliði a., b. og <\ síðast í umsögn varðandi eign arljð :í, um fasteignir. 2. Vaxtagjöid. Hér skal færa í kr. dálk samtalstölu vaxtagjalda skv. C- lið bls. 3. Færa má alla sann anlega greidda vexti af lán- um, þar með talda vexti af lán um, sem tekin hafa verið og /eða greidd upp á árinu. 3. Eignarskattur. í kr. dálk skal færa eignar skatt greidcan á árinu. 4. Eignarútsvar. í kr. dálk skal færa eignar- útsvar greitt á árinu. 5. Iðgjald af lífeyristrygg- ingu. Hér skal aðeins færa fram- lag framteljanda sjálfs til við urkenndra lífeyrissjóða eða greidd iðgjöld af lífeyristrygg- ingu til viðurkenndra vátrygg- ingarfélaga eða stofnana. Reglur hinna ýmsu trygging- araðila um iðgjöld eru mis- munandi, og frádráttarhæfni iðgjaldanna því einnig mismun andi hjá framteljendum. Er því rétt, að framteljendi leiti upp- lýsinga hjá viðkomandi trygg- ingaraðila eða skattstjóra, ef honum er ekki fullkomlega ljóst, hvaða upphæð skuli færa hér til frádráttar. G. Iðgjald af lífsábyrgð. Hér skal færa greitt iðgjald af líftryggingu. Hámarksfrá- dráttur fyrir þá, er greiða í líf eyrissjóð og njóta frádráttar skv. frádráttarlið 5, er kr. 6.000.-, en kr. 9.000,- fyrir aðra. 7. Sjúkrasamlag. Hér skal færa greitt siúkra samlagsgjald fyrir árið 1967, eins og það var á samlagssvæði framteljanda. Sjúkrasamlags- gjald iðnnema og sjómanna sem greitt er af vinnuveitanda, fær ist því ekki á þennan lið. í Reykjavík vár gjaldið kr. 1.380.- fyrir einhleypan og kr. 2.760,- fyrir hjón. 8. Alm. tryggingagjald. Hér skal færa almannatrvgg ingagjald álagt 1967. Fulltj gjald var: kr 3.850,- fyrir hjón, kr. 3.500,- fyrir einhl. karl og kr. 2.625,- fyrir einhleypa konu. Iðnnemar greiða ekki sjálfir alm tryggingagjald. Framtel.i- endur yngri en 16 ára og 67 ára og eldri greiða ekki alm. tryggingagjald. Þessir aðilar færa því ekkert í þennan frá- dráttarlið. í' 9. Stéttarfélagsgjald. Hér skal rita nafn stéttar- félags og árgjaldið í kr. dálk. 10. Greitt fæði á sjó . . . dag ar. Hér skal rita dagafjölda, sem framteljandi er skráður á ís- lenzkt fiskiskip og ^reiðir fæði sitt sjálfur. Síðan skal -marg falda dagafjölda með tölunni 54 og færa útkomu í kr, dálk. 11. Slysatrygging á ílskiskipi . . . vikur. Vegna nýrra lagaákvæða um sjómannafrádrátt, eiga orðin ,,á íslenzku skipi“ að koma í stað orðanna „ á fiskiskipi'* á framtali og skal þessi liður notaðu bæði fyrir sjó- menn á íslenzkum fiskiskipum og sjómenn á öðrum íslenzkum skipum, sem rétt eiga á sjó- mannafrádrætti. Hér skal rita vikufjölda, sem framteljandi er háður slysa- tryggingariðgjaldi sem lög- skráður sjómaður lá íslenzku skipi. Ef framteljandi er lög- skráður á íslenzkt skip í 26 vik ur eða lengur, skal margfaida vikufjöldann með tölunni 808 og færa útkomu í kr. dálk. Sé framteljandi lögskráður á ís- lenzkt skip skemur en 26 vik ur, skal margfalda vikufjöld- ann með tölunni 116 og færa útkomu í kr. dálk. Hlutaráðnir menn skulu og njóía sama frádráttar, þótt þeir séu eigi lögskráðir, enda geri útgerðarmaður fulla grein fyr ir, hvemig hlutaskiptum er farið og yfir hvaða tímabil launþegi hefir tekið kaup eftir hlutaskiptum. 12. Skyldusparnaður. Hér skal færa þá upphæð, sem framteljanda, á aldrinum 16-25 ára, var skylt að spara og jnnfærð er í sparimerkja- bók árið 1967. Skylduspamaður er 15% af launatekjum eða sambærileg- um atvinnutekjum, sem unnið er fyrir á árinu. Sparimerkjakaup umfram skyldu eru ekki frádráttarbær. 13. a. 50% af launatekjum konu. Hér færist helmingur upp- hæðar, sem talin er í tekjulið 12. Ef teknanna er aflað hjá fyrirtæki, sem hjónin eiga, ann að hvort eða bæði, eða ófjár ráða börn þeirra, skal frádrátt ur ekki færður í þennan lið. heldur í b-lið þessa töiuliðar. b. Vegna starfa konu við atv.r, hjóna. Hér skal færa frádrátt vegna starfa eiginkonu við atvinnu- rekstur, sem hjónin eiga, ann| að hvort eða bæði, eðá ófjár- ÞRIÐJI HLUTI ráða börn þéirra. Meta skal hluta konunnar af sameiginlegum hreinum tekj- um hjónannaj miðað við beint vinnuframlag ihennar við öflun teknanna. TilV frádráttar leyf- ist 50% af l'hlut hennar, þó aldrei hærri 1 upphæð en kr. 15.000.-. 14. Sjúkra- og slysadagpening- ar. Hér skal færa til frádrátt- ar sjúkra- eða slysadagpen- inga úr almannatryggingum og sjúkrasjóðum stéttarfélaga, sem jafnframt ber að telja til tekna undir tekjulið 9. 