Alþýðublaðið - 18.01.1968, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 18.01.1968, Blaðsíða 4
 mgmM) Bitstjóri: Benedikt Gröndal. Símar: 14900 — 14903. — Auglýslngasfmi: 14908 — ACsetur: Aiþýöuhúsið við Hverfisgötu, Beykjavík. — Prentsmlðja Alþýðu* Maðsins. Sími 14905. — Áskriftargjald kr. 120,00. — í lausasöiu kr. 7,00 eintaklð. — Útgefandi: Alþýðuflokkurinn. Bretar draga saman HAROLD WILSON, forsætisráð- herra Breta, hefur enn tilkynnt ráðstafanir, sem munu ekki að- eins breyta stöðu Bretlands, held ur og gangi heimsmála. Innan þriggja ára ætla Bretar að draga herstyrk sinn heim frá öllum her stöðvum. nema við Miðjarðar- haf, og væntanlega heldur ekki frá Hong Kong. Þá hætta þeir við kaup á amerískum F-lll her- flugvélum, sem ákveðin höfðu verið. Við þetta eiga að sparast um 1.000 milljónir sterlings- punda og verður þá f járhagur rík isins sterkari og sterlingspundið um leið tryggara en áður. Það er gamalt kerfi, að stór- veldi hvers tímabils komi sér upp stöðvum víða um heim og gerist eins konar lögreglumenn. í dag eru það Bandaríkin og Sov- étríkin, sem gegna þessu hlut- verki, og er hinn rússneski floti, sem nýlega var komið fyrir á Mið jarðarh., síðasta dæmið um þetta. í þá tíð, er sólin settist aldrei í brezka heimsveldinu, komu Bret ar sér upp stöðvum víða um lönd. Augljóst er, að hinar miklu nýlendur þeirra hafa greitt kostn aðinn við þessa starfsemi. Nú eru nýlendurnar frjálsar og að- eins eftir nokkrar einangraðar herstöðvar sem Bretar verða að kosta sjálfir — en geta nú ekki lengur. Sérstaklega hafa Bretar haft víðtæk áhrif til friðar við Persa- flóa, á Indlandshafi og í Malasíu. Er talið, að þeir hafi á liðnum ár- um hindrað bæði ófrið og land- vinninga á þessum svæðum. Skal engu um það spáð, hvað nú tekur við, meðan þörf virðist vera fyr ir einhvers konar herstyrk til að vernda friðinn á þessum svæð- um. Athyglisvert er, að sumir stað ir eru svo háðir hinu brezka her- liði efnahagslega, að þeir horfa með skelfingu fram á brottför þess. Svo er til dæmis um Singa- pore, Möltu og Gíbraltar. Verður án efa að gera sérstakar ráðstaf anir til að rétta við efnahag þess ara staða þegar setuliðsþjónust- an minnkar, eins og nú eru horf ur á, þótt ekki sé ætlun Wilsons að hverfa frá Möltu og Gíbraltar enn. Atvinnuleysi FYRSTA MÁLIÐ, sem rætt var á Alþingi, er það kom saman, var atvinnuleysi. Voru ræðu- menn stjórnarandstöðu og ríkis- stjómar sammála um, að einskis mætti láta ófreistað til þess að hindra atvinnuleysi, enda væri það versta böl, sem fyrir nokkra fjölskyldu gæti komið. Er sjálf- sagt að nota nú á allan hugsan- legan hátt þann mikla atvinnu- leysistryggingarsjóð6, sem verka- lýðsfélögin eiga. Verkamannafélagið HLÍF, Hafnarfirði Tillögur uppstillinganefndar og trúnaðarráðs félagsins um stjórn og aðra trúnaðarmenn V.m.f. Hlífar árið 1968, liggja frammi í skrifstofu Vmf. Hlífar, Vestugötu 10. Öðrum tillögum ber að skila fyrir kl. 2 e.h. sunnudag- inn 28. jan. 1968, og er þá