Alþýðublaðið - 10.02.1968, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 10.02.1968, Blaðsíða 5
EFTIR DR. JAKOB JÓNSSON „VERTU MER NÆST...” Blöðin hafa undanfarið sagt frá óvenju miklum slysförum á sjó, og fer ekki hjá því, að slík ir atburðir valdi mikilli um- hugsun hjá alvarlega hugsandi íólki. Ef trúa má blöðunum, vekja þeir þó ekki sama hugblæ eða hugsanir hjá' öllum. En ég get ekki að því gert, að sumar myndirnar, sem blöðin birtu, vöktu óhugnað og viðbjóð. Ég sé fyrir mér unga konu, sem búin er að lifa andvökunætur og erfiða daga, þola áhyggjur og ótta, en hinsvegar mikla gleði, er hún frétti, að maður hennar hefði komizt lifs af úr mikilli hættu og yfirunnið hrakn. inga, sem ekki hefðu verið á allra meðfæri að standast. En, á flugvellinum er þessi kona um- kringd af mönnúm, sem kalla sig blaðamenn og sitja um hana, halda um hana vörð, — ekki henni til verndar, heldur af því að hverf orð af vörum hennar er orðin verzlunarvara. För hennar er ekki í þeirra augum ferð konu, sem flýgur yfir heimshöfin til móts við mann, sem henni þykir vænt um, og hún hefur úr helju heimtan. Hún er „blaðamatur", sem á að geta orðið spennandi og æsileg lesning þeirra, sem ekki hugsa um mannlegar tilfinningar, lield ur reyfarlöngun skrílsins. Fram koma þessarra fugla er svívirð- ing —• og ólík þeirri liæversku gagnvart baráttu lífs og dauða, sem við íslendingar eigum að venjast. Ekki svo að skilja, að íslend- ingar séu því ekki vanir, . að segja og heyra fréttir af bar- áttu sjómannanna við hafið, bæði innlendra og erlendra. En margra alda líf í tengslum við hafið hefur kennt okkur, að sjór inn setur ekki hamfarir sínar á' svið til að skemmta forvitn- um blaðalesendum. Og ein setn ing, sem höfð var eftir sjómanns konunni ensku, gefur til kynna, að hún, og sjálfsagt einnig aðr- ar, sem líkt hafa verið stadd- ar, hafa innifyrir háð baráttu, sem ristir dýpra en yfirborðs- kenndar blaðafrásagnir geta gefið til kynna. „Ég var hætt að trú á guð, en nú veit ég, að hann er til“. Þessi var að minnsta kosti hugsunin í orð- um hennar, þó að þau séu ef til vili ekki orðrétt eftir höfð. Hún er ekki ein um það, þessi kona, að þurfa að heyja baráttu hið innra með sér, þegar líkt stendur á'. Prestur, sem oft og lengi hefur haft kynni af fólki, sem snögglega missir ástvini sína skilur þessar hugsanir og liefur oft komizt í kynni við þær, því að þær eru mannlpgar og eðlilegar. Hvers vegna leyfir guð, að annað eins og þetta komi fyrir, að fjölmargir menn far- ist? Hví leyfir guð þetta? Hví fá sumir ástvini sína heila heim og aðrir ekki? Hvaða lögmál eru hér að verki? Hvar er guð? Hef- ur hann sjálfur farizt og dáið, hinn góði guð, sem okkur hefur verið kennf að trú á? Líkar þessu vóru spurningar Jobs í hinu stórkostlega drama, sem varðveitt er í Gamla-testament- inu? Hverju eigum við prestarnir að svara, ef við erum spurðir svipaðra spurninga? Og hvaða sálusorgari hefur ekki heyrt þessar spurningar, annað hvort gagnvart sorglegum staðreynd- um dauðans — eða harmleikj- um lífsins. Ég veit ekki, hvort allir lesendur mínir sætta sig við sömu niðurstöður og ég sjálf ur. Mér kemur ekki til hugar að gera kröfu til slíks. En ég vil benda á noklcrar staðreynd ir til umhugsunar. í fyrsta lagi verður ekki framhjá því kom- izt, að efnj mannlegs líkama og starfsemi hans er háð sömu lög- málum og annað efni þessa heims. í öðru lagi tel ég þá trú byggða á sterkum rökum, að maðurinn sjálfur lifi líkams- dauðann, svo að ekki sé allt glat að, sem í svipinn virðist alveg horfið og farið. í þriðja lagi eru til milljónir manna, sem hafa getað skynjað gæzkp guðs í tilverunni, þrátt fyrir allt hið sorglega, sem fyrir