Alþýðublaðið - 23.01.1968, Blaðsíða 12

Alþýðublaðið - 23.01.1968, Blaðsíða 12
mtírn 'Wm Umferðarskólinn Merkileg nýjung er umferöarskólinn okkar. og aldrei var þarflegri menntastofnun á feröinni, þangað sækja nú fræðslu fjörmiklir hnokkar og fyllast lifandi áhuga á bílamergðinni. legra er það fremur undir smá- sjánni en önnur hverfi bæjarins, þó að vitaskuld geti verið, að morðinginn sé svo útsmoginn, að hann hafi tekið áhættuna og fram ið verknaðinn í öðru hverfi en •hann býr í til i>ess að villa um fyrir lögreglunni. . . MOGGI. Og fárra ára snáðar, sem fá oft á sunnudögum að fara niður að Tjöm að gefa öndunum, taka nú próf í umferð og ökulögum og arka heim með Ijómandi skírteini í höndunum. Að vísu má alltaf um úrræði deila og spyrja, hvað einstaklingnum sé fyrir beztu og heildinni. Og ef til vill væri eðlilegast að byrja umferðarskólann strax á fæðingardeildinni. Þetta minnir mig nú á fræg orð úr Ævintýri á gönguför: — Þeir eru svo útspekúleraðir, þessir andskotar. . . Vor d 'agi legi BAi K-stur H-dagurinn er í nánd, H-stemmdar og h-tíðlegar áminn- ingar skella á landslýð jafnt í h-deginu sem aðra tíma dagsins. Margtr eru h-lf uggandi vegna breytingarinnar, en aðrir horfa til h-dagsins sem h-tíðar. H-ðfuglar fjalla um málið í h-ði og fundum h menn h-alvarlegar og heitar um- ræður um þetta, og sums staðar er loftið rafmagnað h-spennu. Menn öskra sig jafnvel h-sa. Mikill h-vaði fylgir oft slíku tali. Það er talað um skóla til að annast undirbúning að h- degi og væri þar kominn annar h-skóli íslendinga. Sumir segja að með því að innleiða h-umferð séum við að hætta okkur út á h-lan ís og þessu fylgi h-ski mikill, Þessir menn sjá að jafnaði h-rautt sé þetta málefni nefnt, og bæta því við að tala umferðarslysa eftir breytinguna verði mjög h. Annars tel ég þetta allt til h-borinnar skammar. Til hvers í andsk. erum við að þenja okkur endilega yfir til hægri. Það er ekki h-leit hugsjón að apa eftir útlendingum í sí- fellu. T.d. hefur það valdið h-vaða og látum er ungviðurinn lætur h-r vaxa að dæmi bítla í því h-a Bretlandi, Við skul- um skapa okkur h-menntaða þjóðareinkenni og halda okkur á vægi þar sem okkur þykir bezt þykja. Við þjóðin h-norðri h-ttvirt og h-vær á ekki að heyja sifellda baráttu við að vera eins og aðrar þjóðir. Við sem forðum h-muðum í okkur h- karlinn og h-ðum margar og frægar orustur eigum að ganga stoltir um foldu jafnt um h-bjartan daginn sem um h-nótt, sérstæð og óli-ð. Ég h-bölva þessu og skora á alla h-ðbíta landsins að hæðast sem mest þeir mega að þessu h-boma skammarmáli. Ég ætla ekkert að vera h-fleygur, ég gæti farið að h-gráta yfir þessu. Má ég vefja höndum utan um li-lsinn á þér og h-gráta H-mundur minn. Að hugsa sér að h-launaðir h-menntaðir menn skuli geta orðið svo h-raustaðir og h-róma fylgjendur þessarar vitleysu. H-karl, SÁ SPAKI SEGIR . . .

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.