Alþýðublaðið - 02.02.1968, Qupperneq 2

Alþýðublaðið - 02.02.1968, Qupperneq 2
Frétta- skey ti Púebló. New York 1. 2. Ntb. Reut- Her. Fulltrúar Afríku og Asíu í öryggísráði Sameinuðu þjóð- anna hafa boðizt til að vera milligöng-umenn í Púebló mál tnu og hefja v’iðræður við norður kóreska ráðamenn. Var inálið lagt fyrir stjórnir Banda ríkjanna og Ráðstjórnarríkj- anna. Hefur málið hlotið kaldar mótíökur af Bandaríkjamönn. i«n og Norður Kóreumönnum og ekki er búizt við að það nái Fram að ganga. Bandaríkin I iafa tek’ið vel í tillögu Norður Kóreu að málið verði lagt fyr ir vopnahlésnefnd um S.i>. um Bar/zt í Víetnam. ■jíf Ntb. 1. 1. í Saigon hafa fbúar ýmissa hverfa verið flutt ir á brott af Bandaríkjamönn- wm, sem síðan hafa gert loft- árásir á hverlJ til að vinna á Víet Cong. AIIs er áætlað að fím sex þúsund og scx hundruð hafi látizt í síðustu bardögum í Víetnam, þar af sex þúsund sfcæruliðar. Kvikmyndaeftirlit. jlf Undanfarið hefur verið t:I wmræðu í Noregi hvort leyfa ckuli sýningu á bandarískum wyndinni um glæpaparið Bonnie og Clyde, þar sem hún heftir þótt of hryllingsleg. 'iFelja sumir hryllingin, sem þar kemur fram réttlætanleg- nn vegna listræns gildis henn nr. Kozígyn gefur yfirlýsingu. ★ Kozlgyn, forsætisráðherra Sovétríkjanna lýsti því yfir i heimsókn sinni í Afganistan í dlag, að það væri ekkert laun wngarmál, að Rússar styddu þjóðfrelsishreyfinguna í Víet- «am og myndu gera það unz .vfir lyki. Breytingar á rekstri Hábæjar Veitingahúsið Hábær; sem tók til starfa 6. apríl 1965; var frá upphafi með öðru sniði en tíðk- azt hefur um veitingahús hér í Reykjavík og annars staðar á landinu. Er ástæðan sú, að stofn endurnir — feðgarnir Svavar Kristjánsson og Hreiðar Svavars son — fitjuðu upp á þeirri nýj- ung að hafa þar allt í kínverks um stíl, bæði skreytingu húsa- kynna og þá rétti, sem staðurinn lagði áherzlu á. Nú hefir sú breyti'ng orði.ð; að Svavar er orðinn einn eigandi Hábæjar og gerir á honum gagn- gerar breytingar. Hefir hann þeg ar fengið ýmis ný tæki í eldhús og von á fleirum á næstunni, en auk þess hafa verið gerðar breyt- ingar á stærri sal neðri hæðar. Skreytingar þær, sem þar voru fyrir gluggum, hafa verið teknar niður, svo að salurinn er mun bjartari en áður. Sömu áhrif hef ur sandblásin, kanadísk risafura, sem veggir hafa verið klæddir með. Hefir salurinn tekið mikl- um stakkaskiptum við þetta, en er þó enn með kínverskum svip, því að skreyting í lofti er óbreytt. Arinn sá, sem verið hefir í bláa salnum niðri, liefir einnig verið lagfærður; ,svo að nú geta gesíir setið og yljað sér við arineld, þegar svo stendur á. Ennfremur má geta þess, að á efstu hæð hússins er til leigu salur fyrir smáfundi, og er þar m.a. lang- borð, sem hentugt er við fundar störf. í Iiábæ verður eftir sem áður lögð aðaláherzla á kínverska rétti, og í þeim tilgangi hafa kínversk ir matreiðslumenn