Alþýðublaðið - 02.02.1968, Qupperneq 5

Alþýðublaðið - 02.02.1968, Qupperneq 5
UNSER 0LF Þorsteinn Thorarensen : AÐ HETJUHÖLL Saga Adolfs Hitlers — Upp- runi hans, æska og ívrstu baráttuár Bókaútgáfan Fjölvi, Reykja- vík 1967. 462 bls. E, 1 inhver ógrynni hafa þegar verið skrifuð um Adolf Hitler og þriðja ríkið, og er þó íreið anlega margt ósagt enn um þau efni, bæði af sagnfræðingum og minni höfundum fyrir sér. En sagnfræðingar komust í krás eftir ósigur Þýzkalands þar sem voru gífurleg skjalasöfn Þriðja rikisins, ríkis, flokks og ein- staklinga, sem naumlega björg- uðust frá eyðileggingu í stríðs- lokin. Það er einsdæmi að slík heimildasöfn hafi komizt í hend ur fræðim. svo skjótt að loknu stríði þar sem vanalega helzt órofið ríkisvald, og þar með til hlýðileg launung um ríkismál- efni, þrátt fyrir ósigur; í þessu falli eins og mörgum öÖrum varð Þriðja ríkið undantékn- ing. Af þessum fróðleiksbrunni hafa helztu og víðkunnustu höfundar um sögu Hitlers og nazismans ausið, þeir Alan Bullock í ævisögu Hitlers og William Shirer í sögu sinni um viðgang og hrun Þriðja ríkis- ins. Og rit þeirra hafa náð langt út fyrir hóp fræðimanna og á- hugamanna um sagnfræðiieg efni, komið út í stórum upþ- lögum í ódýrum alþýðlegurr. út- gáfum og verið þýdd víðs veg- ar. Yitaskuld hafa margir aðr- ir lagt hönd á plóginn, þó þess- ir höfundar séu kunnastir, og nú á síðustu árum munu nýjar rannsóknir hafa leitt ýmislegt nýtt í Ijós um æskuár og upp- runa Hitlers; áhugi almenn- ings hvarvetna um löndin virð- ist síður en svo þverrandi svo að nýjar rannsóknir, ný rit um Hitlers-tímann eiga eftirtekt vísa; og verða jafnan nógir höf- undar til að kynna og útbreiða rannsóknir og niðurstöður fræðimanna um þessi efni með- al almennings. Og nú er það nýjast í þessum fræðum að á íslenzku hefur fitjað v.pp á nýrri ævisögu Adolfs Hit.ters sem er þessleg að hún verði stórvöxnust þeirra allra áður en lýkur- ef henni lýkur. Sága Hitlers eftir Þorstein J'horar- ensen scm út kom í haust hefst með uppliafi hans, árið 1889, og raunar nokkrum árum fyrr með fjöiskyldusögu hans, en lýkur árið 1923 eftir hina mis- heppnuðu byltingartilraun naz- ista í Miinehen. Sama efni og þó meiru til gcrir Shirer skil í „fyrstu bók” sinnar sögu, um það bil 150 bls. í Pan-útgáfu bókarinnar. Fyrsta bindið af þremur í Hitlers-sögu Alan Bul- locks, æðimiklu minni bók en Þorsteins Thorarensen, nær fram til ársins 1923. Verður ekki ætlað að Þorsteinn íái lok- ið sinni sögu i minna máli en svo sem tveimur bindum, á- líka að vöxtum þessu fyrsta, að óbreyttum söguhætti, enda hefst ekki ferill Hitlers fyrir alvöru fyrr en nokkrum árum eftir að þessu bindi sögunnar lýkur; hún er fyrst og fromst forspjall ævi hans, lýsir að- draganda og undirrótum þess sem síðan varð. > orsteinn Thorarensen hefur sama hátt á sögu Adolfs Hitl- ers og söguritum sínum um ís- lenzk efni; hann gerir enga grein fyrir þeim heimildum sögunnar sem hann notfærir í verki sínu né lýsir "hann sér- staklega tilgangi sínum með þessari söguritun. í hvort tveggja verða lesendur sjálfir að reyna að ráða af meðferð sögunnar. Og sjálfsagt ætlar hann þessari nýju bók sömu afsökun og hinum; Að Ifetju- höll sé „liður í ritflokki” og muni