kemur. í fjórða lagi hefur það orðrð til að dýpka lífsskilning og 'samúð margra, að þeir urðu sjálfir að ganga í gegnum eldraun þján- inganna. Slíkur skilningur hefur hjálpað mörgum, sem lýsti sér í orðum gamalla hjóna, sem ég varð einu sinni til að tilkynna drukknun einkasonar: „Sjálf- sagt á þetta að verða okkur til góðs, og sjálfsagt er þetta öli- um fyrir beztu, að svona fór, þó að við skiljum það ekki, því að tilveran er í guðs hendi“, Eil hér er í rauninni komið að kjarna málsins. Guðspjöllin segja lítið um það, hvernig Maríu og vinum hennar var inn an brjósts við kross sonar henn ar. En er ekki hugsanlegt, að bæði hún og þeir hafi spurt með sjálfum sér: Af hverju þurfti að fara þessa leið? Það er misskilningur, að kristindómurinn, fremur en önn ur trúarbrögð, sé einskonar al- fræðibók, þar sem við fáum svör við öllum spurningum. Kristur kom ekki til að útskýra allt eðli þjáningarinnar, en hann kom til að kalla okkur menn- ina til þjónustu og hjálpar við þá, sem þjást. Hinn kristilegi skilningur og hin kristna trú Framhald á 11. siðu. UMFEROARNEFND REYKJAViKUR LÖGREGLAN í REYKJAViK Börn og aldrað fólk eiga mestum erfiðleikum í umferðinni Arið 1967 gerði lögreglan í Reykjavík skýrslu um 119 fót gangandi vegfarendur, sem urðu fyrir bifreiðum í lögsagn arumdæmi Reykjavíkur. Árið áður var tala slasaðra fótgang andi vegfarenda 178. Af þessu má sjá, að þrátt fyrir aukna umferð hefur þessum slysum fækkað. Fækkunin stafar tví- mælalaust af aukinni þekkingu vegfarenda almennt á umferð- arreglum, svo og bættum um ferðarskilyrðum víða í borg- inni. Það er staðreynd, að þeir sem eru í mestu hættu í umferð. inni eru börnir og aldraða fólkið. Af 59 fullorðnum, sem urðu fyrir bifreiðum í Reykja vík á s.l. ári voru 23 sextíu ára og eldri. Á síðasta ári slösuðust 59 börn og unglingar innan við 16 ára aldur, þar af voru 36 börn sex ára og yngri, eða inn an við skólaskyldualdur. Það er ekki síður ástæða til þess að beina ábendingum til ] hinna fótgangandi í umferð- i inni, en akandi. Kunnátta og aðgæzla eru þeir eiginleikar, sem hver og einn verður að : tileinka sér, ef hér á að mynda | góða umferðarmenningu. GANGBRAUTIR eru gerðar til að beina umferð gangandi vegfarenda á ákveðinn stað yf ir akbrautir, þannig má líkja gangbrautinni við göngubrú yf ir læk eða árfarveg. Gangandi vegfarandi verður þó ætíð að ökumenn! Sýnið aldraða hafa það hugfast, þó svo hann vegfarendurnir sem eiga í fari eftir gangbraut yfir götu að sýna ávallt aðgæzlu. Þó bif reið hafi stöðvað við gang- braut er nauðsynlegt að líta vel til beggja hliða, meðan gengið er yfir götuna. UMFERÐARLJÓS gegna þýðingarmiklu hlutverki í um ferðinni. Þó eru margir fót- gangandi vegfarendur, sem fólkinu í umfcrðinni sérstaka tiHitsemi. Það eru aldraða fólkið og yngstu mestum erfiðle'ikum í umferðinni. ekki virða þau og stofna þar með öryggi sínu og annara í hættu. Ökumenn eru kærðir, ef þeir aka yfir gatnamót á móti rauðu ljósi, á sama hátt verða fótgangandi vegfarend- ur að gera sér grein fyrir því, að það er skylda að virða ljós in og fara eftir þeim. Þar sem engin GANGSTÉTT er, verða fótgangandi vegfar- endur að ganga utarlega á hægri vegarbrún, þannig hafa þeir umferðina á móti sér. Þeg ar myrkur er eðá skyggni slæmt, er mikið öryggi í því að hafa hvítan vasaklút í hend inni. Munið það ávallt, að þeir sem eiga í méstu erfiðleikum í umferðinni eru börnin og aldraða fólkið. Förum aldrei framhjá þessum aðilum, ef við sjáum, að þeir eru hjálparvana án þess að veita þeim aðstoð og öryggi í umferðinni. 10. febrúar 1968 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ §

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.