verið ráðnir að veitingahúsinu á ný til að standa fyrir matargerð af því tagi, sem tíðkast með þjóð þeirra. Hef ir annar þessara manna starfað um 10 ára skeið við kínverskt veitingáhús í London, en þar — eins og víðar í stórborgum heims ins — eru mörg slík veitingahús, sem fræg eru víða um lönd. Hér þarf ekkj' að fara mörgum orðum um kínverska matargerð list. Hún hefir verið heimsfræg um aldir; svo að hin franska á sér ekki eins langa frægðarsögu, og hvar sem kínversk veitingahús hafa náð að skjóta rótum utan Kína, hafa þau orðið vinsæl og Framhald á 9. síðu.<^ MINNINGARSJÓDUR UM ÞÓRARINN BJÖRNSSON Nemendur og samstarfsmenn Þórarins Björnssonar, skólameist ara, hafa ákveðið að beita sér fyr ir stofnun minningarsjóðs við Menntaskólann á Akureyri, er beri nafn hans. Framlögum til sjóðsins verður veitt viðtaka á Akureyri hjá húsverði Menntaskó* ans þar og í Reykjavik í Bóksölu stúdenta í Háskólanum og hjá Bókaverzlun S. Eymundssonar í Austurstræti. Þess er óskað, að þeir, sem gerast vilja stofnendur sjóðsins og tök liafa á því, riti nöfn sín á skrár, sem frammi liggja á ofangreindum síöðum. Þótt frumkvæðið komj frá ofan greindum aðiljum, er hér um al- mennan sjóð að ræða, sem veitir viðtöku framlögum frá öllum þeim er minnast vilja Þórarins skólameistara og styrkja vilja sjóð inn. Stofnendur, sem ekki geta komið því við að rita nöfn sín én framangreinda skrá, eru beðnir að hafa samband við aðila þá, er taka við framlögum. Verða nöfn þeirra þá skráð á stofnendaskrá. Minningarspjöld verða gefin út í tilefni af sjóðsstofnuninni og eru fáanleg á fyrrgreindum stöðum. í stofnunarnefnd sjóðsins hafa valizt: Steindór Steindórsson, sett' ur skólameistari, Ármann Snæ- varr, háskólarektor, Baldvin Tryggvason, forstjóri, Bryndíg Jakobsdóttir, frú, Jón Héðinn Ármannsson, alþingismaður, og Sigurður Hallsson, efnaverkfræð- ingur. 12 VOLTA Ijósasamlokur verð kr. 83,00 pr. stk. Suðurlandsbraut 14. i Meira en fjórði hyer miði yinnuríipH Góðfúslega endut nýið í dag — Dregið á mánudag. Vöruhappdrætti SIBS Afmælishátíð Kvennfélag AlþýSuflokksins í Reykjavík minnist 30 ára afmælis síns meS skemmtun í Átthagasal Hótel Sögu fimmtudaginn 8. febrúar kl. 8.30 Skemmtiatriöi veröa: Frú Soffía Ingvarsdóttir rekur sögu félagsins. Óperusöngvararnir Sigurveig Hjaltested og Guðmundur Guðjónsson syngja. Leikararnir Gunnar Eyjólfsson og Bessi Bjarnason flytja- gamanþátt. Kaffidrykkja og fieira. Þáttaka tilkynnist til Katrínar Kjartansdóttur síma 14313, Aldísar Kristj: ánsdóttur sími 10488, Kristbjargar Eggertsdóttur sími 12496 eða Skrif- stofu flokksins sími 16724. NEFNDIN. j Bridge Spilum bridge í Ingólfskaffi n.k. laugardag 3. febrúar, kl. 2 e.h. Stjómandi: Guðmundur Kr. Sigurðsson. Allir velkomnir. Gengið inn frá Ingólfsstræti. Alþýðuflokksfélag Reykjavíkur. J % 2. febrúar 1968 ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.