framboðsfrestur útrunninn, Kjörstjórn V.M.F. Hlífar Réttingar Ryðbæting BKasprautun. Tímavinna. — Ákvæðisvinna. Btlaverkstæðið VESTURÁS HF. Ármúla 7. — Sími 35740. Frá Gluggaþjónustunni Tvöfalt einangrunargler, allar þykktir af rúöugleri, sjáum um ísetningar, leggjum mósaik og flísar og margt fleira. GLUGGA!»JÓNUSTAN, Hátúni 27. — Simi 12880. Hafnarfjörður ★ Hafnarfjörður Spilakvöld Alþýðuflokksfélaganna verður í Alþýðuhús- inu í Hafnarfirði í kvöld, fimmtudaginn 18. janúar og hefst kl. 8,30 stundvíslega. ★ ★ ★ ★ ★ Félagsvist. Ávarp: Emil Jónsson utanríkisráðherra flytur. Kaffiveitingar. Skemmtiatriði. Verðlaunaafhending. Fjölmennið á hin vinsælu spilakvöld Alþýðu- flokksins í Hafnarfirði. Sætamiðapantanir í síma 50499. Öllum er heimill aðgangur meðan húsrúm leyfir. SPILANEFNDIN. 4 18. janúar 1968,. — ALÞÝÐUBLAÐID VIÐ I MÓT ■ MÆLUM 1»AÐ er mikið talað um hag- ræðingu ogr áæUunargerð nú á dögum, Rikisstðórnin gerir framkvæmdaáætlanir sem að vísu ná aðeins til hennar eigin verka, en ekki til sveitarfélaga eða einstakllnga. Með þessum áætlunmn er rikið í raun og veru að ákveða, í hvaða röð skuli takast á við þann mjkla fjölda verkefna, sem óunnin eru. ★ í þessu sambandi hefur mér oft orðið liugsað til hinnar miklu tollstöðvarbyggingar, sem er að rísa á hafnarbakkan- um í Reykjavík. I»etta er feikna mikið hús og myndarlegt, og er útilokað með öllu að tollurinn og tollstjóraskrifstofurnar þurfi á því öllu að halda. Verður því að flytja þangað eitthvað fleira, sem vafalaust verður á snæruin ríkisins. ★ Ekki er út af fyrir sig á- stæða tii að harma, þótt eitt- hvað af ríkisskrifstofum flytji úr leiguhúsnæði einstaklinga I opinberar byggingar. En spyrja má: Af hverju var þessi vold- uga tollstöð látin ganga fyrir öðrum opinberum byggingum i borginni? Hvar var tekin á- kvörðun um það? Stendur rík- isstjórnin öll einhuga að þessu máli? ★ Þessum spurnlngum er varp að fram, af því að mikil undir búningsvinna hefur farið fram fyrir hyggingu stjórnarráshúss, og það á að standa á þeim stað, að það eykur reisn miðborgar innar mlklu meira en tollstöðin. Hins vegar er augljóst, að bygg ing tollstöðvarinnar tefur bygg ingu stjórnarráðshússins um mörg ár. ★ Einhvern veglnn virðist áætl unargerðin ekki vera í föstum skorðum og meira vera gert á tilviljanakenndan hátt en sam- kvæmt skipulegum áætlunuin. Það er mijög þröngt um ráðu ncytin og aðbúnaður þeirra víða ekki góður, enda þótt þau séu flest litlar stofnanir með flárafáu stárfsfólkí. Við bygg^ ingu stjómarráðshúss við Lækj argötu, sem hefði bætt mjög útlit Miðborgarinnar, hefði losnað húsnæði í Arnarhvoli og tollstjóraskrifstofurnar, það volduga innheimtuapparat, hefði getað fengið íneira húsrvmi. Hvað snertir farþegaafgreiðslu við höfnina er hæpið, að bún geti öll verið £ krikanum, þar sem nýja stórhýsið er. Nú eru notuð mikið svo stór skemmti- ferðaskip, að þau geta ekki öll lagzt þar að bakka. Framhaiú á 11. síðu. !

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.