Alþýðublaðið - 30.01.1968, Síða 8

Alþýðublaðið - 30.01.1968, Síða 8
NÓTTIN dettur yfir Reykja vík kl. 11,30 e.h. Um jþað leyti er Lyklapétrar öldurhús anna læsa giauminn innj í bænum. Þeir fiökta fyrir í köldum bjarma götuljósanna eins og áttavilltar leöurblökur. Útskúfaé'ir einstaklingar, sem fá ekki notið gleðinnar bylgjast um brjóst og limi. Ilver segir að verzlunárrúða sé ginnhelg? Jesús, María Pétur, Páll? Páll. Pétur situr suður í Róm og heitir Páll og skíttmeða. Maður lætur hvorkj Pétur eða Pál segja sér fyrir verkum! Holur hláturfnn kreppir að tunglinu. Sálir fordæmdra híma við gullportið glórauða. Sánktipétur er genginn til náða og búinn að slökkva á Ieslampanum. Fleirum verður ekki hleypt Inn í nótt. Þær hrína af ákefð þarna úti fyrfr. Kalt er við kórbak og ömur. Iegt í yztu myrkrum. Ef tíl vill má finna handa þeim smugu og öngla sér augagetu Fordæmdir eru ævinlega fé- sterkir. Ég finn til aldurs, þegar við mér blasir skiltl er bannar allan akstur um vinstri ak- grein Lækjargötu norðanmeg in. Rúnturinn er lokaður. Með vífilengjum kemst ég inn í Austurstræti og legg bílnum við Landsbanka/Seðlabanka- húsið. „Hvað varð um yður Aust- urstræt'isdætur ...“ söng skáld ið Tómas og mér er líkt inn anbrjósts. Það er ekki lengur hallóað út um bílglugga og Langibar inn er löngu fyrir bí. Máninn er svo fullur, að hann horfir með velþóknun á Esja gömlu. Himinninn heiður og stjörnubjartur og útsýn tll Akrafjalls og Skálafells. Rússneskur olíudallur er að losa í Örfirisey. Hann er eins og lítið sjávarþorp til að sjá, en uppi á Kjalarnesi blika Ijósin í Saltvík og á Esju- bergi. Togaraútgerðin liggur vlð nýju uppfyllinguna vanhirt og yfirgefin af öllum. Hvalfellið er næst þilinu og ég man hvað það hallaði sér ástúðlega í báruna og var lengi yfir á hina slðuna, eins og það tímdl ekki að slíta votum kossi. Síldin er ljótasta skip i heimi. A. m. k. meðan ég hef séð annað Ijótara. Klukkan eitt eftir miðnætti er komið að Ieikslokum. Næt urlífinu lokið að réttum lög um og allir heim í háttinn. Hinir glöðu og hamingju- sömu dansgestir detta út um gáttir og upp í leigubíla og það er haldið sitt á hvað í allar áttir. Þe'ir hraustustu og fésterk- ustu bjóða tilfallandi dömum í pylsu á ,,Hálsinum“. Opið allan sólarhringinn. Tóbak, öl, sælgæti, sígarettur og vindlar. Einstöku sinnum mjólkurís, en pylsur klukk- una rúnt. Sællegur sláni hallar sér út um dyrnar á nýlegum Fólksvagni og rýmlr til fyrir pylsunum. Annar heldur móð urlega um ennið á lionum á meðan. Enn hefur bróðurþelið ekki verið drukkið í hel.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.