Alþýðublaðið - 02.02.1968, Síða 12

Alþýðublaðið - 02.02.1968, Síða 12
ÚTSALAN sfendur nú sem hæst frá kr.595.—- — — 195,— -----95.— -----75.— Buxnadragtir Tækif ærisk j ólar Nælonundirkjólar Nælonmillipils Hvítir og mislitir nælonsloppar Bárnafatnaður á mjög lækkuðu verði. Telpnakápur frá kr. 298— — — 395.— Náttföt -----75.— Sportsokkar — —• 10— Vettlingar -----45.—• og margt fleira. Komig og kaupið í verzlun, sem þekkt er fyrir vörugæði og lágt verð. Það gilda engar sérstakar kurt- eisisreglur í flugferðum. . . ELDHÚSBÓKIN. Og nú á að fara að rífa kolakran ann, þetta gamla augnayndi okk- ar og yrkisefni óteljandi skálda. Værj ekki nær að flytja hann upp að Árbæ, Kallinn Iét lögfræðing telja fram fyrir sið, og hanií er alveg sann- færður uin að það hafi verið svo vel gert, að skatturinn verði að borga honuum, en liann ekki skatt inum. . . Og nú er febrúar byrjaður. Ég er hrædd um að það verði erfiður mánuður fyrir mig í ár. Það er nefnilega hlaupár, og ég er strax farin að velta því fyrir mér hvort ég eigi ekki að slá til að þessu sinni cg bið.ia mér ejginmanns á hlaupársdaginn. Það er ekki seinna vænna. Vor daglegi BAK-stur Nú eru útsölur í fullum gangi. Þetta er svo sem engin nýjung, engin tíðindi sem flokka má sem sögulega viðburði í þjóðlíf- inu. Síður en svo. Það væri raunar að bera í bakkafullan læk inn að fjölyrða um þefta algenga fyrirbæri, því nóg hefur um það verið rætt. Allar lýsingarnar á konunum, sem berjast mcð kjafti og klóm í þeirri viðleitni sinni að ná í alls kyns dót og dinglumdangl, kunna allir utanbókar. Því hefur verið haldið fram að útsölurnar séu „karlkynsins forni fjandi“, allavega þeim kvæntu, því sagt er, að stundum séu kaup kvenna á útsölu fremur framkvæmd í æði, en að hagsýnin sé þar efsfc á blaði. Nóg um það. Þetta árlega útsöluæði varð þess valdandi að ég fór að brjóta heilann um önnur fyrirbæri, fyrirbæri sem sííellf eiga sér stað í þjóðfélaginu og valda keðjuverkunum á þann hátt, að ef eitt þeirra skýtur upp kollinum, birtast samkynja fyrir bæri á öllum götuhornum, jafnvel mörg á því sama. Einu sinni var maður, sem var svaka sniðugur. Hann lét sér detta í hug að kaupa sér lítinn rútubíl í þeim tilgangi að leigja hann litlum lióp fólks, sem léti sér í hug koma að skreppa í ferð út á land og anda að sér hreinu lofti, sér til skemmtun. ar og hollustu. Maðurinn fékk ærinn starfa í fyrstu, en ekkl leið á löngu fyrr en varla var hægt að þverfóta fyrir litlum rútubílum og nú voru það eigendur þeirra, sem börðust með kjafti og klóm um kúnna, í stað þess að áður börðust litiu hóparnir um litia rútubílinn sniðuga mannsins. Að lokum logn uðust flestir eigendur litlu rútubílanna út af með starfsemina, breyttu litlu rútubilunum sínum í miðlungsstóra sendiferðabíla og hófu akstur á stöð. Þetta er nú ekkert. Iiver man ekki eftir öllum húsgagna- verzlununum sem birtust eitt sinn fyrir nokkrum árum. Þær spruttu upp eins og gorkúlur og enginn var maður með mönn- um nema hunn ætti húsgagnaverzlun, og auðvitað kepptust allir við að bjóða stólana sína með hagkvæmustu greiðsluskil- málum. Má ekki bjóða þér stól með afborgunum, ekkert út, hitt á 50 árum? Að mörgum árum liðnum þegar stóllinn var mættur á túnbletti kaupandans í formi illlyktandi áburðar var liann enn að borga stólinn, og kannski var verzlunin komin á hausinn. Svo datt náttúrlega einum í hug að ekki væri svo vitlaust að borga bara alis ekki stóiinn. Margir fóru náttúrlega að dæmi hans og mikið er ef ekki var bara stofnað félag manna, sem staðráðnir voru í að harðneita að borga mánaðarlegar greiðslur af stólnum sínum. Aumingja húsgagnaverzlunareig endurnir. Svona má lengi telja. Þó get ég ekki láfið staðar numið, án þess að geta eins fyrirbærisins til, nefnilega hjólbarðavið- gerðarverkstæðanna. Guð á himni, maður átti svo sem ekki að vera í vandræðum með að fá gert við hjólbarðann sinn. Alls staðar voru hjólbarðaviðgerðir. Það var varla hægt að snúa sér í hálfhring, án þess að sjá ekki einhvers staðar nýtt hjól- barðaverkstæði, svo ört fjölgaði þeim. Sumir segja að nærri hafi legið við að útsendarar verkstæðanna hafi verið búnir að rífa dekkin undan bílunum, þar sem þær stóðu fyrir utan fiskbúðirnar, áður en eigendurnir létu þess einu sinni getið að barðarnir þörfnuðust viðgerðar. Þetta var þeim mun kostu legra að til að fá gert við skó þurfti að kemba bæinn, og þarf raunar enn, til að hafa uppi á skósmið. Svona get ég haldið áfram upp að telja um stund, en læt þó nægja sem komið er. 1 öllum þessum fyrirbærum má lesa skýrum stöfum þrá mannkindarinnar eftir fljótteknum auði. Það átti sko að slá í gegn. Þrátt fyrir allt megum við vel við una og raunar þakka fyrir á meðan enginn lætur sér detta í hug að hlaupa upp í fjall í leit að giilli, eða starta jarðborun um á lóð sinni, í leit aö olíu. Hákarl.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.