heimildaskrá, skýrirtgar og registur við verkið allt fylgja lokabindi þess „eins og algeng- ast er þegar slíkir bókaflokkar eru gefnir lit.” En fyrir vikið er einatt harla torvelt, eða með öllu ómögulegt, að ráða í það hvað höfundur hafi fyrir sér í frásögn sinni. Lítið dæmi, hand- hægt til skýringar: Á bls. 97 — 99 segir Þorsteinn Thorarensen frá uppáhaldskennara Hitlers í æsku, Ludvig Pötsch, sem kenndi honum sögu í gagn- fræðaskólanum í Linz; Hitler sjálfur fer hinu mésta lofivum Pötsclí í Mein Kampf og telur hann beinlínis hafa haft úrslita- áhrif á líf sitt. William Shir- er segir frá Pötsch í siilni bók og bætir því við, að hann hafi gerzt nazisti þegar fram liðu stundir og orðið fagnaðarfund- ur með þeim Hitler við innreið hans í Austurríki; fyrir þessu ber Shirer sögn Hitlers s.jálfs og æskuvinar hans, Kubizeks. En nú segir Þorsteinn T'horar- ensen þveröfuga sögu, náttúr- lega án þess að tilgreina heim- ild sína fyrir henni, Potsch hafi aldrei orðið nazisti, haft skömm á Hitler: „Ég álít að Hitler sé einliver mesta ógæfa sem yfir Þýzkaland hefur dunið, já', ég vil bæta því við, að ég skamm- ast mín fyrir að hafa verið kennari hans,” hefur Þorsteinn eftir gamla manninum. Dæmið er handhægt til skýr- ingar m. a. vegna Þess að af- staða Pötsch á efri árum skipt- ir sögu Hitlers vitaskuld alls engu máli. En i öllum bókum Adoif Hitler Þorsteins Thorarensen eru my- mörg dæmi um hliðstæð efnis- atriði, sem ekki varða fram- vindu sögunnar svo sem ncinu, en einatt teru til þess fallin að lífga hana upp og auka á fjöl- breytni frásögunnar, gæða hana aukalegri „mannlegri” vídd. Og lesandi hneigist til að trúa þessum aukagetum frásög- unnar fj'rirvaralaust þar t.il í ljós kemur við nánari athugun að um þessi atvik fari tvcnn- um eða þrennum sögum, eins og í þessu falli; eða þá ógern- ingur er að sjá hvernig höf- uridur géti vitað sönnur á því sem hann segir, eins og t.a.m. frásögn hans um pístólu Magn- úsar Stephensen í forsetastóli á Alþingi í bók hans í fyrra. í slíkum tilfellum gæti ein ein- asta neðanmálsgrein nægt til skýringar; minnsta kosti þyrffi einhverja almenna greinargerð fyrir heimildum höfundar um slik og þvílík efnisatriði til að bægja tortryggni frá lesandan- um. En augljóslega verður það tafsamt -verk að gera grein fyr- ir öllum slíkum dæmum í loka- bindi stórvaxinna ritsafna, og hætt við að heimildaskrárnar vaxi þá skjótt í meðförunum ekki síðui' en önnur verk Þor- steins Thorarensen. E n hvað sem þessu líður er hægurinn hjá að gera sér í hugarlund hvernig höfundur vinni verk sitt, hver sé efni- viður hans í þessári bók; hér kennir varla til nein sjálístæð sögurannsókn af hans hálfu eins og vera kann í ritum iians A, Þorsteinn Thorarensen um íslenzk efni. Höfundur hef- ur viðað að sér öllum tiltækum prentuðum heimildum um Ad- olf Hitler, ævi hans, einkalíf, stjórnmálaferil, öllum helztu rituin annarra höfunda um hann og sögu hans, og lcitast nú við að endursegja þetfa mikla efni sem ýtarlegast, vinzar úr því það sem honum virðist sönnu næst, og leggur á það allt mat sinnar heilbrigðu skynsemi. En ekki er nóg með það að Þorsteinn Thorarensen geri að svo komnu máli enga samfellda grein fyrir efnivið sínum, heimildum