15. Annar frádráttur. Hér skal færa þá frádráttar- liði, sem áður eru ótaldir og heimilt er að draga frá tekjum. Þar til má nefna: 1. Afföil af seldum verðbréf- um (sbr. A-lið 12. gr. laga). 2. Ferðakostnað vegna lang- ferða (sbr. Clið 12. gr. laga). 3. Gjafir til menningarmála, vís indalegra rannsóknarstofn- ana, viðurkenndrar líknar- starfsemi og kirkjufélaga (sbr. D-lið 12. gr. laga). 4. Kostnað við öflun bóka o. fl. til vísindalegra og sérfræði- legra starfa (sbr. E-lið 12. gr. laga). 5. Kr. 41.300,- færast til frá- dráttar tekjum hjóna, sem gengið hafa í lögmætt hjónaband á árinu. 6. Frádrátt v/björgunarlauna (sbr. B-lið 13. gr. laga). 7. Frádrátt einstæðs foreldris, er heldur heimili fyrir böm sín, kr. 20.700.-, að viðbætt um kr. 4.140.-, fyrir hvert barn. 8. Námsfrádrátt, meðan á náml stendur, skv. mati ríkisskatta nefndar. Tilgreina skal nafn skóla og bekk. Nemandi, sem náð hefur 20 ára aldri, skal útfylla þar til gert eyðublað um námskostnað, óski hann eftir að njóta réttar til frá- dráttar námskostnaðar að námi loknu, sbr. næsta tölu- lið. 9. Námskostnað, sem stofnað var til eftir 20 ára aldur og veiíist til frádráttar að námi loknu, enda hafi framtelj- andi gert fullnægjandi grein fyrir kostnaðinum, á þar til gerðum eyðublöðum (sbr. E- lið 13. gr. laga). 10. Afskrift heimæðargjalds v/ hitaveitu í eldri byggingar 10% á ári, næstu 10 árin eftir að hitaveita var inn- lögð. Heimæðagjald vegna hita- veitu í nýbyggingar telst með byggingakostnaði og má ekki afskrifa sér í lagi. 11. Sannanlegan risnukostnað. þó eigi hærri upphæð cn nemur risnufé til tekna, sbr. lið III, 13. Greinargerð um risnukostnað fylgi framtali, þar með skýringar vinnuveit anda á risnuþörf. Um land- göngu- og risnufé yfirmanna áfarmskipuni gildir eftirfar- andi: Skipstjórar mega fá skattfrjálst landgöngufé í innanlandssiglingum allt að kr. 460,— á mánuði, en í utan landssiglingum allt að kr. 1.250,- á mánuði. 1. stýri- menn mega fá skattfrjálst risnufé allt að kr. 607.50 á ári. 1. vélstjórar mega fá skattfrjálst landgöngufé allt að kr. 300,- á mánuði og risnufé allt að kr. 911.25 á ári. 12. Sannanlegan kostnað vegr.a rekstrar bifreiðar í þágu vinnuveitanda. Útfylla skal þar til gert eyðublað „Bif- reiðastyrkur og bifreiðarekst ur,“ eins og form þess segir til um. Enn fremur skal fylgja greinargerð frá vinnu- veitanda um ástæður fyrir greiðslu bifreiðastyrksins. Til frádráttar kemur sá hluti heildarrekstrarkostnað- ar bifreiðarinnar, er svarar til afnota hennar í þágu vinnuveitanda, þó eigi hærri upphæð en nemur bifreiða- styrk til tekna, sbr. lið III. 13. Hafi framteljandi fengið greiðslu frá ríkinu á árinu 1967 fyrir akstur eigin bif- reiðar sinnar í þess þágu og greiðslan var miðuð við lægri gjaldskrá fjármálaráðuneyt- isins fyrir ekinn km., er hon um heimilt að færa hér til frádráttar sömu upphæð og færð var til tekna vegna þessarar greiðslu, sbr. III, 13.. án sérstakrar greinar- gerðar. 13. 1 Ferðakostnað og annar. kostnað, sem framteljandi hefur fengið endurgreiddan vegna fjarveru frá heimiii sínu um stundarsakir vegna starfa í almenningsþarfir. Til frádráttar kemur sama upp- hæð og til tekna er talin, sbr. III. 13. 13.2 Beinan kostnað vegna ferða í annarra þágu, þó eigi hærri upphæð en endur- greidd hefur verið og til tekna er talin, sbr. III, 13. Aðra liði framtals skal ú(.. fylla eins og eyðublað segir til um, svo sem: Á bls. 2 færist greidd heim ilisaðstoð, álagður tekjuskattur og tekjuútsvar svo og greidd húsaleiga. Á bl. 4 í D-lið ber að gera nákvæma grein fyrir kaupum og sölum fasteigna, bifreiða, skipa, véla, verðbréfa og hvers konar annarra verðmætra rétt- inda. Enn fremur ber að til- greina þar greidd sölulaun, stimpilgjöld og þinglesningar- kostnað svo og afföll af seldum verðbréfum. í G-lið á sömu bls. skulu til færðar skýringar eða athuga- semdir framteljanda. Enn frem ur umsókn um tekjuskattsíviln anir skv. ákvæðum 52. gr. lag anna (sbr 49. gr. reglugerðar nr. 245/1963). Umsókn skulu fylgja fullnægjandi upplýsing- ar og gögn t.d. læknisvottorð. Að lokum skal framtalið dag sett og undirritað af framtelj- anda. Ef um sameiginlegt fram tal hjóna er að ræða, skulu þau bæði undirrita það. ATHYGLI skal vakin á því, Framhald á bls. 11. £ 18. janúar 1968 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.