Alþýðublaðið - 10.02.1968, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 10.02.1968, Blaðsíða 2
Úthlutun HstamannaJauna lokið: listamenn fá laun Jón Leifs Jón úr Vör Karl O. Runólfsson Kristmann Guðmundsson Ólafur Jóh. Sigurðsson Rikarður Jónsson Sigurður Þórðarson Sigurjón Ólafsson Snorri Hjartarson Svavar Guðnason Thor Vilhjálmsson Þorsteinn Jónsson (Þórir Bergsson) Þorvaldur Skúlason 30 þúsund krónur: Agnar Þórðarson Amdís Bjömsdóttir Benedikt Gunnarsson Bragi Ásgeirsson Bragi Sigurjónsson Eyþór Stefánsson Guðmunda Andrésdóttir Guðmundur Elíasson Guðmundur Frímann Guðmundur Ingi Kristjánsson Guðrún Kristinsdóttir Gunnar M. Magnúss Gunnfríður Jónsdóttir Hafsteinn Austmann Halldór Stefánsson Heiðrekur Guðmundsson Jakob Jónasson Jakobína Sigurðardóttir Jóhann Hjálmarsson Jón Helgason prófessor Jón Nordal Jón Þórarinsson Jónas Árnason Jökull Jakobsson Kjartan Guðjónsson Krisfinn Pétursson listmálari Kristján Davíðsson Lárus Pálsson Magnús Á. Árnason María Markan Matthías Johannessen Nína Tryggvadóttir Oddur Björnsson Ólöf Pálsdóttir Óskar Aðalsteinn Pétur Friðrik Sigurðsson Rögnvaldur Sigui-jónsson Sigfús Halldórsson Sigríður Ármann Sigurður Sigurðsson Sigurjón Jónsson Stefán íslandi Stefán Júlíusson Steinþór Sigurðsson Svava Jakobsdóttir Sveinn Þórarinsson Sverrir Haraldsson listmálari Veturliði Gunnarsson Framhald á 9. síðu. OG BOLT Frétta- skeyti i tfill alræðisvald k Thieu, forseti S.-Víetnam hefur beðið þingið í Saigon um alræðisvald í eitt ár; að varaliðið verði kallað til her- jijónustu og að aldurstakmörk 'iermanna verði ógíldar. Niðurskurður k Danska ríkisstjórnin ætlar »ð skera niður opinber gjöld um 600 millj. Farsóttahætta í New York k Mikil farsóttahætta er nú í New York vegna verkfalls sorp hreinsunarmanna. Hefur Lind say, borgarstjóri, hótað ið senda mcnn úr þjóðarliðinu tll að annast verk sorphreins. unarmanna, Aukin aðstoð Hr George Wood, forseti heims hankans hvatti í dag þróuðu löndin til að auka aðstoð sína við þróunarlöndin. Pólitísk lausn ★ Robert Kennedy segir, að eina lausn Vietnam stríðsins sé að ná pólitisku samkomu- lagi víð gagnaðilann. Wallace í framboSi ★ Wallace fyrr.v. rikisstjóri í Alabama hyggst bjóða sig fram til forsetakjörs í USA fyrir nýstofnaðan hægri flokk. 1 á móti 30 ★ Nú eru nákvæmlega 5 millj. bandarískra hermanna í S.Vi- etnam, þ. e. a. s. einn banda- rískur hermaður á hverja 30 S.-Vietnama. Úthlutunarnefnd listamanna- launa hefur lokið störfum fyrir ár’ið 1968. Hlutu 95 listamenn laun að þessu sinni. Nefndina skipuðu Helgi Sæmundsson rit- stjóri (formaður), Halldór Krist jánsson bóndi (ritari), Andrés Björnsson útvarpsstjóri, Andrés Krlstjánsson ritstjóri, Einar Lax ness cand. mag., Hjörtur Krist. mundsson skólastjóri og Magnús Þórðarson framkvæmdastjóri. Listamannalaunin skiptast þannig; Veitt af Alþingi: 100 þúsund krónur: Guðmundur Gíslason Hagalín Gunnar Gunnarsson Halldór Laxness Jóhannes S. Kjarval Páll ísólfsson Tómas Guðmundsson Þórbergur Þórðarson Veitt af nefndinni; 60 þúsund krónur; Árni Kristjánsson Ásmundur Sveinsson Brynjólfur Jóhannesson Elínborg Lárusdóttir Finnur Jónsson Guðmundur Böðvarsson Guðmundur Daníelsson ÍGunnlaugur Scheving Hannes Pétursson Indriði G. Þorsteinsson Jakob Jóh. Smári Jakob Thorarensen Jóhann Briem Jóhannes Jóhannesson Jóhannes úr Kötlum Jón Björnsson Jón Engilberts HOLT Ljóst er orðið að hin nýja skipan listamannalauna sem tekin var upp í fyrra dugir ekki til þess að firra úthlut. unarnefnd'ina hneykslum. Fyrsta hneyksli hinnar nýju úthlutunar var raunar ekki á hennar valdi að afstýra: fjár veiting til listamannalauna er of lág og henni er skipt í of marga staði. Til að veita al- menn llstlaun, eins og stefnt er að með þessum hætti, þyrfti allmiklu meira fé ef allir ættu að njóta launanna sem ótví- rætt eiga rétt til þeirra. Og launaupphæðirnar eru enn sem fyrr sneypulega lágar. A1 þingi metur þá listamenn sem það telur verða sérstakra heið urslauna ekkl einu sinni á við óbreytta skrifstofustúlku, hvað þá sjálfa hina háu alþingis- menn sem væri þó engin fjar stæða að miða slík laun við, ef ekki bankastjóra, prófess- ora, ráðherra ... Eftir sem áð ur ruglar útlilutunin saman með óviðurkvæmilegum hætti heiðurs- og ellilaunum rithöf unda, framfærslustyrkjum og eiginlegum starfstyrkjum, upp örvun og viðurkenning fyrir efnileg verk. Alþingi bætti svo gráu ofan á svart með þeirri ákvörðun að liækka tvo höf- unda upp í heiðursflokkinn fyrir skemmstu, þá Guðmund Hagalín og Þórberg Þórðarson, þó þeirri ákvörðun skuli ekki mótmælt sem slíkri. Hagalín og Þórbergur eru vlssulega alls heiðurs maklegir, — en heiðurslaun þeirra eru tekin af því fé sem ella kæmi til skipta, og verða beinlínis til þess að einn eða fleirí lista- menn njóta engra launa I ár. Úthlutunarncfndin mótmælir þessari skipan sérstaklega, og hún leggur ennfremur til að þrír aðrir listamenn verði sama helðurs aðnjótandi, Ás. mundur Svcinsson, Jóhannes úr Kötlum, Jón Leifs. Sú til- laga á sjálfsagt fullan rétt á sér, úr því dilkadráttur er við hafður á annað borð; en þá er vandséð að skáldin Guðmund ur Böövarsson, Jón Helgason, Snorri Hjartarson, eða Sigur- jón ólafsson myndhöggvari, svo dæmi séu nefnd, eigi ekki sama heiður skilinn. 95 listamcnn njóta launa í ár, en voru 102 í fyrra; heild arupphæð launanna er rúmar fjórar milljónir króna, ögn- inni hærri í ár en í fyrra. 7 eru í heiðursflokk Alþingis, en voru 5 I fyrra, 30 í efri launa flokk, en voru 23 í fyrra, 58 í neðri i'Iokk en voru 64 í fyrra. Eínn maður sem naut listamannalauna hefur látizt á árinu. Breytingar eru þó meiri á úthlutuninni en þessar tölur gefa til kynna: 16 listamenn sem engin laun hlutu í fyrra njóta þeirra í ár, en 22 sem hlutu laun í fyrra fá ekkert í ár. Niðurfellíngar eru allar í neðri launaflokknum, en sú hefð er virt að þeir sem eitt sinn séu komnir í efrj flokk- ana haldi launum sínum eftir það. Það liggur í augum uppi að jafnan má deila um elnstakar ákvarðanir úthlutunarnefndar, meðan svo er í pottinn búið að ekki er hægt að veita öllum verðugum einhverja launa nefnu; og meðan flokkaskipt- ing er viðhöfð mun mat henn ar jafnan orka tvímælis. Nokkrar ráðstafanir nefndar- innar í ár eru þá þanníg að þær stangast á við alla skyn semi. Verstu afglöpin eru lík- lega þau að Hannes Sigfússon, eitt helzta nútimaskáld okkar sem í fyrra gaf út eina sína beztu bók er sviptur launum í ár. Guöbergur Bergsson heldur áfram formbyltingu skáldsög- unnar með bók sinni, Ást um samlyndra hjóna, en fær engin llstamannalaun; ekki heldur Leifur Þórarinsson, en tónlist hans við Hornakóral- inn var tvímælalaust einn at- hyglisverðasti tónlistarviðburð ur í fyrra. Nefndin vlrðist m. ö. o. einskis meta þau verk sem menn eru að vinna; menn eru felldir frá launum eða sæmdir þeim holt og bolt, án þess skynsamleg rök eða á- stæður séu sjáanleg. Ekki er gaman að þurfa að mótmæla launahækkunum einstakra manna. En óskiljanlegur er sá smekkur sem kýs að heiðra Jón Björnsson og Elínborgu Lárusdóttur, umfram aðra höf unda, upphefja þau yfir t. a. m. Jón Helgason og Halldór Stefáns- son — en í fyrra framdl nefndin það hneyksli að veita Halldóri alls engin laun. Og þó launþegum hafi fækkað til muna á undanförnum árum eru eftir sem áður menn á listanum, sumir nýkomnir þang að, sem engin vegur er að telja launaverða llstamenn — eða listamenn yfirleitt. —ÓJ. FLOKKSSTARFIÐ FUJ í Reykjavík. FUJ í Reykja vík heldur almennan félagsfund í dag laugard. 10. febrúar kl. 3 síSdegis í Félagsheimili múrara og rafvirkja, Freyjugötu 27. STJÓRNIN. Hádegisverðarfundur Alþýðuflokksfélag Reykjavíkur efnir til hádegisverðarfundar í Átthaga- sal Hótel Sögu í dag 10. febrúar, kl. 12,15. — Jón Þorsteinsson alþingismaður, formaður framkvæmdanefndar byggingaáætlunar ræðir um efnið: Verða byggingarframkvæmdir í Breiðholti of kostnaðarsamar? Þátttaka tilkynnist skrifstofu Alþýðuflokksins fyrir hádegi á föstudag. STJÓRNIN. Keflavtk .Aðalfundur fulltrúaráðs Alþýðuflakksins í Keflavík verður haldinn næst- ’kemandi mánudagskvöld í Æskulýðsheimilinu kl. 8,30. DAGSKRÁ: Venjuleg aðalfundarstörf. Fjárhagsáætlun Keflavíkurbæjar, framsögu hefur Sveinn Jónsson, bæjarstjóri. — Félagar fjölmennið. STJÓRNIN. 2 10. febrúar 1968 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.