sögurmar; hann heldur einníg furðu spart á tilvísunum til annarra höf- unda í frásögninni sjálfri. Það er að vísu ljóst að liann styðzt við frumheimildir eftir föngum, frásögn Hítlers •sjálfs í Mein Kampf, minning- ar æskuvinar hans, August Kubizeks, minningar Ernst Haufstaengls sem um skeið var nákominn Hitler; hann getur stöku rannsókna á tilteknum þáttum í ferli Hitlers, Hans Franks á' faðernismáli Alois Hitlers, Jetzingers á æskuárum hans o.s.frv., og brunnu hans o.s.frv.; og hann víkur allvíða að villum „sumra höf- unda” annarra um Hitler. Ég hef ekki tilvitnun handbæra en minnir að hafi verið haft eftir Þorsteini Thorarensen að hann telji helztu ævisögur Hitl- ers ófullnægjandi að mörgu leyti og beinlínis villandi um sumt; ætlun lians er vafalaust að hafa í sinni sögu það og einungis það sem sannlegast reynist. Metnaður verksins er augljóslega sá að segja „endan lega” sögu Hitlers eins og hún horfir nú á eftirkomenndum hans. Það er sagnfræðilega að segja til um það hversu rétt- mætur þessi metnaður sé, og hvernig höfundj takist að framfylgja honum í bók sinni: en óbreyttur lesandi hans sér _að vísu ekki að frásögn bans brjóti i neinu sem verulegu máli skiptir í bága við víðtekn- ar skoðanir helztu höfunda um • þessi efni. ' ð Hetjuhöll er, ekki einasfa ævisaga Hitlers — enda yrði hún ekki sögð svo liún skildist nema við bakgrunn almennrar aldarfarslýsingar, sögu Þýzka- lands og Evrópu á öndverðri öldinni, þess evrópska öng- ( þveitis sem ól Hitler og naz- ismann af sér. Þorsteinn Thor- : arensen f jallar all-rækilega um umhveríi Hitlers í æsku, Aust- urríki síðasta Habsborgar-keis- arans og uppgang hins nýja þýzka stórveldis Bismareks og Vilhjálms keisara, hinnar þýzku þjóðemisstefnu sem. hugtók Hitler á unglingsárum. Höfundum ber saman um að Vínarár Hitlers, flækingslíf hans þar og í Munchen fram að fyrri styrjöklinni hafi verið af- drifaríkasti tíminn í lífi hans, þá hafi skotið rótum og mót- azt þær hugmyndir hans sem síðan tóku ó sig mynd veru- leikans með Þriðja rílrinu, blóðveldi nazista um enlilanga Evrópu; og Þorsteinn tekur að sjálfsögðu í þennan streng með þeim. Hann gerir grein fyrir þátttöku Hitlers í heims- stj'rjöldinni, sjálfboðaliða í þýzka hernum, og rekur jafn- harðan sjálfa stríðssöguna frám að ósigri og uppgjöf Þjóðverja og upphafi þjóðsögunnar um „rýtingsstungu í bakið” sem valdið hafði ósigri þeirra í og átti hún eftir áð veita miklu vatni á mylnu Hitlers. Síðan tekur við umrót stríðslokanna í Þýzkalandi, byltingartilraun- ir kommúnista, upphaf nazista- flokksins og uppgangur b.ans og Hitlers í Bæjaralandi fram að byltingartilrauninni í Miin- ehen 1923. Þar eru sögulok sem Hitler bíður dóms — loks orð- inn landsfrægur stjórnmála- maður. Þorsteinn Thorarensen segir alla þessa sögu sérlega ýtar- lega og með mikilli nákvæmni. Um það er að sjálfsögðu ekki nema gott að segja, en vera má að öll nákvæmnin spilli r,ums staðar heildarsýn yfir atburða- rásina og rök þess sem gcrð- ist. Honum ber t. d. sam.in við aðra höfunda um það að þrir stjórnmálaflokkar liafi cinkum Frh. á 10. síðu. 2. febrúar 1968 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ §

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.